Bændablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015
Hæsta timburhús í heimi tekið í notkun:
Fjórtán hæðir og bindur koltvísýring meðan það stendur
Fyrir skömmu var tekið í notkun í
Björgvin í Noregi hæsta timburhús
sem reist hefur verið í heiminum
fram til þessa. Húsið er fjórtán
hæðir, grind úr límtré sem tilbún-
um einingum er raðað inn í.
Metið stendur þó ekki lengi því
ákveðið hefur verið að reisa 20 hæða
timburháhýsi í Vancouver í Kanada
sem áætlað er að verði tilbúið haustið
2017. Kolefnisfótspor timburhúsa
er sáralítið miðað við hús úr stáli og
steinsteypu og timburhús geyma í sér
kolefnið meðan þau standa.
Norska blaðið Dagsavisen grein-
ir frá þessu og ræðir við Kjell Arne
Malo hjá mannvirkjastofnun norska
tækni- og náttúruvísindaháskólans
NTNU í Þrándheimi. Hann spáir því
að sex til tíu hæða blokkir úr timbri
verði algeng sjón í norskum bæjum
og borgum á komandi árum. Malo
stýrir fjögurra ára verkefni sem felst
í að þróa hentugar aðferðir við smíði
stórra timburbygginga sem standist
kröfur um hagkvæmni og gæði.
Norsk, sænsk og þýsk fyrirtæki taka
þátt í verkefninu ásamt arkitektum,
verkfræðingum, athafnamönnum
og birgjum en norska landbúnaðar-
og matvælaráðuneytið styrkir það
gegnum Forskningsrådet, norska
rannsóknarráðið.
Bindur koltvísýring
Timbur er eina endurnýjanlega
byggingarefnið sem völ er á og
stuðlar að bindingu koltvísýrings.
Sylvi Listhaug, landbúnaðar- og
matvælaráðherra Noregs, segir í
samtali við Dagsavisen að þetta sé
einmitt áhersluatriði hjá loftslags-
nefnd Sameinuðu þjóðanna. Listhaug
telur að nota megi timbur meira í
byggingariðnaði í borgum og bæjum.
Auknir flutningar fólks í þéttbýli og
nágrenni þéttbýlisstaða þrýsti á að
landið verði nýtt betur og þá þurfi
að byggja upp í loftið. Til þess henti
timbur mjög vel enda létt og sterkt
efni og fljótlegt að reisa timburhús.
En þrátt fyrir þessa góðu og aug-
ljósu eiginleika timbursins eru há
timburhús ekki algeng sjón í norsku
þéttbýli. Ástæðu þess rekja menn
helst til brunans mikla sem varð í
Álasundi árið 1904. Kjell Arne Malo
segir að eftir brunann hafi verið lagt
bann viðað reisa hærri timburhús en
tveggja hæða í þéttbýli þar í landi.
Því banni hafi ekki verið aflétt fyrr
en 1997 og þess vegna megi segja að
þróun byggingartækni fyrir stórhýsi
úr timbri hafi legið niðri í heila öld.
Malo tekur í sama streng og
Listhaug og bendir á að timbur beri
höfuð og herðar yfir önnur bygging-
arefni þegar litið sé til loftslags-
málanna. Við framleiðslu sements
og steinsteypu losni mikill koltví-
sýringur út í andrúmsloftið og við
stálframleiðslu sé miklu magni af
kolum brennt með sömu afleiðing-
um. En þegar trén vaxa binda þau
koltvísýring og meðan timburhúsin
standa geymist sá koltvísýringur vel
í byggingunni sjálfri.
Heimsmetið stendur ekki lengi
Sjálfbærni og binding koltvísýr-
ings hafði mikið að segja um þá
ákvörðun byggingafélagsins BOB
BBL að reisa þessa fjórtán hæða
byggingu sína úr timbri en ekki
öðrum byggingarefnum. Það segir
Kenneth Øivind Monsen, kynningar-
fulltrúi fyrirtækisins. Byggingin er
kölluð Tréð (Treet). Grindin er gerð
úr rammgerðum límtrésbitum og
byggingarlagið hið sama og algengt
er við smíði trébrúa. Í grindina var
svo raðað tilbúnum timbureining-
um sem framleiddar voru í Eistlandi.
Monsen segist aðspurður telja að
timburháhýsum muni fjölga á kom-
andi árum enda lofi húsið nýja í
Björgvin mjög góðu.
Heimsmetið í Björgvin mun ekki
standa lengi því nú er í deiglunni
enn hærri timburblokk í Vancouver
í Kanada. Sú verður tuttugu hæðir og
er áætlað að hún verði tilbúin eftir
tæp tvö ár, haustið 2017. Vaxandi
áhugi er á slíkum byggingum víða
um heim og má búast við að fleiri
og enn hærri timburháhýsi rísi á
komandi árum. Nútímalegar timbur-
byggingar eru mjög öruggar og eld-
traustar. Þær hafa jafnvel yfirburði
yfir byggingar úr stáli því stál getur
bráðnað í eldsvoða en vel frágengið
timbur er lengi að brenna og heldur
styrk sínum mjög lengi þótt kvikni í.
Áform sem þessi eru mjög í takt
við loftslagsumræðuna og lífhagkerf-
ið svokallaða sem mjög er til umræðu
um þessar mundir. Norðmen hafa
tekið mjög afgerandi og ákveðin
skref í átt til lífhagkerfisins og vinna
ekki aðeins á heimavelli að slíkum
málum heldur víða um heim, ekki
síst í fátækari löndum. Trond Einar
Pedersen, verkefnisstjóri hjá norska
rannsóknarráðinu Forskningsrådet,
segir að stuðningur við sjálfbærni-
verkefni sé lyftistöng fyrir rannsóknir
á sviði matvælaframleiðslu, nútíma-
legra byggingarhátta, samgangna
og velferðarþjónustu. Rannsóknir á
hringrásum í umhverfinu og aðferð-
um til betri auðlindanýtingar séu snar
þáttur í þeim verkefnum sem nú sé
unnið að. /skogur.is
Þrátt fyrir góða og augljósa eiginleika
timburs eru há timburhús ekki algeng
sjón í þéttbýli.