Bændablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 60

Bændablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 60
60 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015 Hulda Ólafsdóttir rekur fyrirtækið Hjartalag á Akureyri: Markmiðið að breiða út hlýju, kærleika og jákvæðan boðskap „Afmælið tókst vel, það kom hing- að margt fólk og stemningin var notaleg,“ segir Hulda Ólafsdóttir, sem á og rekur fyrirtækið Hjartalag – hlýjar kveðjur á Akureyri. Vinnustofan er í kjallaranum þar sem hún býr við Þórunnarstræti, þar var áður fyrr fjós og skammt sunnan við húsið er gömul hlaða. Þar sló Hulda upp afmælisveislu um daginn og fagnaði tveggja ára afmæli Hjartalags. Með henni voru tvær góðar vinkonur, systir hennar Guðríður Baldvinsdóttir, Gugga í Lóni í Kelduhverfi, en hún rekur samhliða búskap félagið Sælusápur. Gugga er sauðfjárbóndi og skóg- fræðingur, býr ásamt eiginmanni, Einari Ófeigi Björnssyni, með á fimmta hundrað fjár, en einnig er á jörðinni æðavarp, skóg- og skjól- beltaræktun. Kristín S. Bjarnadóttir í Sigluvík á Svalbarðsstönd var einnig í hópn- um. Hennar starfsemi fer fram undir nafninu Blúndur og blóm og meðal þess sem hún framleiðir eru vinsæl skipulagsdagatöl. Erum allar sveitastelpur „Við þekkjumst allar mjög vel, ég sé um alla hönnun, bæði fyrir Sælu- sápur og eins dagatölin sem Kristín framleiðir og því var borðleggjandi að bjóða þeim að slást í hópinn og fagna þessum tímamótum,“ segir Hulda. „Við erum líka allar sveitastelpur í húð og hár, Gugga og Kristín búa enn í sveit og ég held tengslunum við sveit ina með því að búa á gömlum sveitabæ sem nú er í miðjum Akur- eyrarbæ. Það sakar nú aldeilis ekki að hafa hlöðu í garðinum.“ Hulda segir að margir hafi lagt leið sína til þeirra vinkvenna, bæði sem þær þekktu fyrir og eins aðrir sem þær þekktu ekki neitt „og það var bara mjög gaman hjá okkur. Við skreyttum með greinum og kertum úti þannig að það varð rómantísk yfirbragð yfir öllu hér sem passar auðvitað ágæt- lega því þannig er yfirbragðið á okkar vörum. Það var markmiðið að fólki þætti notalegt að koma við hjá okkur á þessum árstíma og sjá hvað við höfum upp á að bjóða, fólk skoðaði það sem við erum að framleiða og dreypti á kakói og maulaði smákökur með.“ Gaman að sinna eigin sköpun Hulda segist afskaplega glöð yfir þeim góðu viðtökum sem hennar verk hafi fengið. Hún er grafískur hönnuður og starfaði við fagið um alllangt skeið, en hennar eigin hönnun var eins konar hliðargrein við brauðstritið. „Ég var alltaf að fikra mig áfram, skapa eitthvað og búa til. Það vatt svo jafnt og þétt upp á sig og að lokum var þetta orðið svo umfangs- mikið hjá mér að ég hreinlega varð að gera upp við mig hvort ég ætti að kasta mér út í djúpu laugina, hætta í fastri vinnu og helga mig eingöngu mínum eigin verkum. Ég tók þann kostinn og sé alls ekki eftir því, það er virkilega gaman að sinna eigin sköpun, sjá hlutina þróast og verða að fullgerðri vöru. Og vissulega ánægjulegt að fólki líkar við þessa hluti sem ég er að gera,“ segir hún. Hulda hefur bætt við sig námi sem snýr að rekstri fyrirtækja, mark- aðsmálum og fleiru í þeim dúr og segir að félagið gangi ágætlega. Hún sinnir auk eigin sköpunar einnig ýmsum verkefnum í sínu fagi fyrir hina ýmsu aðila. „Ég hef alltaf fundið fyrir þessari þörf að skapa, það gefur mér mikið,“ segir hún. Eitt af því sem hún segir mik- ilvægt við að koma sér á framfæri sé að vera sýnilegur og það hefur hún svo sannarlega gert í ár, tekið þátt í fjórum stórum sýningum. Hún var með í sýningunni Handverk og hönnun í Reykjavík, bæði í vor og nú í nóvember síðastliðnum, tók þátt í Hönnunarmars og var á Handverkshátíðinni á Hrafnagili í sumar. „Það er afskaplega gott að taka þátt í sýningum af þessu tagi, það er svo auðvelt að gleyma sér í eigin heimi þegar maður er einn að vinna. Ég reyni að vera opin fyrir nýjum leiðum við að koma mér á framfæri og hef náð ágætis árangri í að gera Hjartalagið sýnilegt og þannig að fólk viti af mér,“ segir Hulda. Hún er með samnefnda vefsíðu, sölusíðu sem gengur vel, en þar er hægt að sjá úrvalið og panta vörur. Aðventuljósin vinsæl „Hjartað hefur alla tíð verið mér hjart- fólgið, mitt markmið er að breiða út hlýju, kærleika og jákvæðan boð- skap,“ segir Hulda, en á hennar vörum falleg orð sem hitta beint í hjartastað. „Mínar vörur eru gjarnan keyptar til gjafa og hugmyndin er sú að sá sem þiggur fái í leiðinni hlýja kveðju.“ Meðal þess sem Hulda hefur hann- að má nefna bækur af ýmsu tagi, up- pskrifta- og minningabók m.a., kort, kerti, platta og hjartalaga glugga- skraut með áletrun. Það nýjasta í vörulínu hennar eru kertaberar, þeir eru úr plexígleri og fást í þremur stærðum og nokkrum litum. „Mig langaði að gera eitthvað jólalegt og það nýjasta hjá mér núna eru aðventu- ljós, þá raða ég fjórum kerta berum saman svo úr verður ein heild,“ segir hún. „Ég hef alltaf heill ast af einfaldri hönnun.“ Þeir hlutir sem Hulda hannar eiga það sameiginlegt að pakkast vel, eru í flötum umbúð- um og segir hún það mælast sérlega vel fyrir hjá þeim sem eru að senda gjafir til útlanda. „Ég hef tekið eftir því að margir sem kaupa mínar vörur eru að gefa þær sínu fólki sem býr í útlöndum. Fólk vill gjarnan gefa eitt- hvað íslenskt, íslensk hönnun er vin- sæl og auðvitað skiptir þá líka máli að póstsendingakostnaður sé innan skynsamlegra marka,“ segir hún. /MÞÞ Gugga í Lóni, Hulda í Hjartalagi og Kristín frá Blúndum og blómum. Aðventuljós frá Hjartalagi. Kertaberar frá Huldu í Hjartalagi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.