Bændablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 82

Bændablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 82
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 201582 Vélabásinn liklegur@internet.is Hjörtur L. Jónsson Kubota MK5000: Hægt að spara umtalsvert eldsneyti með svona litla vél í smáverkin Í síðasta mánuði bauð Baldur Þorsteinsson, sölumaður hjá Þór h/f., mér í heimsókn til að skoða lítinn traktor frá Kubota. Til að prófa traktor tel ég að það þurfi að lágmarki 100 stunda vinnu á vélinni til að vita eitthvað um vél- ina, en að taka smá „monthring“ á vélinni nægir mér til að fá smá inn- sýn í möguleika vélarinnar og getu. Þessi smátraktor er í alla staði ein- föld og sniðug til allra smærri verka að mínu mati án þess að hafa haft möguleika á eiginlegum prufuakstri. Sniðug fjórhjóladrifin vél Þrátt fyrir að vélin sé lítil og mjó skilar mótorinn 35 hestöflum. Reyndar eru dekkin frekar mjó á vélinni sem ég skoðaði (framan 8-16 og aftan 12,4-26), en hægt er að fá vélina afhenta á 9,5-16 og 13,6-28 sem ég tel vænlegri kost. Kubota MK5000 er frekar mjó og þar af leiðandi mundi maður ætla að vélin sé völt, en framdekkin eru í akstri á ytri brún afturdekkja og mælist breidd vélarinnar 146,5 cm á mjórri dekkjunum, en sé vélin tekin á breiðari dekkjunum er hún 162,5 cm. Á afturfelgunum er sniðugur útbúnaður til að breikka vélina, en hægt er að færa út felgurnar af miðj- unni þannig að dekkin eru um 5 cm utar hvorum megin sem gerir vélina stöðugri og þá hitta framdekk beint á miðju afturdekk í hjólför. Veltibogi er fyrir aftan ökumanninn sem hægt er að fella niður sé verið að moka innan úr þröngu rými og er vélin þá rétt undir tveim metrum. Án moksturstækja er vélin undir 1700 kg Vélin sem ég skoðaði kom án moksturstækja, er fjórhjóladrifin og er þegar seld, en hægt er að fá vélina með moksturstækjum sem eru með lyftigetu upp á rúm 900 kg. (ámoksturstækin kosta aukalega um 700.000 kr.). Vélin án tækja kostar 4.500.000 kr. með vsk. (um 3,6 milljónir króna án vsk.) Þrátt fyrir að vera lítil er kraftur- inn nokkuð góður og skilar úrtakið að aftan 540 snúningum á mín. við 2.200 snúninga á mótor. Þrítengið að aftan er með lyftigetu upp á 1.300 kg. Lítill rafbúnaður Þegar ég skoðaði vél og vélbúnað sá ég strax að rafallinn, rafgeymir- inn og startari voru einstaklega litlir, en þegar ég skoðaði betur sá ég að sáralítið er af flóknum raf- magnsbúnaði í vélinni og þar með er ástæðulaust að vera með stóran rafal eða rafgeymi. Aðgengi að öllum síum er gott og einnig er gruggglas fyrir elds- neytið á góðum stað til að gott sé að fylgjast með glasinu. Stjórnbúnaðurinn fyrir þrítengið er með gamla laginu og minnir svo- lítið á Ferguson 35 stjórnborð fyrir þrítengi og moksturstæki. Aftan á vélinni eru inn-út tengingar fyrir þrenn tæki og aðskildir takkar fyrir hvert þeirra á sama stað og þrítengistakkinn er. Sniðugur öryggisbúnaður í gírstöng Eins og áður sagði er veltibogi fyrir aftan sæti á vélinni, en einnig er hægt að fá veltiboga um miðja vél í sérpöntun. Þegar ég var að prófa vélina stoppaði ég til að taka mynd af vélinni, setti í frígír og hugðist stíga af vélinni, en þá drap vélin á sér. Í fyrstu skildi ég ekki hvers vegna, en þegar betur var að gáð hafði ég rekið mig örlítið í gír- stöngina svo að hún var ekki alveg á miðjunni og þar sem enginn sat í ökumannssætinu drap vélin á sér þar sem skynjarinn sagði að vélin væri í gír. Sniðugt öryggi og ekki nein hætta á að vélin fari af stað mannlaus (en til eru sögur af dráttar- vélum sem hafa keyrt yfir eigendur sína þegar þær hafa hrokkið í gír). Stuttur afgreiðslufrestur Þar sem Kubota eru framleiddar í Japan er lagerinn fyrir Evrópu stað- settur í Englandi og fyrir vikið tekur ekki nema fjórar til sex vikur að fá Kubota senda til Íslands. Allavega fyrir þá sem vilja spara að nota stóra traktorinn til smærri verka tel ég að hægt sé að spara umtals- vert magn af eldsneyti með því að eiga svona litla vél til smáverka, en dísilvélar frá Kubota eru mikið í smærri vinnuvélum og þykja spar- neytnar og traustar. Nánari upplýs- ingar má finna á vefsíðunni www. thor.is og hjá Baldri sölumanni í Þór h/f. Baldur Þorsteinsson sölumaður á Kubota MK5000. Myndir / HLJ Gott aðgengi að öllum vélbúnaði til þrifa og viðhalds. Stjórnstangirnar fyrir þrítengin og glussaúrtökin virka svolítið gamal- dags. Glerkúlan sem sýnir óhreinindi í eldsneytinu er á góðum stað. Hún virkar ekki stór, Kubota MK5000. Ljósatengi fyrir kerru og þrjú úrtök fyrir glussa eru þægilega ofarlega aftan á vélinni. Rafall og startari eru við fyrstu sýn minni en í Yaris-fólksbíl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.