Bændablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015
Það var ljúf aðventustemning í
Félagsgarði í Kjós síðasta laugar-
dag, 12. desember. Á annan tug
smáframleiðenda matvæla og hand-
verksfólk úr sveitinni sýndu þar
afurðir sínar og buðu til sölu.
Um árlegan markað er að ræða
sem haldinn er alla laugardaga á
aðventunni. Kvenfélag Kjósarhrepps
seldi heitt súkkulaði og bakkelsi, en
allur ágóði rennur til líknarmála.
Fólk kemur árlega til að kaupa
hangikjötið frá Kiðafelli
Í kjallaranum voru þau Sigurbjörn
Hjaltason og Bergþóra Andrésdóttir
frá Kiðafelli í Kjós, með sparihangi-
kjötið sitt, til að mynda sauðalæri,
lambalæri, framparta og fleira.
Sigurbjörn segir að margir komi ár
eftir ár til að kaupa jólahangikjötið
af þeim á þessum markaði.
Vinnur nautakjötsafurðir sínar
og selur beint frá býli
Í aðalrými markaðarins var Sveina
Sveinsdóttir frá Sogni í Kjós með
fjölbreytta vörulínu sína. Hún er
menntuð matreiðslumeistari og
vinnur afurðir úr holdanautum
sínum.
Kynna afurðir foreldra sinna
Ragnheiður og Eygló Smáradætur
kynntu vörur foreldra sinna. Móðir
þeirra er handverkskona og pabbinn
gaf út matreiðslubókina Pabbi, áttu
uppskrift? á síðasta ári.
Þá var Örn Viðar Erlendsson hjá
BullArt mættur með fallegu hand-
smíðuðu skartgripi sína úr nauta-
beinum og Sigríður Guðmundsdóttir
með textílvörur sínar, handunnar
vörur úr ull og silki.
Sigurlína Jóhannesdóttir,
frá Flekkudag í Kjós, var með
langreykt hangikjöt af fullorðnu,
tveggja til fjögurra vetra. Hún býr
á Snartarstöðum á Melrakkasléttu
og var með Sigríði Gísladóttur sér
til halds og trausts, en hún er frá
Hálsi í Kjós.
Sigríður Klara Árnadóttir
stóð vaktina sem viðburðastjóri
Kjósarhrepps. Hún er auk þess fram-
kvæmdastjóri yfir verkefni á vegum
hreppsins sem felst í því að innleiða
hitaveitu. /smh
Aðventumarkaður í Félagsgarði í Kjós
Systurnar Ragnheiður og Eygló Smáradætur kynntu vörur foreldra sinna.
Sigurlína Jóhannesdóttir og Sigríður Gísladóttir með langreykt hangikjöt.Sigríður Klara Árnadóttir stóð vaktina sem viðburðastjóri Kjósarhrepps.
Sveina frá Sogni í Kjós hefur verið dugleg að þróa vörur úr afurðum sínum. Sigríður Guðmundsdóttir með textílvörur sínar, handunnar vörur úr ull og silki.
Örn hjá BullArt var mættur með fallegu skartgripi sína úr nautabeinum.
Sigurbjörn Hjaltason með falleg tvíreykt hangilæri frá Kiðafelli í Kjós. Myndir / smh