Þjóðmál - 01.06.2009, Blaðsíða 43
Þjóðmál SUmAR 2009 41
Zeit ung um Ólaf Ragnar á vefsíðu sinni og
sagði hann valda Íslendingum sífellt meiri
vandræðum með skapbræði sinni . Síðast
hefði hann valdið titringi hjá þýskum
sparifj áreigendum með ummælum í þýsk-
um fjölmiðlum . Rætt er um pólitíska
fortíð Ólafs; hann hafi verið þekktur fyrir
að standa uppi í hárinu á andstæðingum
sínum og það hafi lítið breyst eftir að
hann settist að á bessastöðum . nú virðist
sem Ólafur, sem þrisvar sinnum hafi verið
kosinn af þjóðinni, hafi misstigið sig .
Hann hafi afsakað tilraun sína til að kenna
erlendum þjóðum um efnahagskreppuna á
Íslandi, með því að hann hafi aðeins viljað
ljá íslensku þjóðinni rödd sína . (!)
Í greininni segir að í lok nóvember hafi
Ólafur átt fund með sendiherrum og
gert veður út af því að bretar hafi fryst
eigur Íslendinga í bretlandi með notkun
hryðjuverkalaga . Þrátt fyrir vafasamar
aðgerðir breta hafi Ólafur hagað sér eins
og lýðskrumari . Hegðun hans hafi verið
óviðeigandi í ljósi þeirrar milljarðaaðstoðar
sem erlendar þjóðir hafi lofað Íslandi . Ólafi
hljóti að hafa verið kunnugt um glæfraskap
íslenskra bankamanna .
Greinarhöfundur ályktar að Ólafur grafi
undan tilraunum nýrrar ríkisstjórnar til
að endurvekja traust og tiltrú á Íslandi á
alþjóðavettvangi . Það sé erfitt verk þegar
svo skapstór maður sitji á forsetastóli .
Kveikjan að umfjöllun blaðsins er greinin
í FT Deutschland . Ólafur Ragnar sagði í
yfirlýsingu þann 11 . febrúar að rangt hefði
verið eftir sér haft .
Málinu var þó ekki lokið, því björn
bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokks sá
ástæðu til þess að taka málið upp í utan-
ríkis málanefnd Alþingis . Óskaði björn
eftir skýrslu frá utanríkisráðuneyti um hver
viðbrögð þess yrðu við þeim misskilningi
sem hlaust af ummælum Ólafs Ragnars um
innistæður sparifjáreigenda í Þýskalandi .
Fram kom í fréttum RÚV að björn teldi að
þótt völd forseta Íslands væru takmörkuð
hér á landi, væri ekki útilokað að ummæli
hans gætu skuldbundið Íslendinga gagnvart
öðrum þjóðum . björn vildi fá svör við því
hvað utanríkisráðuneytið hefði gert til
að lægja öldurnar í Þýskalandi . Augljóst
væri á fréttum að viðtalið við forsetann
hefði vakið mjög neikvæða umræðu um
Ísland og skýra þyrfti fyrir Þjóðverjum að
forsetinn hefði ekki umboð til að binda
þjóðina á neinn veg .
blaðrið orðið efnahagsvandamál
Ekki skánaði ímynd Ólafs í augum þjóðarinnar þegar við bættist vand-
ræða legt viðtal Ólafs og demanta drottn-
ing ar innar Dorrit í tímaritinu Condé Nast
Portfolio: „Þau rifust mikið fyrir framan mig
meðan á viðtalinu stóð og virtust skoðana-
skipti þeirra endurspegla hve ólík þau eru .
Ég myndi segja að efnahagsástandið hafi
gert þennan mun meira áberandi, „sagði
blaðamaður Condé Nast, joshua Hammer,
í samtali við DV . Viðtalið í Portfolio birt ist
þegar Þýskalandsklúðrið stóð sem hæst og
reyndar voru yfirlýsingar forsetans farnar
að minna á orð Ólafs Ragnars sjálfs forðum
þegar hann var þingmaður:
,,Að blaðrið í tilteknum manni væri orð ið
alvarlegt efnahagsvandamál . . . “
bloggheimar fóru að loga og fáir höfðu
hrósyrði um forsetann: ,,Þetta er viðkvæmt
mál – og langt frá því að vera snjallt að auka
reiði erlendis út í okkur – með svona blaðri
um mál sem heyra ekkert undir hann . Það
er ekki hlutverk forsetans að tjá sig um
svona hrikalega viðkvæm pólitísk deilumál
– á ögurstundu,“ sagði Ari .
Gylfi sagði: ,,Forsetinn stórskaðaði þjóð-
ina með því að styðja fjárglæframenn og
lofsyngja þá í útlöndum . Hann heldur
enn áfram að stórskaða þjóðina með yfir-