Bændablaðið - 03.12.2015, Síða 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015
Vinnupróf Smalahundafélags Íslands (SFÍ) og International Sheep Dog Society (ISDS):
Besta úttektin innan ISDS að mati Jim Easton
Laugardaginn 7. nóvember fóru
fram vinnupróf International
Sheep Dog Society (ISDS) að
Húsatóftum á Skeiðum þar sem
félagsmenn Smalahundafélags
Íslands (SFÍ) komu saman með
hunda sína til þess að fá þá viður-
kennda og skráða í ættbók ISDS.
ISDS eru alþjóðleg samtök sem
eiga sér yfir 100 ára sögu og hafa
haldið utan um ræktun Border
Collie fjárhunda frá upphafi. Það
má segja að vinnuprófin hafi verið
lokahnykkurinn í aðildarumsókn SFÍ
að samtökunum og markar þessi við-
burður raunverulegt upphaf okkar
að félagasamtökunum og er stórt
framfaraskref fyrir greinina.
Fulltrúar frá ISDS
Fyrir hönd ISDS mætti Jim Easton
stjórnarformaður til landsins og
með honum í för var Judith Sheen
framkvæmdastjóri, einnig mætti
Susanne Moelgaard Kaarsholm,
dýralæknir frá Danmörku, til þess
að augnskoða alla þá hunda sem
komu í vinnuprófið.
Jim Easton sá um að dæma
hundana í vinnuprófinu ásamt full-
trúum sem SFÍ tilnefndi honum til
aðstoðar, þá Þorvarð Ingimarsson
og Sverri Möller. Vinnuprófið
byggðist upp á því að sjá hundana
í almennri vinnu við tuttugu kinda
hóp án þess að gerð væri krafa
um að þeir hefðu hlotið fullkomna
tamningu. Þannig var hundurinn
dæmdur frekar en eigandinn.
Aðeins hundar sem sýndu
ótvíræð einkenni Border Collie
við vinnu gátu staðist prófið. Alls
voru dæmdir 22 hundar frá 14
eigendum sem allir stóðust prófið
og munu því allir fá ISDS skrán-
ingu. Þarna var komið saman úrval
stofnsins í landinu, bæði gamlar
og nýrri blóðlínur. Það er óhætt að
segja að þetta séu ræktunarhund-
ar framtíðarinnar og sumir þeirra
hafa að sjálfsögðu sannað sig sem
slíkir nú þegar.
Eftir vinnuprófið og þegar
allir hundar höfðu verið augn-
skoðaðir fór fram stutt kynning
á Hestakránni að Húsatóftum á
starfsemi ISDS, þar sem Judith
Sheen framkvæmdastjóri fór yfir
sögu og hlutverk félagsins og rakti
hvernig stjórnskipulag þess er
byggt upp. Einnig kynnti hún fyrir
Sverrir Möller, Ytra-Lóni og Maríus Snær Halldórsson, Hallgilsstöðum.
Jim Easton, formaður ISDS, Agnar Ólafsson, Tjörn, Sverrir Möller og Þorvarður Ingimarsson, Eyrarlandi. Agnar er
að sýna tíkina Mjú.
Skotta frá Daðastöðum, Þorvarður Ingimarsson, Eyrarlandi, Jim Easton og
Elísabet Gunnarsdóttir, Húsavík. Þarna var Elísabet nýbúin að sýna Skottu.
Dagbjartur Dagbjartsson, Ingvar Hjálmarsson, Hilmar Sturluson, Agnar
Ólafsson, Halldór Vilhjálmsson og Aðalsteinn Aðalsteinsson.
Aftari röð: Jón Geir Ólafsson, Trausti Hjálmarsson, Elísabet Gunnarsdóttir, Hilmar Sturluson, Aðalsteinn Aðalsteins-
son, Þorvarður Ingimarsson, Judith Sheen, Agnar Ólafsson, Jim Easton, Sverrir Möller, Dagbjartur Dagbjartsson,
Susanne Moelgaard Karrsholm og Maríus Snær Halldórsson. Fremri röð: Ingvar Hjálmarsson, Sóley Þrastardóttir
-
mundsson og Eið Gísla Guðmundsson.
Jim og Judith við Geysi. Þau voru afar ánægð með ferðina. Hunda og smala sem og land og þjóð.
Dagbjartur Dagbjartsson, Hrísum, Svanur Guðmundsson, Dalsmynni og Sverrir Möller ræða málin.