Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2010, Page 19

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2010, Page 19
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 86. árg. 2010 15 nægilega langt niður á hálsinn og ég hef átt í mestu vandræðum að fá þær til að tolla almennilega. Þegar maður er hárlaus er hálsinn ber og manni verður kalt. Ég hef því vafið silkiklút um höfuðið og set húfu yfir. Það er full þörf á því að auka framboð á höfuðfatnaði sem hentar fyrir hárlausar konur því sá hópur fer því miður stækkandi,“ segir Björg enn fremur. Atvinnumissir Björg syndir á hverjum morgni og bendir hlæjandi á að það væri ekki auðvelt fyrir konu með álímdar augabrúnir að fara í sund. Hún er meðvituð um heilbrigðan lífsstíl og hefur alltaf borðað hollan og góðan mat. „Ég reyni að sneiða hjá óhollustu. Borða helst ekki unnar matvörur þótt ég geri undantekningu með hangikjöt á jólunum. Ég dvaldi um tíma á heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði og þar var mjög gott að vera. Ég hef alltaf borðað mikið af grænmeti og ávöxtum þannig að það var ekki af óhollustu sem ég fékk krabbamein,“ bætir hún við. „Þegar ég fór á þennan fund hvarflaði ekki að mér að það ætti að reka mig.“ Þegar efnahagshrunið skall yfir landið missti Björg vinnuna eftir áratuga starf í Landsbankanum. Það var í október 2008. „Tveimur dögum áður en ég var rekin var öllum í minni deild í bankanum tilkynnt að við myndum halda okkar störfum. Við þyrftum því ekki að hafa áhyggjur. Ég var síðan boðuð á fund klukkan hálffimm á föstudegi með tveimur framkvæmdastjórum bankans og þar var mér sagt upp störfum. Ástæða þess var sú að sama morgun hafði ég sagt í kaffitíma með samstarfsmönnum að yfirmenn bankanna ættu að bera ábyrgð á því sem þeir hefðu gert. Þessi orð mín bárust til eyrna yfirmanna með þessum afleiðingum. Þegar ég fór á þennan fund hvarflaði ekki að mér að það ætti að reka mig. Fram kvæmdastjóri starfs mannasviðs tjáði mér að ég hefði neikvætt viðhorf til yfirmanna og ég fengi ekki starf í „nýjum banka“. Annar þessara manna, sem rak mig, var sjálfur rekinn stuttu síðar fyrir meint misferli í starfi. Þetta var mikið áfall fyrir mig, sérstaklega vegna þess að ég átti bara tvö ár eftir til að ná eftirlaunaaldri samkvæmt 95 ára reglum eftirlaunasjóðs bankamanna. Mér var boðinn starfslokasamningur sem ég varð að sætta mig við. Ég hafði starfað töluvert í félagsmálum starfsmanna í gegnum árin, meðal annars í kjaramálum sem formaður starfsmannafélagsins, og vissi nákvæmlega hvaða rétt ég hafði. Ég fékk hins vegar ekki frest til að fara betur yfir samninginn,“ segir Björg sem var á leið í leikhús þetta kvöld. Slík skemmtun var henni ekki ofarlega í huga þegar hún gekk út af vinnustað sínum um margra ára skeið þennan dag. Úr banka í listsköpun Þegar Björg hætti að vinna lét hún gamlan draum rætast og fór að læra að mála. Hún sótti námskeið í Myndlistarskóla Kópavogs og nú er hún í hópi kvenna í Garðabæ sem nema myndlist saman. Einnig stundaði hún nám í hönnun og listum í Iðnskólanum í Hafnarfirði sl. vetur. Björg er með vinnustofu á Garðatorgi í Garðabæ ásamt sjö öðrum listakonum og dvelur þar löngum stundum og málar. „Í myndlistinni hef ég kynnst mörgu góðu fólki og mér finnst alveg frábært að hafa þetta áhugamál. Það deyfði áfallið við að missa vinnuna,“ segir þessi duglega kona að lokum.   

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.