Bændablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015
Allri einangrun dýra hefur verið
hætt í Hrísey, en starfsemi af því
tagi hefur verið í eynni í 40 ár, frá
árinu 1975 þegar þangað voru
flutt naut af Galloway-kyni. Þar
var einnig um 17 ára skeið starf-
semi á vegum Svínaræktarfélags
Íslands og loks var þar einnig
rekin einangrunarstöð fyrir gælu-
dýr. Starfsemi af þessu tagi hefur
verið lögð niður, en síðustu naut-
gripirnir voru seldir og fluttir upp
á fastalandið í lok nóvember.
Kristinn F. Árnason, fyrrverandi
bússtjóri í Hrísey og einn fjórmenn-
inga sem áttu félagið Holda, sem á
liðnum árum hefur verið með naut-
griparækt í Hrísey, segir að alls hafi
49 gripir, kálfar og fullorðnir verið
í eynni. Þeir voru seldir „á góðan
bæ í Þingeyjarsýslu,“ eins og hann
orðar það og eru nú þangað komnir.
„Þar með var þessari sögu lokið, hún
hófst fyrir 40 árum, árið 1975 þegar
fyrstu Galloway-gripirnir
komu hingað. Síðan hafa einnig
komið gripir af tegundinni Angus
og Limosine og í þeim hópi sem
fluttur var í land um daginn voru
líka blendingar af þessum tegund-
um. Allt kostagripir,“ segir Kristinn.
Félagið Holdi hefur haft um 40 ha
tún til umráða og annast þar heyöfl-
un fyrir sína starfsemi, en Kristinn
segir að Akureyrarbær eigi
túnið og óvíst hvað við það
verður gert nú.
Húsin standa tóm
Ríkið á fjós og fleiri eignir
í Hrísey, samtals upp á tæp-
lega 750 fm og hafa þær
verið auglýstar til sölu. Þá
á Svínaræktarfélagið um
400 fm húsnæði í eynni og gælu-
dýrastöðin var rekin í um 200 fm
húsnæði. Engin starfsemi fer nú fram
í því húsnæði sem nýtt var í Hrísey
í þessu skyni. Gæludýrastöðinni var
lokað á liðnu hausti, en eftirspurn
hafði dregist mjög saman eftir að
sams konar stöð var reist í námunda
við Keflavíkurflugvöll fyrir nokkrum
árum. Svínaræktarfélagið var með
starfsemi í sínu húsi um 17 ára skeið.
Svín voru flutt inn frá Noregi í því
skyni að kynbæta íslenska stofninn
og í eitt sinn frá Finnlandi. Sú starf-
semi hefur verið aflögð.
Kristinn sinnir daglegum störfum
á Akureyri og félagar hans í Holda
eru einnig í annarri vinnu hér og hvar,
þannig að búskapurinn var rekinn
samhliða öðru.
Bæði léttir og eftirsjá
„Að því leyti er ákveðinn léttir að
hafa lokað þessu, en auðvitað í
leiðinni líka eftirsjá, þetta var ágætt
tímabil og margir sem þekktu til
Hríseyjar út af þessari starfsemi,“
segir Kristinn. /MÞÞ
7 daga heilsunámskeið dagana 10.-17. janúar 2016
Komdu með!
Á námskeiðinu lærum við að bera ábyrgð á eigin heilsu með því að huga að mataræði, reglulegri hreyfingu, streitu
og andlegri heilsu. Á námskeiðinu er lögð áhersla á hressilega hreyfingu, hollt mataræði, fræðslu, slökun og útivist í
fallegu umhverfi. Farið verður í markmiðasetningu í heilsueflingu og mikilvægi þess að horfa lengra fram í tímann.
Verð pr. einstakling með gistingu er 130.000 kr.
í einbýli en 123.500 kr. í tvíbýli.
Hressandi námskeið fyrir þá sem vilja koma sér af stað, setja sér markmið varðandi
hreyfingu og mataræði og huga að andlegri líðan.
- berum ábyrgð á eigin heilsu
Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags
Íslands
Nánari upplýsingar og skráning á heilsustofnun.is
eða í síma 483 0300.
10.-17.
2016
40 ára sögu Galloway í Hrísey lokið
− um 50 gripir seldir úr eynni upp á fastalandið
Kristinn F. Árnason, fyrrver-
andi bússtjóri í Hrísey og
einn eigenda Holda, stóð í
ströngu á dögunum þegar
úr eynni og upp á land.
Myndir / Ásgeir Magnússon