Bændablaðið - 17.12.2015, Qupperneq 71
71Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015
Lesendabás
Takið út úr ykkur snuðið
Ég var á aukafundi Landssamtaka
sauðfjárbænda um daginn, þar
sem forysta LS og BÍ bauðst til að
ræða við okkur um meginlínur sem
samningsaðilar hafa náð saman um
við gerð nýs sauðfjársamnings.
Það málefni og önnur því tengd
verða efni þessarar greinar, sem
er hin þriðja í greinaflokknum
Hefjum tösku hátt á loft.
Sigurður Ingi Jóhannsson land-
búnaðarráðherra hefur á sinni valda-
tíð boðað breytingar á stuðningskerfi
landbúnaðarins. Og ýmsir hafa sung-
ið eftir sömu söngskrá. Því er haldið
fram að kerfið hafi gengið sér til
húðar, það þjóni ekki markmiðum
sínum og að miklar breytingar hafi
orðið í umhverfi landbúnaðarins.
Lengi hefur það reyndar verið svo
að þegar rætt er digrum rómi um mál-
efni landbúnaðarins, er verið að tala
um málefni mjólkurframleiðenda.
Þar hefur Sigurður Ingi ekki brugðið
settum vana og bændaforystan ekki
heldur. Á fundinum um daginn voru
kynntar og ræddar hugmyndir um
stórfelldar breytingar á aðbúnaði
sauðfjárræktarinnar, breytingar sem
byggja alfarið á þeim forsendum sem
ríkja í mjólkurframleiðslu.
Rammi sauðfjárræktarinnar er
allur annar en í nautgriparæktinni nú
um stundir og staða þessara greina
er í raun gerólík. Kvótaverð í sauð-
fjárrækt hefur ekki farið upp úr öllu
valdi eins og í mjólkurframleiðslu,
fækkun framleiðenda og stækkun
búa ekki heldur. Ekki hefur verið
skortur á framleiðsluvörum sauð-
fjárbænda eins og komið hefur fyrir
í nautgriparæktinni. Sauðfjárafurðir
hafa lengi verið seldar á frjálsum
markaði án allrar verðstýringar, ólíkt
því sem gerist með mjólk. Þessi kerfi
eiga fátt sameiginlegt annað en sam-
eiginlega fortíð.
Samt er það boðað að rammanum
um sauðfjárræktina þurfi að henda,
hann sé svo gallaður. Til stuðnings
þeim málflutningi er kynnt skýrsla
frá Rannsóknamiðstöð Háskólans á
Akureyri. Þar sem ekkert kemur
fram sem réttlætt getur stórfelldan
viðsnúning í allri tilhögun stuðn-
ingsins við sauðfjárræktina í
landinu. Vífill Karlsson, sem kynnti
skýrslu RHA á LS-fundinum, nefndi
í framhjáhlaupi að alls óvíst sé að
WTO samþykkti það fyrirkomu-
lag sem nú er í farvatninu. Og af
hverju skyldi það nú vera?
Tillögurnar sem okkur voru
kynntar, ganga út á þetta:
(% skipting heildarstuðnings)
• Að beinar greiðslur til bænda
fari úr 51% niður í núll (tak-
mörkuð framleiðslutenging).
• Að gæðastýringargreiðslur fari
úr 35% í 54% (alfarið fram-
leiðslutengt).
• Að gripagreiðslur verði teknar
upp og nemi 32% (mjög fram-
leiðslutengt).
• Að ullarnýtingargreiðslur verði
óbreyttar 9% (alfarið fram-
leiðslutengt).
• Að stuðningur til annarra verk-
efna verði 5% (ekki framleiðslu-
tengt).
• Að við eigum að finna frábæra
markaði innan lands og utan og
auka þannig virði afurða. (Þó
ótrúlegt megi virðast eru samn-
ingamenn okkar með munninn
fullan af þessari margtuggnu
dúsu).
• Að við eigum að rækta skóg í
sjálfboðavinnu.
• Að við eigum að fá
L a n d g r æ ð s l u n a e ð a
Náttúrufræðistofnun til að fylgj-
ast með því hvort við séum að
eyðileggja land.
Hver einasti meðalauli sem setið
hefur sæmilegan fyrirlestur um ein-
földustu lögmál hagfræðinnar (þeirr-
ar merku fræðigreinar) ætti að sjá
að kerfi eftir þessari uppskrift yrði
mjög markaðstruflandi, sem er eitur í
beinum WTO. Núverandi stuðnings-
kerfi er sniðið til að standast skilyrði
þessara blessuðu alþjóðasamninga
og án þeirra getum við víst ekki
stundað útflutning. Hvernig aukum
við virði afurða með útflutningi
um leið og tekin er áhætta á að
erlendir markaðir hreinlega loki
á okkur?
Kerfi sem þetta gerði ekkert annað
en að valda offramleiðslu og bjóða
heim hættu á stjórnlausum fjárfjölda
og ofbeit. Ráðið við því á greinilega
að vera að færa Landgræðslunni
eða öðrum stofnunum hins opin-
bera allt vald til að ráða því hvar
er hægt að búa og hvar ekki. Hvar
hefur verið ákveðið að fara þá leið?
Og svaraðu nú Sigurður Ingi! Hefur
það verið ákveðið á Alþingi? Hefur
það verið ákveðið á Búnaðarþingi?
Hefur það verið ákveðið hjá
Landssamtökum sauðfjárbænda?
Hefur það verið ákveðið á flokks-
þingi Framsóknarflokksins? Verði
niðurstaðan eitthvað í líkingu við
þær tillögur sem okkur voru kynntar,
mun þetta gerast, hvort sem menn
hafa ætlað sér það eða ekki.
Helstu gallar núverandi kerfis
eru taldir þessir:
A) Það er dýrt að byrja að búa.
B) Það er lítið upp úr sauðfjár-
búskap að hafa.
C) Kvóti eigngerist og aðeins
bankarnir græða.
Ekkert nýtt landbúnaðarkerfi mun
koma til með að breyta staðreyndum
A og B, séu þær lagðar saman. Það
er alltaf dýrara að kaupa ábatasamt
fyrirtæki en venjulegan taprekstur,
alveg sama á hverju ábatinn byggist.
Það að kvóti eigngerist er óhjá-
kvæmilegt og myndar ákveðinn
sveigjanleika í kerfinu, því menn
geta miðlað honum milli búa með
viðskiptum. Einu sinni taldist það
mikill kostur. Allur annar stuðning-
ur mundi eigngerast hvort sem er,
samanber fyrri efnisgrein.
Og ég get ekki séð hvernig allt
hið kapitaliska hagkerfi heimsins á
að stjórnast af stuðningskerfi sauð-
fjárræktar hér úti á Íslandi. Bankarnir
munu halda áfram að hagnast á
venjulegu fólki, alveg sama hvað.
Samningamenn sauðfjárbænda,
Sindri, Einar og Þórarinn. Takið
út úr ykkur snuðið og horfist í
augu við staðreyndir. Þið mætið
til fundar, nestaðir samþykktum til-
lögum frá ykkar félagasamtökum.
Ríkið kallar fram gengi hákarla úr
undirdjúpum ráðuneytisins. Þeir
vísa hugmyndum bænda strax út
fyrir sjóndeildarhringinn og segist
vilja taka upp greiðslur út á ræktað
land. (Sem núverandi kynslóð hag-
fræðimenntaðra sætabrauðsdrengja
hefur haldið á lofti sem flottu frá
útlöndum). Gallinn við þá tilhögun
er sá að þannig fengju allir land-
eigendur frían aðgang að því sem
okkur sveitafólkinu er ætlað. Við
höfum ekki séð neina viðleitni frá
stjórnvöldum til að lögleiða búsetu-
skyldu af nokkru tagi, en það hlýtur
að vera forsenda kerfis sem styður
landeigendur EF ÆTLUNIN ER AÐ
STUÐNINGURINN SKILI SÉR
TIL BYGGÐANNA ÚT UM LAND.
Nýjasta nýtt á vegum ríkisstjórn-
arinnar er áætlun um árangur í lofts-
lagsmálum. Menn telja sig hafa sýnt
fram á að framræsla sé ofarlega á
blaði yfir losunarvalda gróður-
húsalofttegunda, svo það skyti ansi
skökku við að egna fólk til aukinnar
ræktunar (á bara eitthverju) um leið
og markmið eru sett um endurheimt
votlendis og að draga úr losun.
Nei, hákarlarnir úr ráðuneytinu
ætluðu aldrei að ræða stuðning út á
land. Þeir ætluðu að hræða samn-
ingamenn okkar til að tala um
hvað sem var annað en það sem
bændur lögðu upp með í þessum
samningaviðræðum.
Með þessari samningatækni
kemur glögglega fram hvað þeir
sem handan borðsins sitja, þeir sem
véla um okkar mál, fyrirlíta okkur
innilega. Og að þetta fólk (nú tala ég
um bæði bændaforystuna og samn-
inganefnd ríkisins) skuli leyfa sér að
leggja til aukið vægi gæðastýringar,
undir handleiðslu Landgræðslunnar
eða Náttúrufræðistofnunar, á sama
tíma og allur þessi mannskapur veit
fullvel að á þeim vígstöðvum geisar
styrjöld sem enginn sér fyrir endann
á. Þar á ríkið mesta sök með því að
hanga á sinni ónýtu og ólöglegu
reglugerð (um gæðastýrða sauðfjár-
framleiðslu) og bótin sem á hana var
klesst mun líklegast reynast verri en
gatið.
Verði niðurstaða sauðfjársamn-
ings eitthvað í líkingu við þær tillög-
ur sem okkur voru kynntar, verðum
við hrakin út af afréttunum. Innstu
koppar í búri Landgræðslunnar halda
því fram að það sé smámál, þetta
séu átta afréttir sem tekist sé á um
og einhverjir 50 bændur sem þurfi
að losna við. Líf þeirra skipti engu
máli, þeir séu svo fáir.
50 fjölskyldur. Er það ekki
fjöldinn sem hið opinbera treystir
sér til að taka við úr hópi milljóna
flóttamanna utan úr heimi? Eða voru
það bara 50 manns?
Sigríður Jónsdóttir,
sauðfjárbóndi, Arnarholti.
Sigríður Jónsdóttir.
ÚTBOÐ
Útboð 20084 - Ljósleiðarahringtenging
Vestfjarða, seinni hluti
Ríkiskaup, fyrir hönd fjarskiptasjóðs standa fyrir útboði vegna
seinni verkáfanga ljósleiðarahringtengingar á Vestfjörðum.
Fjarskiptasjóður áformar að gera samning við hæfan bjóðanda
(seljanda) sem á hagkvæmasta gilda tilboðið um að hanna,
byggja, reka og eiga ljósleiðarastreng ásamt því sem honum
tilheyrir, sem ætlaður er til að koma á ljósleiðarahringtengingu
á Vestfjörðum. Samningurinn innifelur að fjarskiptasjóður veitir
seljanda opinberan fjarhagslegan stuðning til verkefnisins.
Ekki verður gerður samningur tilkynni einhver fyrir
samþykki tilboðs að viðkomandi ætli að byggja og reka
ljósleiðarstrenginn ásamt því sem honum tilheyrir án
opinbers stuðnings.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
fyrir kl. 10.00 þann 28. janúar 2016 þar sem þau verða opnuð í
viðurvist bjóðenda er þess óska.
Nánari upplýsingar er að finna í útboðslýsingu sem aðgengileg
verður á vef Ríkiskaupa (www.rikiskaup.is/utbod/utb/20084) frá
og með þriðjudeginum 8. desember nk.
ÞORRATILBOÐ 2016
Tilboð á sérmerktum
glösum fyrir þorrablót
Norðlingabraut 14 - 110 Reykjavík
Sími 569 9000 - sala@bros.is - www.bros.is