Bændablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 73

Bændablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 73
73Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015 Lesendabás Í WorldFeng, upprunaættbók íslenska hestsins, eru ýmsar upp- lýsingar sýndar með táknmyndum á grunnsíðu hvers grips. Í sjónhendingu má því sjá á grunnsíðunni hvaða upplýsingar eru til um viðkomandi grip. Nokkur þessara tákna tengjast DNA-sýnum. Til útskýringar á þessum táknum er þetta að segja og vert fyrir hrossa- ræktendur að þekkja: DNA Táknar að DNA-stroksýni hafi verið tekið úr hrossinu en grein- ingu er ekki lokið og/eða, sem er afar fátítt, að ekki hafi tekist að greina neitt úr sýninu (sýnataka hefur mis- farist). Ef smellt er á flipann DNA/ Blóð fyrir ofan grunnmyndina má m.a. sjá númer DNA-sýnis, sýna- tökuaðila, dagsetningu sýnatöku auk skýringartexta (DNA-greining í vinnslu). Ef aðeins þetta tákn kemur fram og liðinn er vel ríflega mánuður frá sýnatöku er ljóst að einhverjir hnökrar eru í ferlinu, s.s. að sýna- tökumaður hefur ekki skilað sýninu inn til greiningar eða sem fyrr segir að sýnið reyndist ónýtt. Í þessu sam- hengi þá greinir þekkingarfyrirtækið Matís öll innkomin sýni a.m.k. innan mánaðar nema sérstaklega sé óskað meiri hraðmeðferðar sem er kostnað- arsamari en hefðbundið ferli. Táknar að sýnið hafi verið greint og niðurstöður liggi fyrir. Ef engin sýni eru fyr- irliggjandi úr skráðum for- eldrum gripsins birtist eftirfarandi texti undir DNA/blóð-flipanum: Ekki hægt að sanna ætterni þar sem sem DNA greining fyrir foreldra er ekki til. Táknar að greint sýni liggi fyrir og að samkvæmt sjálfvirkum samanburði W-Fengs, við sýni úr skráð- um föður, mæli ekkert gegn því að föðurætt sé rétt. Táknar að greint sýni liggi fyrir og að samkvæmt sjálfvirkum samanburði W-Fengs, við sýni úr skráðri móður, mæli ekkert gegn því að móðurætt sé rétt. Táknar að greint sýni liggi fyrir. Enn fremur að samkvæmt sjálf- virkum samanburði W-Fengs, við sýni úr skráðum foreldrum, mæli ekkert gegn því að ætterni sé kórrétt. Táknar að blóðsýni sé til úr gripnum, varðveitt á Tilraunastöð HÍ að Keldum. Afar mikilvægt er að eigendur/ ræktendur fylgist með framgangi sýnavinnslunnar og niðurstöðum greininga sinna hrossa. Ef til að mynda niðurstaða er komin í grein- ingu á folaldi fæddu 2015, sem á skráða og DNA-greinda foreldra, en engin sönnunartákn birtast ( / ) – þá er ljóst að eitthvað er athuga- vert við ætternisskráninguna. Textinn sem WorldFengur birtir í slíkum til- fellum er eftir málsatvikum: DNA- greining er í skoðun / Ætterni (faðir) til skoðunar / Ætterni (móðir) til skoðunar. Ráðunautar á hrossarækt- arsviði RML eru boðnir og búnir að liðsinna og aðstoða ræktendur við að rekja málin upp og leiðrétta þegar svona er ástatt. Þá annast starfs- menn RML DNA-stroksýnatökur og örmerkingar vítt og breitt um landið. Nánar um það og arfgerðargrein- ingar hrossa almennt m.a. hér: http:// www.rml.is/is/bufjarraekt/hrossa- raekt/dna-synatokur . Algengustu orsakir, í þeim annars fátíðu málum, þar sem skráðri ætt og niðurstöðu DNA-sýnis ber ekki saman eru: 1) Móðir var hjá tveimur stóðhestum sumarið fyrir fæðingu gripsins sem um ræðir og rangur hestur er skráður faðir. 2) Hryssur hafa víxlað folöldum við köstun (sjaldgæft en þekkist vel) eða koma með röng folöld heim úr stóðhestagirðingum. Í því samhengi má sérstaklega árétta það verklag að hryssur og folöld fari aldrei í stóð- hestagirðingar öðruvísi en tryggilega örmerkt. Hrossaeigendur og notendur W-Fengs eru sérstaklega hvattir til að yfirfara skráningar um hross sín reglulega s.s. skrá eigendaskipti, leiðrétta afdrif ef hross hafa farist (afdrif gripa sem fara í sláturhús skrást sjálfkrafa samkvæmt gögnum sláturhúsa), yfirfara skráða liti hrossa og nafngiftir, líta til með hvort fang hefur verið skráð á hryssur (gegnum stóðhestaskýrslu eða fyljunvarvott- orð), hafa upplýsingar um örmerkingu eða geldingar skilað sér til skrán- ingar og svo mætti áfram telja. Þá er og mikilvægt að upplýsingar um aðsetur, símanúmer og tölvupóst- föng eigenda og ræktenda séu í takt við tímann. Í heimarétt notenda W-Fengs má framkvæma allar áðurnefndar aðgerðir. Þar eru fleiri möguleikar í boði s.s. að setja inn myndir af hross- um en góð mynd segir oft meira en mörg orð og sjálfsagt að hvetja fólk til að nota þennan möguleika í ríkari mæli. Þá er einnig sá valkostur að tengja heimasíðu viðkomandi aðila við öll hross sem tengjast kenni- tölunni. Nú fara í hönd spennandi vetrarmánuðir í tamningum og þjálfun. Til að glöggva sig á og velja úr fjölbreytilegum feðrum komandi kynslóða er Valpörunin skemmtileg upplýsingaveita m.a. um væntanlega kynbótaspá/kyn- bótamat verðandi afkvæmis valinna foreldra, skyldleikaræktarstuðul og mögulega liti. Pétur Halldórsson, hrossaræktarráðunautur. Ráðgjafarmiðstöð land búnaðarins Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli. S: 516-5038 / 862-9322 / petur@rml.is DNA DNA DNA DNA Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins DNA-táknmyndir í WorldFeng Pétur Halldórsson. Hvernig verður framtíð landbúnaðar á Íslandi? Hvernig var Hlíðarbæjar- fundurinn? Forystumenn okkar sögðu: Ríkisnefndin, er búin að ákveða, punktur, að: Fjárhæð í samningnum lækki, hækki alls ekki og að greiðslumarkið verði aflagt. Þetta eru tvö mikilvægustu atriðin í þeim „samningum“ sem standa nú yfir milli ríkis og bænda. Forystumenn okkar gáfu á fund- inum út þá yfirlýsingu að þeir væru búnir að gefast upp á að fá þessu breytt og þá væri einungis um tvennt að velja; fækka bændum, eða reyna að flytja út kjöt. Á fundinum kom fram að bæði sauðfjár- og mjólkur- framleiðendum þótti einsýnt að með þeim hugmyndum að nýjum samn- ingum sem kynntar voru, væri verið að hvetja til aukinnar framleiðslu sem síðar orsakaði offramleiðslu með til- heyrandi verðfalli og vandamálum sem af því hlytist. Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda 2015 samþykkti 10% skerðingu hámark ef farið yrði í að skerða greiðslumarkið og við stöndum föst á þeirri samþykkt. Já, kannski, við skulum fallast á það að kakan stækki ekki. Heldur standi hún í stað og greiðslumarkið verði skert um 10%. Síðan verði í samninginn bundið að stefnt skuli að því að greiðslumarkið verði aflagt á fyrstu 7 árum næsta samnings (ef um álíka samninga verður að ræða þá). Þar með erum við komin með framtíðarsýn á það mál. Þegar sá tími rennur upp, þá verður hægt að fara í að smala greiðslumarksfénu til réttar og draga í dilka. Íslenskur landbúnaður þarf stöð- ugleika og langtímamarkmið ekki kúvendingar einsog ríkisnefndin vill með greiðslumarkið. Alþingi Íslendinga sem tók ákvörðun um að setja greiðslumarkið á, verður að koma með lausn til að leysa það mál svo sæmd sé að. Ef á annað borð eitt- hvað þarf að hreyfa við því. Því þetta er í raun besta leiðin til að útjafna stuðningi. Menn rífast ekki og þvarga í þessari útjöfnun stuðnings. Borga og semja um það í frjálsum viðskipt- um sem auka hagvöxt og greiða það verð sem seljandi og kaupandi koma sér saman um, báðir ánægðir! Svo má ekki gleyma því að með þessu móti geta bændur sótt sér fjármagn þegar á bjátar, því ekki sitja þeir á neinum sjóðum. Þeir sem andvígastir eru greiðslumarkinu og röklausastir, tala um að í greiðslumarksviðskiptum séu peningar að fara út úr greininni. Munum að sauðfjárrækt er ekki með eigið lokað hagkerfi. Við kaupum jú vörur og þjónustu hver af öðrum, kaupum einnig áburð, dráttarvélar og allskonar dót og drasl, af óskyldum og ótengdum aðilum, sem stunda alls ekki, landbúnað. Ég hafna því algerlega að sú eign sem greiðslumarkið er og skráð er í fyrningaskýrslu, ég sannanlega á, hef unnið fyrir og greitt, verði af mér tekið, þegjandi og hljóðalaust til þess eins að færa það öðrum, eða fella niður, án endurgjalds. Sú hraða niðurfærsla (8 ár) sem ríkisnefndin vill er algerlega óviðunandi og setur fjármál fjölmargra bænda í uppnám. Landbúnaðarráðherra sagði á fundi hér í sveit í haust að hann vildi ekki sjá neinar kúvendingar varðandi þessa samninga. Landbúnaður yrði ekki rekinn með skammtíma hugs- unum. Við bændur erum, trúi ég, sammála því. Ég minni á að við fengum enga, alls enga hækkun á afurðaverði í haust og verðum bara áfram með launaviðmið ríkisskattsstjóra sem eru langt undir lágmarkslaunum í þjóðfélaginu. Bilið breikkaði svo enn við þær miklu launahækkanir sem allflestir íslendingar hafa fengið á árinu. Þær launahækkanir fara svo út í verðlagið og hækka öll aðföng til okkar. Hvað gera bændur þá? Hagkvæmni stærðarinnar, lítið er tekið tillit til þess þegar deila á út ríkisstuðningi meira horft til þess að minni bú fái bara enn minna." Ja hann er nú ekki bóndi, bara með 300 rollur " sagði einn ágætur, einu sinni. Hver er bóndi? Hvað er bóndi? Eru til nauðsynlegir bændur og minna nauðsynlegir bændur? Snýst þetta ekki um að við erum að framleiða kindakjöt með stuðningi ríkisvalds- ins. Munum að helmingur sauðfjár- framleiðenda, er með undir 200 fjár á fóðrum, fjölskyldubú dreift um allt land. Að gefa á garðann í hefðbundn- um húsum sem meginþorri bænda býr við, er langtum tímafrekara og kallar á miklu mun meiri viðveru en á sambærilegu búi, með nýjustu gjafatækni. Skoða þarf með hvaða hætti er hægt að styðja við breytingar á hefðbundnum fjárhúsum til nútíma hátta. Með því er hægt að minnka vinnu og viðveru við fóðurgjöf, yfir marga tugi % á hverja kind á einu ári og bæta um leið arðsemi búanna. 64 ára reglan má bara alveg halda áfram, hún skiptir okkur hin litlu máli. Það eru 39 bændur í 64 ára reglunni með að meðaltali rétt um 190 ærgildi hver þannig að það er lítilræði á hvern okkar hinna en hjálpar mikið til ef á þarf að halda. Ég veit ekki til þess að bændur geti fengið nokkurn stuðning frá sínum hagsmunasamtökum ef veikindi eða óáran, ber að garði. Hvað á að gera við þessa sem eru í 64 reglunni núna, pína þá í rekstur til að framleiða kjöt sem ekki fæst ásættanlegt verð fyrir á erlendum mörkuðum. Eins er það með 0,7 regluna, hún vinnur gegn framleiðslu sem enginn þörf er á. Of mikið magn útflutts kjöts, er selt á alltof lágum verðum, bara til að losna við það úr landi. Svo á að fara að binda það í samningum, að hvetja til aukinnar framleiðslu til útflutnings. Ef teknar verða upp gripagreiðsl- ur þá verði greidd út sama krónutala á hvern einasta grip. Ef á að fram- leiðslutengja stuðninginn, þá eiga allir framleiðendur að fá sama stuðn- ing á kg óháð bústærð. Öll erum við að starfa við það sama, framleiða kindakjöt og því ólíðandi að verið sé að mismuna okkur og sundra, eftir stærð búanna. Svo er talað um byggðatengdan stuðning, þó varla hafi verið minnst á það í Hlíðarbæ. Í því sambandi tel ég að horfa þurfi til upphafs búskapar og búskaparloka. Nýir bændur gætu sótt um, auk líffjárstuðnings, að fá greiddar beingreiðslur, að fullu eða hluta, út á framleiðslu sína án þess að þurfa kaupa greiðslumark, fyrstu 6 árin eða svo. Háð einhverj- um skilyrðum og kröfum sem settar yrðu til að tryggja að viðkomandi væri á leið í búskap. Stuðningurinn gæti varað að fullu fyrstu tvö árin og síðan þrepaður niður. Í hinn endann að bændur geti farið eftirlaun og með svipaða upp- hæð í eftirlaun og aðrir landsmenn fá. Eftirlaun sauðfjárbónda sem hefur verið í fullu starfi til sjötugs og samanlagður aldur og starfsaldur er kominn í 110 ár er eitthvað um 80 þúsund krónur á mánuði. Þessu verður að breyta. Ef þú ert tryggur með eftirlaun til framfærslu með sama hætti og aðrir íslendingar, þá þarftu kannski ekki eins hátt verð fyrir jörðina. Það er að segja ef hún er þá seljanleg þegar að þeim vendipunkti kemur. Þetta gæti létt kynslóðaskiptin. Hluti byggðastuðnings gæti líka verið árleg greiðsla á hvert lögbýli og stuðningurinn miðaðist við það starfshlutfall sem þar væri. Hámarksstyrkur yrði miðaður við að tvö ársstörf væru á lögbýlinu. Ekki yrði horft á framleiðslumagn, né hver launakostnaður er. Heldur að þarna sé um að ræða fjölskyldu- rekstur og fasta búsetu. Í framhaldi af því yrði svokölluðu endurgjaldi breytt og það hækkað til samræmis við sambærilega hópa í þjóðfélaginu. Það myndi vonandi leiða til þess að með tímanum gætu bændur líka farið á eftirlaun með sambærilegum hætti og aðrir íslendingar. Fleira þyrfti að koma þar inn t.a.m. þyrfti að lækka tryggingagjald verulega svo fenginn stuðningur fari ekki beina leið í rík- issjóð aftur. Í þessa byggðatengdu þætti væri ekki óeðlilegt að ríkisvaldið kæmi inn í samninginn með aukið fjár- magn. Ragnar Þorsteinsson Sýrnesi Aðaldal Hrossabændur óska eftir hryssum Mega vera á 3. til 15. vetri Greiðum 19.000 kr án vsk fyrir hryssuna og sækjum frítt á Suðurlandi, Vesturlandi og Norðvesturlandi austur í Eyjafj örð. Fáðu hærra verð fyrir hryssur til lífs en í sláturhús! Upplýsingar: hryssa@isteka.com eða í síma 662 0028 -Geymið auglýsinguna-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.