Bændablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015
Þær eru engin smá-
smíði nýju korn-
þreskivélarnar frá stóru
f r a m l e i ð e n d u n u m
enda voru jafnan raðir
við þær af gestum
sem vildu virða
herlegheitin fyrir sér úr
„stjórnklefanum“.
Það var margt um manninn á
stærstu landbúnaðar- og tækja-
sýningu Noregs, Agroteknikk, dag-
ana 26.–29. nóvember sem haldin
var í Lillestrøm. Aðsóknarmet var
slegið á sýningunni, sem var nú
haldin í sjöunda sinn, en hátt í 35
þúsund manns komu við þá fjóra
daga sem opið var inn á sýninguna.
Fjölbreytninni var fyrir að fara
og hér var eitthvað fyrir alla, jafnt
fullorðna og börn, sem tækjaóða og
hinn almenna borgara.
Agroteknikk var haldið í Norges
Varemesse í Lillestrøm í fimm
stórum sölum upp á um 40 þúsund
fermetra. Þarna voru samankomnir
norskir innflytjendur, söluaðilar véla
og tækja, bændur, ungt fólk með
áhuga á landbúnaði, félagasamtök,
landbúnaðarskólar, ráðgjafar,
stjórnmálamenn og fjölmiðlar með
sérhæfingu á landbúnaði ásamt
mörgum fleiri.
Tengslanetið mikilvægt
Óhætt er að segja að allir hafi fund-
ið eitthvað við sitt hæfi þessa fjóra
daga sem sýningin var haldin en
þannig var haldin tækninýsköp-
unarkeppni líkt og fyrri ár þar sem
sendar voru inn 107 nýjar hugmynd-
ir, allar góðar og gildar með nýjum
nýsköpunarhugmyndum. Lærlingur
ársins innan bifvélavirkjunar, með
áherslu á landbúnaðartæki, var
valinn og á föstudagskvöldinu
voru skipulagðir sérstakir „bændur
í bæinn“- tónleikar í Oslo Spektrum
með rokksveitinni Hellbillies. Á
föstudeginum var einnig hægt að
fá faglega upprifjun og ráðgjöf á
fjósbyggingum, vélbúnaði innan-
dyra, véltækni ásamt fóðurráðgjöf
og skipulag í mjólkurframleiðslunni.
Prjónadúettinn Arne og Carlos voru
einnig á sýningunni og buðu upp á
vinnustofu fyrir prjónaþyrsta sem
vakti mikla lukku.
Samdóma álit var frá sölu-
mönnum sem stóðu vaktina á
Agroteknikk að aldrei hefði sýn-
ingin heppnast jafnvel og fannst
þeim áberandi hversu margir voru
í fjárfestingahugleiðingum og voru
vel inni í nýjustu tækni og tækjum.
Forsvarsmenn sýningarinnar tóku
eftir því að meira var um yngra fólk
nú en áður og fannst það jákvætt
merki fyrir landbúnaðinn. Þar að
auki er slík sýning gríðarlega mik-
ilvæg fyrir aðila til að byggja upp
tengslanet sín við bændur og einnig
milli söluaðila og framleiðenda.
/ehg
Það væri ekki amalegt að hafa svona tæki á hlaðinu hjá sér til skrauts. Fjórhjól í fullri stærð skorið út í tré. Myndir / ehg
Hraðskreiðasta sláttuvél í heimi frá sláttuvélaframleiðandanum Viking sem
nær 215 kílómetra hraða. Marius Gjevik frá fyrirtækinu Norwegian Speed
Factory stóð fyrir verkefninu þar sem sláttuvélatraktor frá Viking er grunnur-
inn og með stýrisskiptingu úr Formúlu 1 kappakstursbíl ásamt dekkjum úr
Stærsti hefðbundni traktor í heimi,
Fendt 1050 Vario, fór ekki fram
hjá sýningargestum, enda af
stærri gerðinni og kallaður „þýska
meistaraverkið“. Það tók sölumenn
Eikmaskin þó nokkurn tíma að
sannfæra þýska kollega sína um að
senda þeim gripinn á sýninguna en
tókst að lokum með þeim formerkj-
um að þeir yrðu að selja hann. Þetta
var sjálfsagt meira sagt í gríni en
alvöru en viti menn, traktorinn seld-
ist og verður því áfram í Noregi en
kaupandinn vildi ekki stíga fram og
gefa upp hver hann væri.
Landbruk og Maskin stilltu út gömlum mykjudreifara til að minna á sig og
sína þjónustu.
Sölumaður frá KR. Faksvåg sýnir það
nýjasta í dekkjaframleiðslu fyrirtæk-
isins en þeir eru þekktir fyrir „tví-
burasamsetningu“ sína þegar kemur
að dekkjum á dráttarvélar, þreskivél-
ar og vagna, það er að segja þegar
þau eru tvíhjóla að framan og aftan.
Í hverjum sýningarbás var eitthvað áhugavert að sjá eins og þetta tryllitæki
sem var í fjórhjóladeildinni.
Frá Forest Technology Group er ný-
kominn á markað krani sem lyftir 14
tonna þunga og hefur vinnsluradíus
upp á tæpa níu metra.
Ansi hreint liðugur og lipur Multione-liðléttingur sem vakti athygli sýn-
ingargesta.
Agro teknikk 2015 í Noregi:
Paradís fyrir tækjaóða