Þjóðmál - 01.09.2006, Side 20

Þjóðmál - 01.09.2006, Side 20
8 Þjóðmál HAUST 2006 á. því. hversu. margar. fóstureyðingar. eru. framkvæmdar. af. læknisfræðilegum. og. fél- agslegum.ástæðum ..Þó.er.sá.galli.á.þessari. upplýsingatöflu. að. síðastnefnda. sundur- liðunin.nær.aðeins. til. ársins.1997.en.eftir. það. er. engar. upplýsingar. um. þau. efni. að. finna . Séu. tölur. tíu.ár.aftur. í. tímann.skoðaðar. kemur. í. ljós. að. á. árabilinu. 1995–2004. voru.9 .125.fóstureyðingar.framkvæmdar.á. sjúkrahúsunum. íslensku,. eða. að. meðaltali. um.912.fóstureyðingar.á.ári . Flestar.urðu.fóstureyðingarnar.um.árþús- undamótin. eða. 987 .. Miðað. við. þær. tölur. sem.liggja.fyrir.um.fóstureyðingar.af.félags- legum.ástæðum.kemur. í. ljós.að.árið.1995. voru.ástæður.fóstureyðinga.í.91,6%.tilvika. vegna.„óviðráðanlegra.félagslegra.ástæðna“,. árið.1996.fór.hlutfallið.í.92,3%.og.hækkaði. í.92,5%.ári.síðar . Hinar.félagslegu.ástæður.sem.lýst.er. í.9 .. grein.laga.um.fóstureyðingar.lúta.að.mestu. leyti.að.bágri.fjárhagsstöðu.fólks.eða.mjög. erfiðum. félagslegum. aðstæðum. sem. koma. til. af. heilsuleysi. heimilismanna. eða. fjölda. barna.á.heimili ..Ekki.skal.lítið.gert.úr.þeirri. staðreynd.að.á.sumum.heimilin.býr.fólk.við. kröpp.kjör.og.mikla.ómegð ..En.geta.slíkar. ástæður. raunverulega. legið. að. baki. 852. fóstureyðingum.á.einu.ári.eins.og.reyndin. var.árið.1997? Mannslíf? Gjarnan. benda. þeir. sem. heimila. vilja.fóstureyðingar. á. að. fóstur. í. móður- kviði.sé.ekki.líf.í.sama.skilningi.og.líf.sem. lifað. getur. af. sjálfsdáðum,. að. raunar. sé. fóstrið. hluti. af. konunni. og. því. sé. henni. ekkert. til. fyrirstöðu. að. taka. sjálfstæða. og. óháða. ákvörðun. um. hvort. fóstrinu. skuli. eytt,.standi.vilji.til.þess . Tvennt.er.það.helst.sem.mælir.gegn.þessari. afstöðu ..Í. fyrsta. lagi.getur.það.ekki.staðist. að. fóstur. sé. hluti. af. líkama. konunnar. þó. vissulega.sé.það.háð.líkama.hennar ..Fóstrið. hefur. aðra. genasamsetningu. en. móðirin,. sem. er. eitt. helsta. einkennið. sem. horft. er. á. þegar. sérkenni. einstaklinga. eru. metin;. blóðflokkurinn.getur.einnig.verið.allt.annar .. Í.öðru.lagi.eru.til.einstaklingar.sem.ekki.geta. á.nokkurn.hátt.talist.sjálfstæðir.eða.óháðir. öðrum. einstaklingum. en. njóta. þó. fullrar. viðurkenningar. sem. fullgilt. líf .. Þar. má. t .a .m ..benda.á.ungabörn.sem.ekki.myndu. lifa.án.umönnunar.og.svo.einnig.aldrað.fólk. og. lasburða. sem. í. vissum. tilvikum. myndi. veslast. upp. og. deyja. nyti. það. ekki. fyllstu. aðstoðar. samfélags. og.fjölskyldu ..Af. þessu. tvennu.sést.það.að. fóstur.er. einstaklingur,. rétt.eins.og.móðir.þess.og.af.sömu.ástæðum. og.einnig.það.að. líf.getur.verið. fullgilt.og. jafngilt. öðru. lífi. þó. það. sé. háð. öðru. lífi .. Varla.heldur.nokkur.því.fram.að.stigsmunur. sé.á.lífi.sjálfstæðs.fullorðins.einstaklings.og. ungabarns. sem. liggur. varnarlaust. í. vöggu. og.bíður.þess.hverja.stund.að.vera.fætt.og. klætt .. Á. sama. hátt. og. ungabarnið. bíður. þeirrar. framtíðar. sem. felur. í. sér. sjálfstæði,. bíður. framtíð.hins.ófædda. fósturs,. sé.ekki. gripið.inn.í.hina.eðlilegu.þróun.lífsins . Sé.hægt.að. fallast.á.þá.skoðun.að.fóstur. sé. einstaklingur. sem. þó. sé. öðru. mannslífi. háður,.er.mikilvægt.að.velta.fyrir.sér.þeim. grundvallarspurningum. er. lúta. að. rétti. einstaklinga.til.lífs ..Það.hefur.löngum.þótt. ein. af. grundvallarskyldum.hvers. samfélags. að.standa.vörð.um.líf.þeirra.einstaklinga.sem. því.tilheyra ..Er.ríkisþingið.í.Suður-Dakóta.í. Bandaríkjunum.samþykkti.umdeild.lög.um. bann. við. fóstureyðingum. fyrr. á. þessu. ári. sagði.Mike.Rounds.ríkisstjóri.er.hann.lýsti. skoðun.sinni.á.fóstureyðingum: „Í.sögu.heimsins.hefur.hinn.raunverulegi. prófsteinn. siðmenningarinnar. verið. hver. meðferð. mannanna. hefur. verið. á. þeim. sem.höllustum.fæti.hafa.staðið. í. samfélagi. þeirra .“

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.