Þjóðmál - 01.09.2006, Blaðsíða 99
Egill Helgason um Fjölmiðla 2004
„... skyldulesning fyrir
áhugamenn um pólitík“
Hinir frábæru
fjölmiðlapistlar Ólafs Teits
í Viðskiptablaðinu eru nú
komnir út á bók annað
árið í röð.
Í þessum snörpu og
beinskeyttu pistlum rekur
Ólafur Teitur fjölmörg
dæmi um vafasöm og
ámælisverð vinnubrögð
fréttamanna. Kemur
glöggt í ljós að
fjölmiðlunum veitir
ekki af því aðhaldi
sem þeim er ætlað
að sýna öðrum.
„Fróðleg og gagnleg lesning, enda eru úrskurðirnir margir
afbragðsgóðir ... Óvenjuleg og skemmtileg bók [sem] á
erindi við allt áhugafólk um bætta fjölmiðlun.“
Þorbjörn Broddason um Fjölmiðla 2004.
Fréttablaðið, maí 2006
„Bók vikunnar“
Frásagnarsnilld Kristjáns
Albertssonar var alkunn. Hann lifði
söguríka tíma og hafði frá mörgu
að segja. Jakob F. Ásgeirsson
settist við fótskör Kristjáns í elli
hans þegar sjónleysi varnaði
honum ritstarfa. Úr samstarfi
þeirra varð til þessi dýrlega
minningabók.
Kristján lýsir samtíð sinni – öld
gleði og ljóma, harðneskju og
ófriðar, framfara og ævintýra – og
bregður upp ógleymanlegum
svipmyndum af nokkrum
samferðarmönnum sínum og
vinum, svo sem Matthíasi
Jochumssyni, Einari Benediktssyni,
Jóhanni Sigurjónssyni, Jóhannesi
Kjarval og Guðmundi Kamban.
„Þetta er bók, sem fólk ætti ekki að láta fram hjá sér fara.“
Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins.
„... afar forvitnileg bók svo ekki sé meira sagt.“
Erlendur Jónsson, Morgunblaðið.
„... bókin öll er á svipfögru en þó látlausu máli sem nautn
er að lesa.“
Andrés Kristjánsson, DV.