Bændablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015
Upphafið að markvissri markaðssetningu íslenska hestsins:
Að tengja hestamenn nánar við náttúruna
HROSS&HESTAMENNSKA Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrun.hulda.palsdottir@gmail.com
Guðmundur Friðrik Björgvinsson
var kjörinn knapi ársins á
Uppskeruhátíð hestamanna í
nóvember. Var þetta í annað sinn
sem þessi ungi hrossabóndi og
tamningamaður hlýtur titilinn en
hann hampaði m.a. Íslands- og
heimsmeistaratitli á árinu. Hann
segir íþróttagreinina á réttri leið
eftir innleiðingu nýrra reglna.
Guðmundur og einkona hans,
Eva Dyröy, búa á Efri-Rauðalæk,
við Hellu, þar sem þau reka hrossa-
ræktarbú og tamningastöð og eru að
jafnaði með tvo aðstoðarmenn með
sér. Vinnuaðstaða tamningamanna
og aðbúnaður hefur tekið miklum
breytingum síðustu ár.
„Í dag er hugsað um alla þætti í
umönnun hesta. Þá eru sérfræðingar
fengnir í afmörkuð verkefni, svo sem
járningar, tannlækningar, raspanir,
kírópraktórar svo eitthvað sé nefnt.
Þegar við vorum að byrja var enginn
maður með mönnum nema hann gæti
séð um allt upp á sitt einsdæmi, frá
A til Ö. Ef maður hugsar til baka þá
hefur alveg ofsalega mikið breyst,
bæði hestahaldið og reiðmennskan.
Ég tala kannski eins og ég sé 100
ára,“ segir Guðmundur um leið og
hann sýnir blaðamanni aðstöðuna á
Efri-Rauðalæk; tvö glæsileg hesthús,
með 43 eins hesta stíur. Þar að auki
er öll aðstaða til tamninga innandyra,
bæði hringgerði og reiðskemma. Svo
má finna þar sérstaka baðaðstöðu
með hitalömpum og blásurum. Slík
aðstaða er kannski ekki hluti af
staðalbúnaði í dag.
„Ætli Hrímnir hafi ekki átt stór-
an þátt í að þessi aðstaða er hér,“
segir Guðmundur en huga þurfti
vel að hinum fannhvíta Hrímni frá
Ósi, aðalkeppnishesti Guðmundar
til nokkurra ára. Reglulegt bað og
snyrting sé hluti af því.
Búgreininni best borgið í sveitinni
Það eru fáir hestar í húsi þegar blaða-
maður sækir þau knapann heim en
Guðmundur segist yfirleitt reyna að
tæma húsið fyrir jól. Þá sé tími fyrir
kærkomið frí, enda er Guðmundur
alla jafnan önnum kafinn í hlutverki
hrossabónda og atvinnureiðmanns.
„Þetta er engin 8–4 vinna ef þú ætlar
þér langt. Það er því lítið rými fyrir
„Eva er til að mynda minn helsti
gagnrýnandi og stuðningsmað-
ur. Hún heldur utan um fóðrun og
umhirðingu hestanna, hefur glöggt
auga fyrir því sem og þjálfuninni.
Hún reddar mér oft fyrir horn, ef ég
tala beint út.“
Þau hjón hafa einnig stundað
ræktun hrossa frá upphafi búskap-
ar síns og í dag fæðast þeim 10–12
hross ár hvert. Þau hafa því góða
þekkingu á markaðsumhverfi
íslenska hestsins, en þeirra helstu
kaupendur eru erlendir.
„Við getum rekið okkar starfsemi
því við vinnum vöruna okkar frá
upphafi, frá ræktun þeirra og upp-
eldi, getum svo tamið þau sjálf og
fylgt þeim eftir. Ég tel hins vegar
algjörlega galið að fólk sé að standa
í þessu sem getur ekki unnið vöruna
sjálf. Þá verður ferlið einfaldlega of
dýrt,“ segir Guðmundur . „Í mínum
augum á búgreinin að vera í sveitun-
um hjá bændum sem geta fylgt vör-
unni eftir og komið henni til skila.
Það er ódýrara, þegar upp er staðið,
fyrir fólk að fara í sveitina og kaupa
sér hest frekar en að þvinga sig til að
ríða út á hestum sem fæddist þeim. Í
dag eru þeir hrossabændur, sem áður
seldu hross til útreiðafólks í höfuð-
borginni, í því að selja hross fyrir
kúnna. Fólk, sem áður keypti hross,
er kannski farið að framleiða fleiri
hross en hrossabændur rækta sjálfir.
Það held ég að sé ein af ástæðum
þess að það hefur verið lægð í sölu-
umhverfinu innanlands.“
Ræktar hugann
Guðmundur hefur verið lengi við-
loðandi hestamennskuna. Þótt hann
hafi ekki byrjað að ríða út fyrr en á
unglingsaldri leið ekki á löngu þar
til hann var farinn að vinna fyrir sér
með tamningum. Út frá því þróað-
ist svo keppnisreiðmennskan. Inntur
eftir því hvort það sé markmið út af
fyrir sig hjá mönnum eins og honum
að vera tilnefndur til verðlauna segir
hann svo ekki vera. Hann sé þó ákaf-
lega stoltur.
„Ég spái aldrei í það þegar keppn-
istímabilið hefst. En þetta er eitthvað
sem þróast áfram ef maður vinnur
vinnuna sína og ef maður er heppinn
að fá afburðagóða hesta. Á bikarnum
eru þó engin smá nöfn, magnaðir
reiðmenn sem hafa haft mikil áhrif.
Þetta eru engir pappakassar. Kannski
fyrir utan mig,“ segir hann og hlær.
Það getur varla verið tilviljun að
Guðmundur hafi hampað titli knapa
ársins tvisvar. Hvers konar mann þarf
til að ná slíkum afrekum?
„Maður þarf að vera á tánum og
tileinka sér nýja hluti. Nýir einstak-
lingar skjóta sífellt upp kollinum,
bæði ungir, frambærilegir knapar
sem og reiðmenn sem hafa kynnst
rétta hestinum. Það er hins vegar
ekkert verra að taka sér mann eins
og Sigurbjörn Bárðarson til fyrir-
myndar. Hann er alltaf í líkamlega
góðu formi og hugsar mikið um það.
Það er hluti af því að ná árangri. Ég
hugsa örugglega of lítið um þetta.
Ég hef alltaf verið hraustur, stundaði
boltaíþróttir sem barn og var sendur
snemma í sveit þar sem ég lærði að
vinna mikið og taka ábyrgð á hlutun-
um. Það hefur ávallt fylgt mér.“
Guðmundur segist hafa ræktað
hugann meira undanfarin ár, þáttur
sem hann telur vera lykilinn að
góðum árangri.
„Ég hef reynt að skipuleggja
hlutina meira og hugað betur að
andlegu hliðinni, bæði hjá sjálf-
um mér og hestunum. Ég komst
fyrir nokkrum árum yfir spólur
fyrir keppnismenn í róðri. Þar var
megininntakið að hugsa róðurinn
allan í smáatriðum, andardráttinn
og hverja einustu hreyfingu. Ég hef
tileinkað mér slíka hugsun, farið í
gegnum keppnir í huganum og það
hefur hjálpað mér mikið. Ég er búin
að leggja hestinn á skeið í huganum
hundrað sinnum og ég veit hvaða
hluti ég þarf að einbeita mér að
og hvað ég þarf að varast. Þetta er
kannski skrítið, en það virkar,“ segir
Guðmundur og bendir á að slíkur
hugsunarháttur tíðkist í mörgum
íþróttagreinum.
Einstakt jafnaðargeð
heimsmeistara
Árangur Guðmundar á árinu 2015
hefði þó aldrei komið til ef ekki
væri fyrir hestinn Hrímni frá Ósi,
en saman unnu þeir alla helstu titla
í fjórgangsgreinum á íþróttamótum
í ár. Ber þar hæst heimsmeistaratit-
ill í fjórgangi á Heimsleikunum í
Danmörku í ágúst.
„Ef allir hestar væru eins og
Hrímnir frá Ósi þá væri auð-
veldara að selja hross og sinna
þörfum markaðarins. Hrímnir er
yfirburðahestur sem allir geta riðið.
Ég gat boðið byrjanda jafnt sem
yfirburðareiðmanni á bak honum
og allir nutu hans. Það er mikil-
vægt að hafa kynnst hesti eins og
honum. Við kynntumst honum 5
vetra gömlum og þá var hann með
þetta einstaka jafnaðargeð, námsfús
og heilsteyptur hestur sem gerði allt
fyrir þig hvenær sem er. Agnar Þór
Magnússon tamdi hann og hann
talaði um að hann hafi verið svona
frá fyrsta degi,“ segir Guðmundur.
Inntur eftir því hvernig maður
vinnur hest upp til slíkra afreka
segir hann það hafa verið sérstak-
lega auðvelt með Hrímni.
„Það felst í því að halda honum
glöðum og ferskum. Vera sanngjarn
og biðja um lítið en gefa af sér til
hans. Hann gefur alltaf 100% í allt
sem hann gerir. Þetta er svipað
og að halda góðum starfsmanni í
vinnu. Ef þú hugsar um alla þætti
færðu þá borgaða til baka. Í þessu
felst líka mikil ástundun enda þarf
hestur að vera í mjög góðu líkam-
legu formi og jafnvægi til að geta
tekist á við svona keppni. Þá þarf
maður að vanda sig og biðja ekki
um of mikið of snemma.“
Guðmundur hefur ekki alveg
sagt skilið við Hrímni. Hann fer
reglulega til nýrra eigenda hans í
Danmörku þar sem hann heldur
námskeið um leið og hann þjálfar
gæðinginn. Þar unir hann sér vel,
að sögn Guðmundar, en hann er
nýttur sem útreiðar- og keppn-
ishestur konu sem fékk hann í 30
ára brúðkaupsafmælisgjöf frá eig-
inmanni sínum.
Hefur trú á langtímaverkefnum
En þrátt fyrir að ævintýri þeirra
Guðmundar og Hrímnis sé nú lokið
heldur Guðmundur ótrauður áfram.
Hann telur toppnum alls ekki náð.
„Það voru þættir á árinu sem ég
hefði viljað gera betur. Hrímnir slas-
aðist í fyrravetur og þótt við höfum
unnið allt sem við gátum unnið í ár
þá var hann ekki orðin jafn góður á
nokkrum sviðum og áður en hann
slasaðist. Það er því alltaf hægt að
finna leiðir til að bæta sig, og það
gerir hestamennskuna skemmtilega.
Ég er örugglega að verða eins og
gömlu karlarnir í sportinu, tel mig
vera orðin „grænni“ með tímanum.
Nú vil ég leggjast meira yfir hestana
og hef meiri trú á langtímaverk efnum
en áður. Ég gerði mikið grín að þessu
í gamla daga, fannst ég geta leikið
mér að ríða hesti upp einkunnaskal-
ann. Hugsaði bara um þetta sem kúlur
og prik. En í dag vil ég hafa meiri
stjórn á þessu, koma til leiks með vel
undirbúin hest þar sem hvert smáat-
riði er úthugsað.“
Guðmundur segir íþróttagreinina
einmitt vera að þróast í þá átt. Ekki er
langt síðan nýr leiðari fyrir dómara
í hestaíþróttum var tekin í notkun.
Viðmiðunarreglurnar undirstriki nú
bættar áherslur í íþróttagreinunum.
„Ég tel hestaíþróttina vera í góðri
þróun og ég er virkilega ánægður
með áherslurnar í nýja leiðaran-
um. Áhrif þessara breytinga sáust
á Heimsleikunum. Lagt er upp
úr vandaðri og nákvæmari reið-
mennsku. Gerðar eru kröfur um að
heimavinnan sé rétt unnin, öll still-
ingaratriði verða að vera í lagi og
hesturinn spennulaus. Þar með verða
gæði hverrar gangtegundar meiri.“
Knapi ársins segir að keppni á
hestum sé oft vanmetin íþrótt.
„Spjótkastari getur verið illa upp-
lagður og þar með staðið sig illa á
móti. Í hestaíþróttinni erum við alltaf
að takast á við heilbrigði og dagsform
tveggja aðila. Þetta er ekki hópíþrótt.
Þetta eru samskipti manns og mál-
leysingja. Það gerir áskorunina bæði
krefjandi og skemmtilega. Það mætti
meta þetta meira í íþróttaafrekum.“
Mynd / GHP