Þjóðmál - 01.12.2008, Page 82
80 Þjóðmál VETUR 2008
tíma á þessu tímabili í Lenínskólanum . Skafti
fæddist á Steini í Skarðshreppi í Skagafirði
1901 . Hann var skírður Gunnar Skafti, en gekk
ávallt undir Skaftanafninu einu . Hann fluttist
til Reykjavíkur 1924 og gerðist verkamaður .
Hann var einn af stofnendum Kommúnista-
flokks Íslands og starfaði einnig í Dagsbrún, þar
sem hann sat lengi í stjórn . Hann missti heilsuna
1964 og fékk eftir það vist á Reykjalundi, þar
sem hann lést 1979 . Eðvarð Sigurðsson sagði
í minningargrein um Skafta, að hann hefði
farið þrítugur til Moskvu og verið þar í eitt
ár .65 Skafti varð þrítugur vorið 1931 . En líklega
hefur hann ekki farið austur 1931, heldur
snemma árs 1932 eða jafnvel síðar . Ella hefði
hans verið getið í heimildum um nemendur þar
1931–1932 .
Líklega hefur Lilja Halblaub verið í Lenín-
skólanum um svipað leyti og þeir Stefán
Pjetursson, Kristján Júlíusson og Skafti
Einarsson, einhvern tímann á árunum
1933–1935 . Lilja fæddist í Þýskalandi 1912,
dóttir þýsks sjómanns af Gyðingaættum og
bóndadóttur úr Svarfaðardal . Hún kom með
móður sinni og bróður til Íslands í upphafi
fyrra stríðs og ólst upp á Hánefsstöðum . Hún
var skólasystir margra ungra kommúnista, þar á
meðal Hallgríms Hallgrímssonar og Benjamíns
Eiríkssonar, í Gagnfræðaskóla Akureyrar . Lilja
var í Reykjavík 10 . ágúst 1933,66 en Benjamín
Eiríksson, sem þekkti hana vel, rakst á hana í
Moskvu, eftir að hann kom þangað sumarið
1935 . Það hefur því verið í síðasta lagi haustið
1935, því að hún var komin heim til Íslands
í ársbyrjun 1936 (og hugsanlega fyrr) og sagði
frá þingi Alþjóðasambands ungra kommúnista
í Moskvu á fundi á Akureyri 6 . janúar 1936 og
sótti fund Félags ungra kommúnista í Reykjavík
8 . mars 1936 .67 Þess má geta til, að Lilja Halblaub
hafi gengið í Moskvu undir dulnefninu Nanna
Eggen . Heimildir eru til í Moskvu um íslenska
65 Eðvarð Sigurðsson: „Gunnar Skafti Einarsson,“ Þjv. 13 .
mars 1979 .
66 Lbs . án safnmarks . Fundargjörðabók Félags ungra
kommúnista í Reykjavík .
67 „Akureyrardeild K . F . Í .“ Verkamaðurinn 4 . janúar 1936;
Lbs . án safnmarks . Gögn frá Kommúnistaflokki Íslands .
Fundargerðabók Félags ungra kommúnista í Reykjavík .
konu undir því nafni 1934–1935 . Í skýrslu frá
1934 sagði um hana:68
Fél . Eggen sagði, að „þegar öreigastéttin hefur
sigrað algjörlega, þá getur stéttabaráttan ekki
harðnað“, þ . e . hún gekk framhjá baráttunni
fyrir að útrýma stórbændum (kúlökkum) og
sá aðeins árangurinn – hið stéttlausa þjóð-
félag .
Í bréfi 3 . mars 1935 sagði:69
Úr íslenska hópnum er lagt til, að eftir verði
Nanna Eggen, sem sér um verkalýðsfélag
skorarinnar . Áreiðanlegur félagi, kraftmikil,
atkvæðamikil, öguð . Hún og fél . Haugen eru
þeir stúdentar, sem hafa lag á að koma með
heilbrigðan og kröftugan flokksanda í hóp
nýrra stúdenta .
Lilja starfaði eftir Moskvudvölina á afgreiðslu
Þjóðviljans og nam síðan hjúkrun og gerðist
hjúkrunarkona . Hún var gift Höskuldi Stef-
ánssyni, verkamanni á Akureyri og bónda á
Syðri-Haga á Árskógsströnd . Hún lést 1973 .70
Eggert Þorbjarnarson hafði snúið heim til
Íslands 1933 eftir tveggja ára nám í Lenín skól-
anum . „Hann var meðal bestu nemenda . Talar
og les rússnesku,“ sögðu kennarar hans .71 Hann
var fenginn aftur utan haustið 1934 og starfaði á
skrifstofu Kominterns og í Lenínskólanum sem
kennari í Norður landaskor frá 15 . október 1934 .
„Hann vann samviskusamlega, tók virkan þátt
í flokkslífi skorarinnar,“ sögðu samstarfsmenn
hans . Fékk hann að snúa aftur til Íslands haustið
1937 .72 Eggert tók í ársbyrjun 1941 þátt í
dreifi bréfsmálinu ásamt þremur skólafélög um
sínum frá Moskvu, Hallgrími Hallgríms syni,
Haraldi Bjarnasyni og Helga Guðlaugs syni,
og var framkvæmdastjóri Sósíalistaflokks ins
frá 1942 til 1956, þegar Ingi R . Helgason tók
68 Arnór Hannibalsson: Moskvulínan, bls . 118 . Komintern:
531 1 216 .
69 Arnór Hannibalsson: Moskvulínan, bls . 118 . Komintern:
531 1 217, 12 .
70 Sbr . auglýsingu frá fjölskyldu hennar í Mbl. 9 . desember
1973 .
71 Arnór Hannibalsson: Moskvulínan, bls . 118-9 .
Komintern: 531 1 215 .
72 Arnór Hannibalsson: Moskvulínan, bls . 119 . Komintern:
531 1 219, 99 .