Bændablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 71

Bændablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 71
71Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015 Lesendabás Takið út úr ykkur snuðið Ég var á aukafundi Landssamtaka sauðfjárbænda um daginn, þar sem forysta LS og BÍ bauðst til að ræða við okkur um meginlínur sem samningsaðilar hafa náð saman um við gerð nýs sauðfjársamnings. Það málefni og önnur því tengd verða efni þessarar greinar, sem er hin þriðja í greinaflokknum Hefjum tösku hátt á loft. Sigurður Ingi Jóhannsson land- búnaðarráðherra hefur á sinni valda- tíð boðað breytingar á stuðningskerfi landbúnaðarins. Og ýmsir hafa sung- ið eftir sömu söngskrá. Því er haldið fram að kerfið hafi gengið sér til húðar, það þjóni ekki markmiðum sínum og að miklar breytingar hafi orðið í umhverfi landbúnaðarins. Lengi hefur það reyndar verið svo að þegar rætt er digrum rómi um mál- efni landbúnaðarins, er verið að tala um málefni mjólkurframleiðenda. Þar hefur Sigurður Ingi ekki brugðið settum vana og bændaforystan ekki heldur. Á fundinum um daginn voru kynntar og ræddar hugmyndir um stórfelldar breytingar á aðbúnaði sauðfjárræktarinnar, breytingar sem byggja alfarið á þeim forsendum sem ríkja í mjólkurframleiðslu. Rammi sauðfjárræktarinnar er allur annar en í nautgriparæktinni nú um stundir og staða þessara greina er í raun gerólík. Kvótaverð í sauð- fjárrækt hefur ekki farið upp úr öllu valdi eins og í mjólkurframleiðslu, fækkun framleiðenda og stækkun búa ekki heldur. Ekki hefur verið skortur á framleiðsluvörum sauð- fjárbænda eins og komið hefur fyrir í nautgriparæktinni. Sauðfjárafurðir hafa lengi verið seldar á frjálsum markaði án allrar verðstýringar, ólíkt því sem gerist með mjólk. Þessi kerfi eiga fátt sameiginlegt annað en sam- eiginlega fortíð. Samt er það boðað að rammanum um sauðfjárræktina þurfi að henda, hann sé svo gallaður. Til stuðnings þeim málflutningi er kynnt skýrsla frá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri. Þar sem ekkert kemur fram sem réttlætt getur stórfelldan viðsnúning í allri tilhögun stuðn- ingsins við sauðfjárræktina í landinu. Vífill Karlsson, sem kynnti skýrslu RHA á LS-fundinum, nefndi í framhjáhlaupi að alls óvíst sé að WTO samþykkti það fyrirkomu- lag sem nú er í farvatninu. Og af hverju skyldi það nú vera? Tillögurnar sem okkur voru kynntar, ganga út á þetta: (% skipting heildarstuðnings) • Að beinar greiðslur til bænda fari úr 51% niður í núll (tak- mörkuð framleiðslutenging). • Að gæðastýringargreiðslur fari úr 35% í 54% (alfarið fram- leiðslutengt). • Að gripagreiðslur verði teknar upp og nemi 32% (mjög fram- leiðslutengt). • Að ullarnýtingargreiðslur verði óbreyttar 9% (alfarið fram- leiðslutengt). • Að stuðningur til annarra verk- efna verði 5% (ekki framleiðslu- tengt). • Að við eigum að finna frábæra markaði innan lands og utan og auka þannig virði afurða. (Þó ótrúlegt megi virðast eru samn- ingamenn okkar með munninn fullan af þessari margtuggnu dúsu). • Að við eigum að rækta skóg í sjálfboðavinnu. • Að við eigum að fá L a n d g r æ ð s l u n a e ð a Náttúrufræðistofnun til að fylgj- ast með því hvort við séum að eyðileggja land. Hver einasti meðalauli sem setið hefur sæmilegan fyrirlestur um ein- földustu lögmál hagfræðinnar (þeirr- ar merku fræðigreinar) ætti að sjá að kerfi eftir þessari uppskrift yrði mjög markaðstruflandi, sem er eitur í beinum WTO. Núverandi stuðnings- kerfi er sniðið til að standast skilyrði þessara blessuðu alþjóðasamninga og án þeirra getum við víst ekki stundað útflutning. Hvernig aukum við virði afurða með útflutningi um leið og tekin er áhætta á að erlendir markaðir hreinlega loki á okkur? Kerfi sem þetta gerði ekkert annað en að valda offramleiðslu og bjóða heim hættu á stjórnlausum fjárfjölda og ofbeit. Ráðið við því á greinilega að vera að færa Landgræðslunni eða öðrum stofnunum hins opin- bera allt vald til að ráða því hvar er hægt að búa og hvar ekki. Hvar hefur verið ákveðið að fara þá leið? Og svaraðu nú Sigurður Ingi! Hefur það verið ákveðið á Alþingi? Hefur það verið ákveðið á Búnaðarþingi? Hefur það verið ákveðið hjá Landssamtökum sauðfjárbænda? Hefur það verið ákveðið á flokks- þingi Framsóknarflokksins? Verði niðurstaðan eitthvað í líkingu við þær tillögur sem okkur voru kynntar, mun þetta gerast, hvort sem menn hafa ætlað sér það eða ekki. Helstu gallar núverandi kerfis eru taldir þessir: A) Það er dýrt að byrja að búa. B) Það er lítið upp úr sauðfjár- búskap að hafa. C) Kvóti eigngerist og aðeins bankarnir græða. Ekkert nýtt landbúnaðarkerfi mun koma til með að breyta staðreyndum A og B, séu þær lagðar saman. Það er alltaf dýrara að kaupa ábatasamt fyrirtæki en venjulegan taprekstur, alveg sama á hverju ábatinn byggist. Það að kvóti eigngerist er óhjá- kvæmilegt og myndar ákveðinn sveigjanleika í kerfinu, því menn geta miðlað honum milli búa með viðskiptum. Einu sinni taldist það mikill kostur. Allur annar stuðning- ur mundi eigngerast hvort sem er, samanber fyrri efnisgrein. Og ég get ekki séð hvernig allt hið kapitaliska hagkerfi heimsins á að stjórnast af stuðningskerfi sauð- fjárræktar hér úti á Íslandi. Bankarnir munu halda áfram að hagnast á venjulegu fólki, alveg sama hvað. Samningamenn sauðfjárbænda, Sindri, Einar og Þórarinn. Takið út úr ykkur snuðið og horfist í augu við staðreyndir. Þið mætið til fundar, nestaðir samþykktum til- lögum frá ykkar félagasamtökum. Ríkið kallar fram gengi hákarla úr undirdjúpum ráðuneytisins. Þeir vísa hugmyndum bænda strax út fyrir sjóndeildarhringinn og segist vilja taka upp greiðslur út á ræktað land. (Sem núverandi kynslóð hag- fræðimenntaðra sætabrauðsdrengja hefur haldið á lofti sem flottu frá útlöndum). Gallinn við þá tilhögun er sá að þannig fengju allir land- eigendur frían aðgang að því sem okkur sveitafólkinu er ætlað. Við höfum ekki séð neina viðleitni frá stjórnvöldum til að lögleiða búsetu- skyldu af nokkru tagi, en það hlýtur að vera forsenda kerfis sem styður landeigendur EF ÆTLUNIN ER AÐ STUÐNINGURINN SKILI SÉR TIL BYGGÐANNA ÚT UM LAND. Nýjasta nýtt á vegum ríkisstjórn- arinnar er áætlun um árangur í lofts- lagsmálum. Menn telja sig hafa sýnt fram á að framræsla sé ofarlega á blaði yfir losunarvalda gróður- húsalofttegunda, svo það skyti ansi skökku við að egna fólk til aukinnar ræktunar (á bara eitthverju) um leið og markmið eru sett um endurheimt votlendis og að draga úr losun. Nei, hákarlarnir úr ráðuneytinu ætluðu aldrei að ræða stuðning út á land. Þeir ætluðu að hræða samn- ingamenn okkar til að tala um hvað sem var annað en það sem bændur lögðu upp með í þessum samningaviðræðum. Með þessari samningatækni kemur glögglega fram hvað þeir sem handan borðsins sitja, þeir sem véla um okkar mál, fyrirlíta okkur innilega. Og að þetta fólk (nú tala ég um bæði bændaforystuna og samn- inganefnd ríkisins) skuli leyfa sér að leggja til aukið vægi gæðastýringar, undir handleiðslu Landgræðslunnar eða Náttúrufræðistofnunar, á sama tíma og allur þessi mannskapur veit fullvel að á þeim vígstöðvum geisar styrjöld sem enginn sér fyrir endann á. Þar á ríkið mesta sök með því að hanga á sinni ónýtu og ólöglegu reglugerð (um gæðastýrða sauðfjár- framleiðslu) og bótin sem á hana var klesst mun líklegast reynast verri en gatið. Verði niðurstaða sauðfjársamn- ings eitthvað í líkingu við þær tillög- ur sem okkur voru kynntar, verðum við hrakin út af afréttunum. Innstu koppar í búri Landgræðslunnar halda því fram að það sé smámál, þetta séu átta afréttir sem tekist sé á um og einhverjir 50 bændur sem þurfi að losna við. Líf þeirra skipti engu máli, þeir séu svo fáir. 50 fjölskyldur. Er það ekki fjöldinn sem hið opinbera treystir sér til að taka við úr hópi milljóna flóttamanna utan úr heimi? Eða voru það bara 50 manns? Sigríður Jónsdóttir, sauðfjárbóndi, Arnarholti. Sigríður Jónsdóttir. ÚTBOÐ Útboð 20084 - Ljósleiðarahringtenging Vestfjarða, seinni hluti Ríkiskaup, fyrir hönd fjarskiptasjóðs standa fyrir útboði vegna seinni verkáfanga ljósleiðarahringtengingar á Vestfjörðum. Fjarskiptasjóður áformar að gera samning við hæfan bjóðanda (seljanda) sem á hagkvæmasta gilda tilboðið um að hanna, byggja, reka og eiga ljósleiðarastreng ásamt því sem honum tilheyrir, sem ætlaður er til að koma á ljósleiðarahringtengingu á Vestfjörðum. Samningurinn innifelur að fjarskiptasjóður veitir seljanda opinberan fjarhagslegan stuðning til verkefnisins. Ekki verður gerður samningur tilkynni einhver fyrir samþykki tilboðs að viðkomandi ætli að byggja og reka ljósleiðarstrenginn ásamt því sem honum tilheyrir án opinbers stuðnings. Tilboð skulu berast Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík fyrir kl. 10.00 þann 28. janúar 2016 þar sem þau verða opnuð í viðurvist bjóðenda er þess óska. Nánari upplýsingar er að finna í útboðslýsingu sem aðgengileg verður á vef Ríkiskaupa (www.rikiskaup.is/utbod/utb/20084) frá og með þriðjudeginum 8. desember nk. ÞORRATILBOÐ 2016 Tilboð á sérmerktum glösum fyrir þorrablót Norðlingabraut 14 - 110 Reykjavík Sími 569 9000 - sala@bros.is - www.bros.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.