Bændablaðið - 03.12.2015, Qupperneq 60
60 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015
Í síðasta tölublaði sagði ég örlítið
af hinu frábæra lokaverkefni Jóns
Hjalta Eiríkssonar við LBHÍ á
Hvanneyri. Þar sýnir hann fram
á þær breytingar sem orðið hafa á
síðustu árum í kjötgæðaeiginleik-
um hjá íslensku sauðfé. Þetta fékk
mig til að reyna að leggja eitthvert
mat á hvaða verðmætum þetta hafi
skilað þjóðfélaginu og bændum.
Slík umræða hefur því miður
verið mjög fátíð hér á landi. Erlendis
eru forsvarmenn bænda mjög iðnir
við að koma slíkum upplýsingum
á framfæri til að vekja athygli á
sinni atvinnugrein. Hérlendis hefur
aldrei á síðari árum heyrst hósti né
stuna frá slíkum aðilum, ef til vill að
undanskildum málflutningi einstakra
forsvarsmanna LK meðan umræða
um mögulegan innflutning á erlendu
kúakyni var og hét.
Mikil þróun á hagrænu vægi
einstakra eiginleika
Innan kynbótafræði hefur mat á
hægrænu vægi einstakra eiginleika
í ræktunarstarfinu þróast sem mikil
hliðargrein og má nýta þekkingu
þaðan til að skoða gildi framfara í
einstökum eiginleikum fyrir sam-
félag og framleiðendur. Þetta eru
fremur einföld og auðskilin vísindi
þegar um er að ræða einfalda magn-
eiginleika eins og mjólkurmagn hjá
kúm, kjötmagn hjá mörgum tegund-
um búfjár eða aukinn lambafjölda
hjá sauðfé.
Við Daði Már Kristófersson
reyndum meira að segja aðeins að
beita slíkri úttekt á ræktunarstarf-
ið í nautgriparækt fyrir um áratug.
Unnum með samband kynbótagildis
úr nautgripagrunni og rekstrarniður-
staðna úr búreikningum. Niðurstöður
gáfu talmarkaða möguleika til að
greina áhrif einstakra eiginleika
öðru fremur vegna lítils framboðs á
búreikninganiðurstöðum en sýndu
samt ótvírætt að ræktunarstarfið í
þeirri grein skilaði umtalsverðum
arði.
Þegar kemur að eiginleikum sem
snúa að gæðaeiginleikum einkanlega
í kjöti sem er á samkeppnismarkaði
kjöttegunda innbyrðis hefur land
verið meira á fótinn hjá kenninga-
smiðum í þessum greinum. Margt
hefur um málið verið ritað, mis-
gáfulegt að vísu, en engar einfaldar
aðferðir komið fram í slíkum málum.
Sú niðurstaða höfunda sem um þessi
mál hafa fjallað að lágmarksáhersl-
ur ræktunarstarfsins eigi að vera að
áherslur á slíka eiginleika verði að
lágmarki að nægja til að viðhalda
markaðshlutdeild viðkomandi kjöt-
tegundar. Í öllu löndum er í gangi
mis árangursríkt úrval hjá búfé vegna
þessa fyrir kjötgæðaeiginleika. Þó
að þetta gangi ekki upp í heild sinni
hefur þetta að minnsta kosti verið
mér leiðarvísir sem ráðið hafa miklu
um mínar aðgerðir í þessum efnum
þar sem ég hef komið að málum.
Breytingar skýrðar með
erfðabreytingum í stofninum
Ég vil hér á eftir með hliðsjón af
þessu gera tilraun til að meta hverju
úrval í sauðfé hér á landi fyrir einum
þætti kjötgæðaeiginleika hafi mögu-
lega skilað til framleiðenda og þjóð-
félagsins. Þetta er úrval fyrir minni
fitu vegna þess að þó að framfarir
séu minni en fyrir gerð (vöðva) þá
er líklegt að hagræn áhrif þess séu
enn meiri vegna fituminnkunar í öllu
falli sá hluti þeirra sem skilar sér til
framleiðenda.
Skoðum aðeins niðurstöðurn-
ar hjá Jóni Hjalta. Hann finnur að
framfarir til minnkunar á fitu séu um
eða rúm 10 BLUP stig í kynbótamati
á þessum tíma (2000–2013). Með
því gríðarmikla gagnasafni sem hann
vann með getur hann greint fram-
farirnar mjög nákvæmlega. Hann
finnur að breytingarnar eru að öllu
leyti skýrðar með erfðabreytingum í
stofninum. Breytingar á umhverfis-
áhrifum sýnast þar engu hafa valdið.
Einnig staðfestir hjá honum það
sem ég hef oft áður bent á að þessar
breytingar eru allar tilkomnar vegna
vals á hrútum fyrir sæðingastöðvarn-
ar. Áhrif af vali bænda vegna þessa
eiginleika eru hartnær engin þó að
allt öðru máli gegni um gerð fjár-
ins. Fyrstu árin völdu bændur sjálfir
raunar fyrir aukinni fitu og skýrist
það af óhagstæðu sambandi gerðar
og fitu hjá lömbunum á þeim árum.
Til að reyna að gera sér grein
fyrir hagnaði af þessum breytingum
þarf að reyna að gera sér grein fyrir
hvernig skipting á milli flokka hafi
breyst á tímabilinu. Til að gera tilraun
til að skoða þetta aðeins notaði ég
tölur frá kjötmatinu um flokkun slát-
urlamba haustið 1999 og 2014. Nú
er annar þáttur sem ekki síður hefur
tekið talsverðum breytingum sem
er fallþungi lambanna. Vitað er að
ákveðið samband er á milli fallþunga
og flokkunar lambanna. Haustið
1999 var meðalfallþungi um 15 kg en
hins vegar um 16,3 kg haustið 2014.
Benda má að landsmeðaltöl eru nán-
ast þau sömu 2014 og 2015. Í töflu
er brugðið upp rauntölunum þessi
tvö ár fyrir fituflokkana og sést þar
augljós fallþungaaukning lambanna í
fituflokkunum vegna eðlis lambanna
til minni fitusöfnunar á sama tíma og
magn í fitufellingu minnkar.
Skilar miklu í verði til
framleiðenda
Út frá þekktum tölum um skiptingu
í flokkana og um þungadreifingu hjá
lömbunum þá hef ég gert tilraun til
að svara þeirri spurningu hve líklegt
sé að framleiðendaverð hefði verið
lægra haustið 2015 hefði það verið
framleitt með dilkum með erfða-
grunn lambanna frá 1999. Til að
nálgast þetta verður að gera áætlanir
um fjölda stærða þannig að útkoman
verður ákaflega ónákvæm, frekar að
mögulegt sé að gefa ytri mörk stærð-
anna. Athugið að hér er aðeins verið
að ræða um verð sláturleyfishafa til
bóndans. Allar greiðslur sem tengj-
ast ríkisstuðningi eru látnar óbættar
hjá garði, en ljóst að einhver áhrif er
að finna þar til hækkunar. Hitt sem
er rétt að benda á er að allir þessir
útreikningar byggja á miklum marg-
földunar á ýmsum stærðum sem gerir
að ákvörðun stærða verður aðeins
þess vegna mjög ónákvæm.
Niðurstaða mín er að hækkun
framleiðendaverðs vegna breytinga
á fitu hjá lömbunum sé að lágmarki
50–70 miljónir króna en líklegast sé
að hún sé á bilinu 100–150 miljónir
króna. Þetta er samt aðeins hluti þess
sem um ræðir.
Óbreytt ástand
hefði valdið samdrætti
Eins og áður er nefnt þá er kindakjöt-
ið í samkeppni við fjölda kjöttegunda
á markaði. Því miður hefur lamba-
kjötið orðið að láta undan síga sem
samkvæmt áðurnefndum útlendum
fræðum segir að áhersla á minni fitu í
ræktunarstarfinu hafi ekki verið nægj-
anlega mikil til að standast samkeppni
annarra tegunda. Þá gerum við ráð
fyrir að fitan hafi verið stærsta vanda-
málið í samkeppninni, sem áreiðan-
lega var rétt á tíunda áratuginum. Hins
vegar tel ég að augljóst sé að hefðum
við ekki náð að minnka fituna hefði
samdrátturinn á innlenda markaðnum
orðið miklu meiri og einnig dregið úr
möguleikum í útflutningi. Að ákvarða
þetta er skot í myrkri. Mitt mat er samt
að hefði dilkakjötsframleiðslan 2015
verið af lömbum sem höfðu arfgerð
fjárins laust fyrir síðustu aldamót
gætum við verið að ræða um 20%
samdrátt í framleiðslu að lágmarki.
Þegar hann er aðeins metinn á fram-
leiðendaverði erum við að ræða um
það bil miljarð króna.
Stórar upphæðir
Endalaust má deila um hvaða verð
eigi að miða við í slíkum útreikning-
um. Jafnvel þó að notað væri útflutn-
ingsverð í lægri kantinum væri um
feikilegar upphæðir að ræða. Á móti
má benda á að engu móti er horft til
stuðningsgreiðslna framleiðslunnar
enda umdeilt að taka tillit til, en það
væri aðeins til hækkunar. Þetta er
hagnaður sem fyrst og fremst verð-
ur að meta til aukins þjóðarhags.
Útilokað er að meta hvernig slíkur
samdráttur hefði birst. Líklegt er samt
að öðru fremur hefði það gerst með
miklu hraðari fækkun bænda en verið
hefði og mögulega hefðu þeir sem þá
stæðu eftir haldið upp tekjum með
meiri framleiðslu.
Betri eiginleikar skila sér í
auknum þjóðarhag
Erlend fræði segja að allur hagnaður í
eiginleikum sem þessum skili sér sem
aukinn þjóðarhagur og til neytenda en
ekki til framleiðenda. Nær ekkert er
að finna af erlendum rannsóknum sem
studdar eru mælingum sem sannreyna
þetta. Þó birtist á síðasta ári rannsókn í
Ástralíu þar sem þeir höfðu gögn til að
meta þessar stærðir. Held ég hafi stutt-
lega fjallað um þetta hér í blaðinu fyrr
á árinu. Niðurstöður rannsóknarinnar
studdu fræðin að flestu leyti nema að
örlítill hluti þess hagnaðar sem þarna
kemur fram skilaði sér þar þó alla leið
til framleiðenda.
Aukin fóðurnýting
Endalaust má velta fyrir sér fleiri þátt-
um í sambandi við þetta. Eitt er hvern-
ig breytist fóðurþörf lambanna. Minni
fita og meiri vöðvar getur tæplega
annað en aukið fóðurnýtni og þannig
enn aukið sjálfbærni framleiðslunnar.
Margir munu í dag vilja meta slíkt til
tekna. Vegna minni fitu hefur vöðvi
komið hjá lömbunum í hennar stað
vegna þess að fallþunginn hefur meira
að segja talsvert aukist. Hefði aðeins
fitan verið fjarlægð hefði fallþungi
lækkað.
Aukinn árlegur arður til
þjóðarbúsins 400 til 700 milljónir
Fráleitt held ég sé að leggja megi þær
áætluð tölur sem nefndar hafa verið
saman, líklega nær lagi að horfa á
meðaltal stærðanna sem nefndar hafa
verið. Þær sýna samt að ræktunarár-
angurinn vegna fitunnar einnar er að
skila að lágmarki 400-700 miljónum í
arð til þjóðarbúsins á hverju ári.
Framsýni Framleiðsluráðs og
fjárræktarbúsins á Hesti
Ljóst er að einhver kostnaður hefur
verið við að ná þessum árangri. Ljóst
er samt að hann er hreinir smámunir
í þessu sambandi. Vinna við hrúta-
valið fyrir stöðvarnar á þessum tíma
var í öllu falli sáralítil. Aftur á móti
lá að baki einhver kostnaður við
öflun gagna til að byggja úrvalið á.
Þar vegur líklega hvað þyngst öflun
mælitækja (ómsjáa) fyrir búnaðar-
samböndin upp úr 1990. Þar hjálp-
aði verulega framsýni stjórnenda
Framleiðnisjóðs á þeim tíma en sú
stofnun hefur góðu heilli hafti lengi
í farteskinu meiri framtíðarsýn en
sumar aðrar af stofnunum landbún-
aðarins. Full ástæða er líka að nefna
í þessu sambandi áratuga markvisst
ræktunarstarf við fjárræktarbúið á
Hesti (og einnig einstakra ræktenda
víða um land) sem virkilega skilaði
ómældum hluta til þeirra breytinga
sem hér eru til umræðu.
Bætt heilsufar þjóðarinnar
Einn þáttur hefur ekki verið nefndur
og verður aldrei metinn af nokkru
viti en á að bætast við árangurinn
eru möguleg áhrif minni fitu til betra
heilsufars þjóðarinnar vegna þess að
kjötið sé orðið enn heilsusamlegri
fæða en áður. Við vitum að allar
tölur í sambandi við heilbrigðiskerf-
ið verða strax risatölur í höndum
fjármálavitringa eins og sveitunga
míns, heilbrigðisráðherra og Vigdísar
Hauksdóttur formanns fjárlaganefnd-
ar. Að líkindum hefur það einnig
fært þeim vissa ánægju við beitingu
niðurskurðarhnífsins, sem að sjálf-
sögðu ber að telja tekjumegin, þó að
það sé greinilega minnsti bagginn í
heildarsamhenginu.
Peningar vegna kynbóta hafa
rentað sig vel
Hér hafa verið færð rök fyrir því
að þeir peningar sem varið hefur
verið til kynbótastarfs vegna eins
eiginleika í sauðfjárræktinni hafi
skilað sér með mikilli rentu til baka
til þjóðarbúsins. Allar innlendar og
erlendar rannsóknir styðja að svo
sé um flest sem snýr að búfjárkyn-
bótastarfi. Til að svo megi verða þarf
að vísu ætíð að starfa af framsýni
og laga starfið á hverjum tíma að
breyttri framtíðarþróun. Þar sem stór
hluti ábatans skilar sér beint til sam-
félagsins hljóta það að vera sterk rök
fyrir því að til slíkra starfa sé áfram
varið opinberu fé.
Ræktunarstarfið hefur skilað árangri
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Jón Viðar Jónmundsson
Ráðunautur hjá RML
jvj@bondi.is