Bændablaðið - 03.12.2015, Side 62

Bændablaðið - 03.12.2015, Side 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015 Hvað gerir fátæk sjómannsfjöl- skylda í litlu sjávarplássi um aldamótin 1900 þegar húsfreyjan bugast af geðrænum veikindum? Leið Skaftfellinganna Steinunnar Sveinsdóttur og Ólafs Ásgrímssonar á Djúpavogi lá í sveitina. Vegna veikinda Steinunnar gat Ólafur ekki verið daglangt í róðrum og leitar því í sveitabúskap þar sem samvistir fjölskyldunnar eru meiri. Til lengri tíma er þetta þó ekki ráð sem dugar og innan fárra ára er hafin barátta bóndans á Randversstöðum í Breiðdal fyrir því að fá konu sína vistaða á Kleppi. Frá þessari einstæðu örlaga- sögu segir í bókinni Ofríki eftir Jón Hjartarson sem bókaútgáfan Sæmundur á Selfossi sendir nú frá sér. Vistun á hinum splunkunýja Kleppspítala er dýr og sveitar- sjóður þarf að borga. Hér mæt- ast annars vegar sjónarmið hins gamla fátæka sveitasamfélags þar sem reynt er að ala ómaga samfélagsins með sem minnstum tilkostnaði og hins vegar nútíma sjónarmið mannúðar og mann- réttinda. Ólafur Ásgrímsson er sannur baráttumaður sem tekur nei-i sveitarstjórnar ekki sem endanlegu svari. Og þrátt fyrir að Ólafur gangi ekki með fullan sigur af hólmi er barátta hans merkileg. Hann veitir yfirvöldum svo harðsnúið viðnám að þau mega beita öllum tiltækum lagakrókum til þess að koma honum undir. Eftir liggja 140 málsskjöl sem lögð eru fyrir sýslumann Skaftafellssýslu. Það er fáheyrt fyrir öld síðan að fátækur alþýðumaður rísi með þessum hætti upp gegn yfirvöldum. Óbærilegt heimilisböl Við grípum hér niður í bók Jóns þar sem Ólafur Ásgrímsson lýsir búskap í skugga geðveiki og fátæktar: Geðveikin var óbærilegt heim- ilisböl, varla hægt að tala um öll ósköpin þegar verst lét. Ég man ekki hvenær fyrst fór að bera á þessum veikindum hjá henni Steinunni minni, hún hafði frá því ég fyrst kynntist henni verið örlynd, en ekkert sem um var að tala. En fljót- lega eftir að við fluttum á Djúpavog fór meir að bera á örlyndistímabil- um, þau stóðu lengur en áður og hún átti oftar erfitt með að hafa stjórn á skapinu og var lengur að jafna sig á eftir. En eftir að Lára Björg fæddist fór fyrst alvarlega að taka í hnúkana. Þá komu löng tímabil þar sem hún varð alveg albrjáluð og vissi hvorki hvert hún fór né hvað hún gerði. Þegar svona stóð á fyrir henni hafði ég miklar áhyggjur af börnunum, óttaðist jafnvel að þeim væri ekki óhætt, sérstaklega ungbarninu Láru, enda réð hún ekkert við að hugsa um þau né neitt sem heimilinu viðvék þegar verst gegndi. Fyrst í stað, á meðan ég vonaði að ástandið myndi batna, tók ég mér frí frá sjómennskunni, dag og dag, til að vera heima og gæta að hlutunum, en þegar batinn dróst á langinn og ástandið jafnvel versnaði þá varð útséð um að ég gæti stundað sjó- inn, ég yrði að koma fjölskyldunni í skjól þar sem ég gæti litið til með Steinunni og börnunum daglangt. Eftir nokkra umhugsun tók ég á leigu hálfa jörðina á Rand vers stöðum í Breiðdal og þangað fluttum við öll 1904. Heimilishaldið og búskapurinn var allt undirlagt af geðveikinni, sem nú keyrði úr öllu hófi, brjálæðis- köstin vöruðu orðið marga daga í senn og sífellt varð styttra á milli kastanna. Ég komst nánast ekkert út til að sinna búverkum, sem hvíldu þá aðallega á yngri börnunum, sem gerðu eins og þau gátu, angaskinnin, en réðu auðvitað ekki við nema lítið af því sem til þurfti. Það var enga hjálp að fá, nágrann- arnir óttuðust geð veikina og forðuð- ust bæinn. Við þessar kringumstæður gekk allt úr böndunum, útihúsin grotnuðu niður og féllu inn í eigin tóft, tún- garðar hrundu og viðhald allt var í svo miklum ólestri að á öllu sá. Ég gerði mér fulla grein fyrir því í hvað stefndi, en lengst af vonaðist ég eftir að Steinunni minni myndi batna, svo hægt væri að snúa hlutunum við. En það varð bið á því og svo bættist við hörmung arnar augljós fjandskapur samfélagsins, sem tók að agnúast út í okkur á ýmsan máta og við urðum þess vör að fólk vildi losna við okkur úr sveitinni. Sveitin óttaðist Steinunni, óttaðist að hún myndi brjótast út af heimilinu og ryðjast inn á bæi og ráðast á fólkið. Börn voru hrædd til hlýðni á „brjál- uðu konunni á Randversstöðum“ og fullorðið fólk hætti sér ekki á milli bæja eftir að skyggja tók, af hræðslu við eigin ímyndun. Þannig hlóðust váboðarnir upp allt í kringum okk ur og ef ekki brygði fljótt til betra horfs hlyti að draga til tíðinda áður en langt um liði. Út er komin hjá Veröld bókin Munaðarleysinginn – örlaga- saga Matthíasar Bergssonar eftir Sigmund Erni Rúnarsson. Lífssaga Matthíasar Bergs- sonar spannar allt frá dvöl á munaðarleysingjaheimili í Reykjavík á sjötta áratugnum til hörkulegrar herþjálfunar fyrir stríðið í Víetnam og daglegs lífs í glæpahverfi í miðríkjum Bandaríkjanna. Við sögu koma Marlene Dietrich, Alice Cooper, Axl Rose, Marlboro-maðurinn, morðingi Johns Lennon – og þrír Bandaríkjaforsetar, svo nokkur séu nefnd. Í veraldarvolkinu tókst Matthías á við ótrúlegustu verkefni en sökk að lokum til botns í óreglu, niðurlægingu og eymd. Honum tókst að rífa sig upp úr ömurleikanum og tók stefnuna heim til Íslands – þar sem hann vissi af æskuástinni sinni. Sigmundur Ernir Rúnarson ritar örlagasögu munaðarleys- ingjans Matthíasar Bergssonar af innsæi og sagnalist – einhverja óvenjulegustu ævisögu síðari ára! Munaðarleysinginn er 268 blaðsíður að lengd. Ólafur Unnar Kristjánsson hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Odda. Sigmundur Ernir Rúnarsson og Matthías Bergsson. „Mér hefur verið líkt við Forrest Gump“ Í baráttu fyrir að fá að fara á Klepp! Feðginin Ólafur Ásgrímsson og Rannveig Júlía Ólafsdóttir en í bókinni er m.a. rakin saga Júlíu sem bjó lengi í Júllukofa við Foss á Síðu. Höfundurinn Jón Hjartarson. Á hjara veraldar Á hjara veraldar Heimildasögur nefnist bók sem er nýkomin út hjá Vestfirska forlaginu. Guðlaugur Gíslason frá Steinstúni í Strandasýslu tók saman. Það var enginn barnaleikur að búa á afskekktustu jörðum þessa lands áður og fyrr. Þar voru Hornstrandir og nágrenni líklega sér á báti. Eitt var það sem ekki varð undan vikist, og það var að flytja lík til greftrunar. Það var líka þung kvöð sem lá á fólki að sækja kirkju og taka þátt í helgi- haldi safnaðarins, en fjarlægðin og óblíð náttúra bönnuðu. Meira en tveggja alda gömul skjöl Í Þjóðskjalasafni Íslands hafa nýlega komið í leitirnar meira en tveggja alda gömul skjöl, sem hafa legið þar óhreyfð öll þessi ár. Bréfin greina frá viðskiptum og kærumál- um á hendur Jóni Árnasyni, bónda í Skjaldabjarnarvík á Ströndum, við kirkjunnar þjóna vegna „kirkju- forsómunar,“ sem prestarnir nefndu svo, og gengu alla leið til Skálholtsbiskups. Grafinn í túni prests án yfirsöngs Þar fundust líka bréf frá sama tíma, vegna eftirmála, sem urðu útaf greftrun Hallvarðs Hallssonar, þá húsmanns í Skjaldabjarnarvík, en hann var grafinn þar í túninu án vitundar prests og án yfirsöngs. Þá er einnig sagt frá kærumálum vegna dráttar sem varð á að koma líki vinnukonu í Skjaldabjarnarvík til greftrunar í Árnesi. Svo er farið um víðan völl. Guðlaugur Gíslason frá Steinstúni er einn af þessum gömlu góðu fræðimönnum sem nú fer fækkandi. Vestfirska forlagið hefur áður gefið út bækurnar Lífvörður Jörundar hundadagakóngs og Ævisögu Þórðar Þ. Grunnvíkings rímnaskálds. Bækur, tónlist & kvikmyndir

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.