Bændablaðið - 03.12.2015, Page 67
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 201566
Vélabásinn
liklegur@internet.is
Hjörtur L. Jónsson
MMC L200:
Nýr og mikið breyttur
L 200 frá Mitsubishi
Fyrir skömmu kom ég í Heklu og
sagði Stefán Sandholt, sölustjóri
Mitsubishi-bíla, mér að vænt-
anlegur væri nýr pallbíll frá
Mitsubishi og bað ég hann endi-
lega að láta mig vita þegar hann
hefði bíl handa mér til að prófa.
Um miðjan nóvember hringdi
Stefán í mig og bauð mér að prófa,
valið var að fá sjálfskiptan eða
beinskiptan. Ég kaus beinskiptan
sem Stefán lét setja á aðeins stærri
dekk, en naglalaus.
Allar breytingar á bílnum gera
hann eigulegri
Það fyrsta sem ég tók eftir var að
búið var að stækka pallinn frá fyrri
árgerðum, en nú mælist pallurinn
147x147 lokaður, en með gaflinn
opinn er hann 211 cm langur. Góð
breyting þar sem á eldri árgerðum
var pallurinn of stuttur (ef ég man
rétt var hann 17 cm styttri).
Hámarks dráttargeta er 3.100 kg.
(miðað við að vagn sé með bremsu-
búnað). Heildar hleðslugeta bílsins
er nálægt 1100 kg (farþegar og á
pall).
Fjöðrun eins og flestir pallbílar,
gormar að framan og fjaðrablöð að
aftan.
Vélin er 2,4 dísil sem á að vera
181 hestafl.
L200 er rúmgóður að innan,
ekki skemmir fyrir að vera með
bakkmyndavél (ef ég man rétt er
þetta fyrsti pallbíllinn sem ég prófa
með bakkmyndavél).
Speglar á hliðum eru í yfirstærð
(næstum eins og á vörubíl), frábærir
speglar sem sýna aftur fyrir bílinn
meira en ég er vanur.
90 km prufuakstur
í vondum aðstæðum
Sökum veðurs og akstursskilyrða
ók ég bílnum minna en ég hafði
hugsað mér. Í innanbæjarakstri er
gott að vera á L 200, maður situr
hátt og sér yfir flesta bíla. Útsýni
úr ökumannssætinu er fínt til allra
átta, svo er hann glettilega lipur þrátt
fyrir að vera stór og langur. Það eina
sem var að trufla mig var að leggja
í þröng stæði og snúa bílnum við.
Þrátt fyrir að mér hafi fundist bíll-
inn vera óþjáll við þröngar aðstæður
þá er þvermál beygjuhrings aðeins
5,9 m.
Á beinum og breiðum vegi þar
sem er hámarkshraði þarf maður
aðeins að passa sig að keyra ekki
of hratt þar sem maður finnur lítið
fyrir hraða bílsins. Þegar ég hélt mig
vera á um 90 kílómetra hraða var
bíllinn vel yfir þeim hraða í tvígang.
Á malarvegi er afturendinn frekar
laus í holóttum malarvegum þegar
bíllinn er svona tómur, en ég hef
fulla trú á að 100 kg aftast á pallinum
lagi þetta. Líka getur skipt máli að
bíllinn var aðeins keyrður 30 km
þegar ég fékk hann, en margir bílar
mýkjast eftir 2–300 km.
Í prufuakstrinum var
skriðstillirinn prófaður sérstaklega
Fyrirfram hafði ég ímyndað mér að
vél sem á að skila yfir 180 hestöflum
mundi mokeyða eldsneyti, en raunin
var sú að eftir um 90 km akstur var ég
ekki að eyða nema 9,9 lítrum af dísil
í blönduðum akstri (uppgefin eyðsla
samkvæmt bækl ingi er 7,2 lítrar á
hundraðið). Það var þrátt fyrir akstur
á mjög vondum vegslóða, hálkuæf-
ingar og ýmsar aðrar æfingar sem
þurfa mikið eldsneyti. Ég get því
ekki verið annað en ánægður með
eyðsluna.
Besta skriðvörnin
Nánast allir nýir fjórhjóladrifnir bílar
eru bæði með spólvörn og skriðvörn.
Í flestum bílum virkar skriðvörnin
þannig að ef bíll fer að renna til í
hálku slær bíllinn sjálfkrafa af, en í
þessum bíl er það ekki svoleiðis. Ef L
200 byrjar að renna til slær vélin mun
minna af en aðrar vélar, þess í stað
bremsar bíllinn sjálfkrafa á annað
framhjólið til að rétta bílinn af. Við
þetta tapar maður mun minni hraða
og skapar sjálfum sér minni hættu
á heimsókn bíls sem á eftir kemur
aftan á afturenda L 200. Fyrir vikið
er skriðvörnin í Mitsubishi L 200 að
mínu mati sú besta sem ég hef prófað.
Millikassinn fær toppeinkunn
Einnig prófaði ég á klaka hvernig
læsingin í millikassanum virkaði.
Eftir að hafa tekið snöggt af stað var
stoppað og skoðað fyrir aftan öll hjól.
Jöfn spólför fyrir aftan hvert hjól gefa
læsingunni toppeinkunn.
Góður bíll, en ljósabúnaður
ekki að mínu skapi
Miðað við verð og getu bílsins tel
ég að allar breytingar á bílnum séu
vel heppnaðar og bíllinn góður hvort
sem fjölskyldubíll eða vinnuþjarkur,
en þó er ég ósáttur við ljósabúnaðinn
á bílnum þar sem ég vil alltaf hafa öll
ljós kveikt þegar bíll er í akstri og vil
ekki þurfa að muna að slökkva ljós
að lokinni bílferð. Að mínu mati á
ekki að vera hægt að aka af stað út í
umferð nema með fullan ljósabúnað.
Eitthvað virðast sumir einstaklingar
misskilja íslensk umferðarlög, en þar
er línan skýr:
Ljós allan hringinn alltaf í umferð,
annars fær maður sekt ef maður
er ljóslaus að aftan. Ég er ósáttur
við túlkun manna og innflytjenda
bíla á að í lagi sé að vera með
Evrópusamþykktan ljósabúnað,
íslensk lög um ljósabúnað eru eins
og þau eru vegna sérstöðu og legu
landsins með öryggi vegfarenda að
leiðarljósi.
Þegar ég skoðaði verðið ætlaði
ég ekki að trúa því, en grunnverð
á beinskiptum MMC L 200 er frá
6.890.000 fyrir beinskiptan bíl, en
sjálfskipti bíllinn kostar 7.390.000.
Allar nánari upplýsingar um bílinn
má finna á vefsíðunni www.hekla.is.
Hæð 1.780 mm
Breidd 1.815 mm
Lengd 5.260 mm
Þyngd 1.875.kg
Helstu mál og upplýsingar
Mitsubishi L 200. Myndir / HLJ
Eftir akstur á blautum malarvegi var bíllinn frekar drullugur. Mæli með stærri
brettaköntum til að halda bílnum hreinni.
Á hálu plani var skriðvörnin prófuð og fær hún hæstu einkunn.
Pallurinn mælist 147x147 lokaður, en
lengist í 211 ef hlerinn er niðri.
Dekkin undir bílnum voru aðeins
stærri en bíllinn kemur á, auðvelt er
að breyta bílnum og stækka dekkin.
Speglarnir á hliðunum eru stórir
og góðir.