Bændablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 1
24. tölublað 2015 ▯ Fimmtudagur 17. desember ▯ Blað nr. 457 ▯ 21. árg. ▯ Upplag 32.000
Samtökin Landsbyggðin lifi með skoðanakönnun um búsetu utan höfuðborgarsvæðisins:
Sterkur vilji til búsetu
á landsbyggðinni
− konur í miklum meirihluta svarenda en setja skilyrði um heilbrigðisþjónustu, skóla og atvinnuöryggi
Í skoðanakönnun sem samtökin
Landsbyggðin lifi gerði nú í haust,
kemur fram að mikill meirihluti
aðspurðra, eða nærri 62%, sér
fyrir sér að búa á landsbyggðinni
í framtíðinni.
Könnunin var framkvæmd á
samskiptanetinu og var kynnt á
aðalfundi samtakanna hinn 9. nóv-
ember síðastliðinn. Úrtakið var ekki
ýkja stórt, eða 500 manns á aldr-
inum 16 til 80 ára af öllu landinu.
Það gefur þó sterkar vísbendingar
um afstöðu fólks til búsetu á lands-
byggðinni, en alls svöruðu 464,
eða 92,8%, sem er óvenju gott
svarhlutfall.
Var könnunin gerð sem hluti
af vinnu vegna samstarfs samtak-
anna við systursamtök sín í Evrópu
og þátttöku í ráðstefnu European
Rural Parlament sem haldin var í
bænum Schärding í Austurríki 7.
nóvember síðastliðinn. Þar voru
samankomnir 240 fulltrúar lands-
byggðasamtaka í 40 Evrópulöndum,
sem öll glíma við sama vanda vegna
versnandi stöðu dreifbýlishéraða. Á
þessu þingi voru samtök frá nærri
öllum ESB-ríkjunum auk Albaníu,
Armeníu, Hvíta-Rússlands, Bosníu
Herzegovínu, Makedoníu, Kósovó,
Íslands, Noregs, Serbíu, Tyrklands
og Úkraínu. Þar hafa menn verið
að reyna að greina grunnástæður
þeirrar þróunar sem átt hefur sér
stað með miklum fólksflutningum
til stóru borganna. Einnig hvað þurfi
til að hægt sé að halda í unga fólkið.
Könnun samtakanna Landsbyggðin
lifi var einmitt hugsuð til að varpa
einhverju ljósi á þessa hluti.
Nú er í gangi önnur könnun sam-
takanna í svipaða veru í samvinnu
við Háskólann á Akureyri.
Konur í miklum meirihluta
Konur voru í miklum meirihluta
þeirra sem svöruðu, eða 68,5% en
karlar voru 31,5%.
Þegar spurt var hvar svarendur
byggju, þá voru íbúar höfuðborgar-
svæðisins með 158 svör, eða 34,1%.
Svarendur með búsetu í bæjum
úti á landi voru 148, eða 31,9%.
Svarendur með búsetu í þorpum eða
minni bæjarfélögum voru 111 eða
23,9% og svarendur búsettir í sveit
voru 47 eða 10,1%.
Mikill meirihluti segist vilja
búa á landsbyggðinni
Athygli vekur, í ljósi þess hvar
rúmlega þriðjungur svarenda sagð-
ist búa, að 284, eða 61,9% þeirra
sem tóku afstöðu, sögðust sjá það
fyrir sér að búa á landsbyggðinni
í framtíðinni. Þá sögðust 125, eða
27,2%, sjá fyrir sér að búa í fram-
tíðinni á höfuðborgarsvæðinu, en
50, eða 10,9 %, sáu fyrir sér að búa
erlendis. Þá tóku fimm svarendur
ekki afstöðu til þessarar spurningar.
/HKr.
− Sjá nánar á bls. 2
62%
27%
11%
Hvar sérð þú þig búa í framtíðinni?
Á landsbyggðinni Á höfuðborga svæðinu Erlendis
Mjólkurframleiðsla:
Fullt afurða-
verð út 2016
Mjólkurframleiðendur munu fá
fullt afurðaverð frá MS út árið
2016 þrátt fyrir að mjólkurfram-
leiðsla í landinu sé umfram mark-
aðsþarfir.
Egill Sigurðs son, formaður
stjórnar MS,
segir að út frá
rekstrarlegum
f o r s e n d u m
sé óhagstætt
að greiða
bændum fullt
a f u r ð a s ö l u -
verð fyrir alla
mjólk sem þeir
framleiða en að
það verði gert út
árið 2016 eins
og lofað hafi
verið.
Hann segir að framleiðsla á
mjólk hérlendis sé umfram mark-
aðsþörf Íslendinga og að sem stend-
ur sé tap á því að flytja út mjólk-
urvörur og að MS takið höggið af
því. Stöðugt er leitað nýrra mark-
aða fyrir íslenskar mjólkurafurðir
og gott útlit sé fyrir sölu á skyri í
Sviss og Bandaríkjunum.
Að sögn Egils er gott fyrir
greinina í heild að gefa mjólkur-
framleiðslu í landinu frjálsa enda
hafi kvótakerfið bæði verið dýrt og
íþyngjandi síðustu árin en vissu-
lega muni breytingin á kerfinu hitta
framleiðendur misjafnlega fyrir.
/VH
− Sjá nánar á bls. 8
Kúabændur fram-
leiða talsvert um-
fram markaðsþörf.
Mynd / HKr.
Að tengja
hestamenn nánar
við náttúruna
28
Með ástríðu
fyrir eðalsafa
34
Aðventumarkaður í
Félagsgarði í Kjós
46