Bændablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015
Aðstandendur stórrar versl-
unarmiðstöðvar í Tókýó, Seúl
eða Peking, það skiptir reynd-
ar ekki máli hvar, tóku sig til
og létu hanna fyrir sig margra
metra háan kross.
Í stað Krists þótti þeim
viðeigandi að setja brosandi
jólasvein á krossinn og hengja
hann upp til að geðjast vest-
rænum viðskiptavinum sínum
á aðventunni.
Sagan um krossfesta jóla-
sveininn hefur nokkrum sinnum
birst í fjölmiðlum. Hún var birt
í The Economist, Los Angeles
Times og The Independent árið
1993. Árið 1995 var sagan í The
Washington Post, Christianity
Today birti hana árið 1996 og
fyrir skömmu var sagt frá kross-
festa jólasveininum í fréttatíma
í sjónvarpinu í Svíþjóð.
Að sögn kunnugra ganga
Japanir allra þjóða lengst í að
markaðssetja jólin. Þar í landi
er algeng sjón í desember að sjá
ungar konur í nunnubúningum
syngja auglýsingar við vestræn
jólalög og að fólk sendi jólakort
sem sýna Maríu mey lyfta sér til
flugs á kústi, umkringda jólaálf-
um sem hafa flösku af saki sér
við munn. Um jólin er einnig
algengt að ungir elskendur leigi
sér hótelherbergi sem búið er
að skreyta með jólaskrauti og
stóru jólatré. Þegar elskendurnir
koma á hótelið fylgir jólasveinn-
inn þeim upp á herbergi og þar
eiga gestirnir girndarstund við
undirleik vinsælla jólalaga.
Fyrir allmörgum árum var
sagt frá því í íslenskum fjöl-
miðlum að ungur maður hefði
fest í reykháf í fjölbýlishúsi í
Reykjavík. Maðurinn mun hafa
verið við skál og ætlað að kom-
ast inn heima hjá sér í gegnum
reykháfinn þar sem hann hafði
týnt lyklunum. Sem betur fer
heyrðu íbúar hússins hróp frá
manninum og var honum bjarg-
að úr prísundinni. Uppátækið
vakti að vonum athygli og mikið
var hlegið að óförum mannsins
enda ekki skrýtið því sagan er
bráðfyndin fyrst ekki fór verr.
Víða erlendis er sagt að
jólasveinninn komi með gjaf-
irnar niður um skorsteininn og
á hverju ári spretta upp sögur
sem segja frá ólánsömum jóla-
sveinum sem festa sig í skor-
steininum.
Ein útgáfa af sögunni segir
frá manni sem ætlar að koma
fjölskyldu sinni á óvart með því
að klæða sig upp í jólasveina-
búning og koma niður um reyk-
háfinn á jóladag. Fjölskyldan
átti ekki von manninum heim
um jólin vegna þess að hann
hafði sagst þurfa að sinna við-
skiptaerindum og fór hún því í
heimsókn til vinafólks. Tilraun
mannsins til að fara niður reyk-
háfinn fór algerlega út um þúfur,
hann festist og eftir nokkurra
klukkutíma brölt og hróp kafn-
aði hann. Þegar fjölskyldan kom
heim seinni part jóladags grun-
aði hana að sjálfsögðu ekki neitt
og þegar líða tók á kvöldið var
ákveðið að kveikja upp í arnin-
um.
Í annarri útgáfu sögunnar
er sagt frá manni sem hverfur
um jólin. Maðurinn fannst í
reykháfnum um áramót þegar
fjölskyldan rann á lyktina, hann
var í jólasveinabúningi og með
gjafapoka á bakinu.
Höfundar dægurlagatexta
hafa einnig tekið söguna upp
á sína arma því Ella Fitzgerald
gerði lagið Santa Claus Got
Stuck in My Chimney vin-
sælt á sínum tíma og Gisele
MacKenzie söng Santa is Too
Fat for the Chimney. /VH
Jólasveinninn fastur
í skorsteininum
STEKKUR
UMHVERFISMÁL&LANDBÚNAÐUR Ari Trausti Guðmundsson
Jarðfræðingur og rithöfundur
I Algengt er að meta sem svo að skóglendi á Íslandi, kjarr
og hávaxin birki- og reynitré hafi
einkennt land undir 400-500 m
hæðarlínu. Má ætla að mikið af
núverandi mólendi, sumar mýrar
og stór örfoka svæði hafi borið
trjágróður, sennilega milli 20 og
30% landsins eða 25.000 ferkm ef
við veljum miðtölu, víða samfellt
svo tugum ferkílómetrum skipti.
Nú til dags lætur nærri að innlend
og erlend tré þekki mörg smásvæði,
samtals um 2,0% af landinu eða um
2.000 ferkílómetra, þar af eru birki-
skógar 1.500 ferkílómetrar. Um
90% skóglendis er horfið. Það er
neikvætt af þeirri einföldu ástæðu
að skógur, hvort sem er kjarr eða
hávaxin tré, er ein mikilvægasta
náttúruauðlind heims. Tré binda
meiri koltvísýring, stærðar vegna,
en aðrar jurtir og framleiða um leið
súrefni í miklum mæli. Tré binda
jarðveg af miklum móð, veita skjól
og leiða til þess að mólendisgróð-
ur festir rætur og heldur velli milli
skóglenda og ofan við trjámörk.
II Gróðursagan bendir til þess að gróðurlendi á Íslandi sé
harðgert, en ekki eins viðkvæmt,
almennt séð, líkt og oft er gefið
í skyn. Til eru viðkvæm vist-
kerfi, t.d. mosavaxið land, en það
mega teljast undantekningar enda
þótt mosavaxin hraun geti verið
stór. Birkiskógar og undirgróður
þeirra eru harðgerð gróðurlendi,
mólendisgróður þolir mikið álag,
hraun eru fljót að taka á sig græn-
an slikju, melar eru undrafljótir að
gróa upp neðan 400-500 metranna,
jafnvel í foksandi þrífast jurtir,
og votlendisgróður er seigari en
flest annað. Í raun á styrkur og
aðlögunarhæfni íslensks gróðurs
að hleypa okkur kapp í kinn. Einnig
ættum við að hætta að láta eins og
flest gróðurlendi þoli hvorki beit né
umtalsverða umferð gangandi fólks
eða hesta. Þolmörk í þeim efnum
eru sannarlega til og kalla á beitar-
stjórnun og stígagerð eða vegi en
það er önnur saga. Akstur er fljótur
að skemma gróðurlendi, einkum
akstur torfæruökutækja nú orðið,
og þar eru þolmörkin afar lág og
víðtæk bönn skulu gilda. Þegar öllu
er á botninn hvolft er það auðvitað
svo að vistkerfin hefðu breyst hvort
sem land var numið eða ekki, ein-
faldlega vegna veðurfarsbreytinga
frá 9. öld til 21. aldar, einkum milli
1400 og 1900. Víða í mógröfum
sjást tvö birkilurkalög frá þeim
tíma er mýrar voru mólendi fyrir
þúsundum ára. Sennilega hefði þó
stærstur hluti hins forna skóglend-
is, án íhlutunar manna, haldið velli
ofan við 400 m hæðarlínu.
III Votlendi er vegna margra hliða býsna merkilegt.
Sem vistkerfi er það mikilvægt
vegna fjölbreyttra jurta og smá-
dýralífs, það er ýmsum fugla-
tegundum afar mikilvægt og hluti
af vatnskerfi landsins ofan fastra
jarðlaga. Í votlendi binst kolefni,
sbr. mó sem allir þekkja. Grunnar
tjarnir og mýrlendi er í stöðugri
þróun, vatnsstæði gróa upp og
verða að votlendi á meðan mýrar
geta þornað og orðið að mólendi
en breytt vatnsrennsli t.d. framan
við hopandi jökla, framkallar nýtt
votlendi. Á því leikur enginn vafi
að of mikið hefur verið ræst fram af
votlendi í byggð og nálægt byggð.
Framræslubylgjan sem hófst upp
úr 1945 var fram haldið án þess
að fyrir lægi vel metin þörf býla
fyrir nýtt þurrlendi. Enginn vafi
leikur á að of mikið hefur verið
ræst fram af votlendi í byggð og
nálægt byggð. Tilgangurinn er að
efla túnrækt og búa til beitiland.
Framræslubylgjan hófst fyrir
alvöru upp úr 1945. Henni var
fram haldið án þess að fyrir lægi
vel metin þörf býla fyrir nýtt þurr-
lendi. Talið er að grafnir hafi verið
um 32.000 km af skurðum! Með
því voru um 40% alls votlendis
þurrkuð, um 3.900 km2 af 10.000
km2.
Og eftir að býlum tók að fækka
fengu framræsluskurðir að vera
opnir áfram. Þar með er ekki sagt
að hvergi þurfi að ræsa fram land
nú til dags. Hitt er alveg ljóst að
víða má endurheimta votlendi,
með því að loka skurðum eða
græða upp blauta sanda. Við fram-
ræslu votlendis losnar kolsýring-
ur (koltvíildi) í verulegu magni
(milljónir tonna á ári) þegar efna-
hvörf verða við loftun og þornun.
IV Allar jurtir með blað-grænu binda kolsýring úr
lofti eins og áður segir, í stofni/
stöngli, öðrum vefjum, rótum og
jarðvegi við jurtirnar. Skógrækt
og uppgræðsla, ásamt endurheimt
votlendis, eru þar með árangursrík-
ar aðferðir við að hamla gegn lofts-
lagshlýnun og súrnun sjávar. Tré,
stærðarinnar vegna, eru stórtæku-
st. Margvíslegar rannsóknir gefa
ýmsar tölur til kynna. Til dæmis
má reikna út að 20-25 íslensk
tré, sem lifa í 90 ár, þurfi til að
kolefnisjafna útblástur eftir notk-
un meðalbíls í eitt ár. Samkvæmt
Vísindavef HÍ (23. nóv. 2000) er
bindihraði kolefnis í gróðri hér-
lendis tiltölulega hár. Í ræktuðum
skógum er binding kolefnis mest:
1-3 tonn af hreinu kolefni C/ha á
ári). Hér er ha = hektari og C =
hreint kolefni. Binding er einnig í
gróðri á uppgræðslusvæðum, 0,01-
0,5 tC/ha á ári, og í jarðvegi þar
sem sáð er í sendnar auðnir verð-
ur hún 0,6 tC/ha á ári. Samkvæmt
skýrslum Alþjóðlegu loftslags-
nefndarinnar (ICCP) er bindihraði
við uppgræðslu auðna að meðaltali
0.25 tC/ha á ári. Binding kolefnis
við uppgræðslu hérlendis er því
meiri en þetta meðaltal og í skóg-
rækt er svipað uppi á teningnum.
Talið er að árlega binda megi
meira en milljón tonn af kolsýr-
ingi á Íslandi með margvíslegum
hætti þegar fram í sækir, mest með
nýskógrækt og umhirðu skóga sem
fyrir eru. Eitt verður þó að ítreka:
Kolefnisbinding á ekki að nota sem
mótvægi við að t.d. auka notkun
olíu og bensíns. Þá notkun verð-
ur að minnka og binda samtím-
is sem mest af kolefni. Ástæðan
er einföld. Við verðum að hægja
á aukningu kolsýrings í lofti og
lækka magn þess sem fyrir er.
V Endurheimt landgæða, þar með talin skógrækt snýr að
mörgum aðilum, ríki, sveitarfé-
lögum, margs konar áhugafólki
og auðvitað bændum. Starfið í
heild krefst skipulags og lágmarks
samkomulags ólíkra skoðana- og
notendahópa. Nokkur hundruð
skógarbændur eru að störfum
og á mörgum býlum er stunduð
skógrækt til að bæta og fegra næsta
umhverfi. Enn fleiri bændur taka
þátt í uppgræðslu auðna eða illa
farins lands. Smám saman verður
lífi blásið aftur í opinbera aðstoð
við að endurheimta votlendi. Á
öllum þessu sviðum er rúm fyrir
enn meiri vinnu bænda og fram-
lög þeirra. Vörslumenn lands geta
áorkað miklu, í hlutfalli við umsvif
og efnahag. Er ekki kominn tími
til þess að setja saman raunhæfar
áætlanir fyrir landshluta um hvern-
ig binda megi kolefni í landbúnaði
á sem árangursríkastan og hag-
kvæmastan hátt?
Hve mikilvæg er kolefnisbinding?− 8. grein
Mynd / HKr.
Norðursigling tilnefnd til stærstu umhverfisverðlauna Evrópu
Norðursigling hefur verið til-
nefnd til stærstu umhverfis- og
viðskiptaverðlauna Evrópu,
GreenTec Awards, í flokki ferða-
mála.
Guðbjartur Ellert Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Norðursiglingar,
segir í frétt á heimasíðu félags-
ins að það sé mikill heiður fyrir
félagið og viðurkenning á þeirri
umhverfisvænu vegferð sem það
hafi markað sér.
Norðursigling er fyrsta hvala-
skoðunarfyrirtækið í heiminum
sem býður upp á hvalaskoðunar-
siglingar án þess að jarðefnaelds-
neyti sé notað en fyrirtækið hefur,
í samstarfi við fleiri aðila, þróað
einstakan og umhverfisvænan
rafbúnað sem knýr skonnortuna
Opal. Tilnefningin vekur, að sögn
Guðbjarts, athygli á Íslandi sem
umhverfisvænum áfangastað.
Netkosning er nú hafin um hver
þeirra tíu aðila, sem tilnefndir eru
í hverjum flokki, lendir í einu af
efstu þremur sætunum en dóm-
nefnd velur síðar sigurvegarann
úr þeim hópi. Verðlaunin eru veitt í
sextán flokkum og er Norðursigling
tilnefnd í flokknum „Ferðalög“
(e.Travel). Norðursiglingarmenn
biðla til landsmanna um að leggja
sér lið með því að taka þátt í net-
kosningunni, en hún fer fram á vef-
slóðinni; www.greentec-awards.
com og er öllum frjálst að taka þátt.
Nýsköpun Norðursiglingar
þykir einstök og hefur vakið
athygli víða um heim. Hlaut fyrir-
tækið nýverið silfurverðlaun World
Responsible Tourism Awards 2015
á World Travel Market (WTM) í
London sem er ein stærsta ferða-
sýning í heiminum. Þetta var jafn-
framt í fyrsta skiptið sem íslenskt
fyrirtæki hefur verið tilnefnt til
verðlaunanna.
Norðursigling hefur einnig
hlotið verðlaun og viðurkenn-
ingar hérlendis en fyrirtæk-
ið hlaut Umhverfisverðlaun
Ferðamálastofu í annað sinn nú í
ár og var valið fyrirtæki ársins af
ferðaþjónustuaðilum á Norðurlandi
í haust. /MÞÞ