Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2010, Page 27
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 86. árg. 2010 23
við „veit ekki“. Af 63 þátttakendum vantaði
svör hjá fjórtán hjúkrunarfræðingum
varðandi spurningu númer 11 og nítján
létu spurningu númer 11a) ósvarað,
mjög líklega vegna þess að vitneskja um
kólesterólgildi blóðs var ekki til staðar.
Niðurstöður þessarar könnunar teljast
vera þokkalegar til góðar og þeir sem
hafa áhuga á að bæta heilsuvenjurnar
geta séð á hvaða sviði þeir þurfa að taka
sig á til heilsueflingar. Talið er að þeir
sem eru undir 60 heilsustigum þurfi vel
skilgreind markmið, ráðgjöf og hvatningu
til að ná betri árangri fyrir vellíðan og
framtíðarheilsu. Heilsustuðull yfir 70 er
talinn nokkuð góður og fólk sem hefur
áhuga á að bæta sig enn frekar getur
náð því með að taka ábyrgð á eigin
heilsu og velja heilsusamlegar lífsvenjur.
Mælt er með því að bæta heilsulæsi
almennings og hvetja fólk til að vera
betur meðvitað um andlegar, líkamlegar
og félagslegar heilsuvenjur. Hér ganga
hjúkrunarfræðingar á undan með góðu
fordæmi, þeir eru góðar fyrirmyndir og
forgangsraða forvörnum.
Sólfríður Guðmundsdóttir er hjúkrunarfræðingur
með meistaragráðu í fjölskylduhjúkrun og doktors
gráðu í stjórnun lýðheilsu. Hún starfar við
Rann sóknastofnun í hjúkrunarfræði og er ráðin
tíma bundið til FÍH til að stuðla að heilsueflingu
félagsmanna.
1. Stundar þú líkamsþjálfun?
2a. Borðar þú fisk?
2b. Borðar þú hnetur/möndlur?
3. Skammtar af grófu kornmeti
4a. Skammtar af ávöxtum
4b. Skammtar af grænmeti
5: Vatnsdrykkja
6. Þyngd: Líkamsþyngdarstuðull
7. Hamingjumat
8. Svefn í 78 tíma
9. Félagslegur stuðningur
10. Blóðþrýstingur
11a. Heildarkólesteról
11b. LDL – kólesteról
12. Forðast reykingar
Mynd 1. Samanburður á mati hópsins miðað við heilsuvenjur og heilsumælingar.
0 10 20 30 40 50 60 70 80 90
75
27
48
62
41
61
82
65
78
77
84
76
61
55
83
Árangur
daglegar venjur eru með áhættugreiningu
fyrir framtíðarheilsufar. Þessar spurningar
og stigakerfi er byggt á niðurstöðum
bandarískra langtímarannsókna.
Heilsustuðull þessara hjúkrunarfræðinga
var frá 25 til 92 stigum af 100 mögulegum
og var meðaltalið 68 stig. Í flestum tilfellum
voru aðeins einn til tveir hjúkrunarfræðingar
með sama heilsustigafjölda, en mest voru
fjórir einstaklingar með sama heilsustig
(69, 70, 72).
Þegar athugað er hvaða heilsuvenjur koma
best út hjá þessum hjúkrunarfræðingum
sést að félagslegur stuðningur er almennt
mjög góður, það er flestir áttu maka
eða sambýling, höfðu gott samband
við fjölskyldu eða vini og tóku reglulega
þátt í félagsstarfi. Í öðru sæti er að vera
laus við reykingar og forðast óbeinar
reykingar og í þriðja sæti er dugnaður við
að drekka hæfilegt magn af vatni (5 glös
eða fleiri á dag). Það sem kemur verst út
er takmörkuð neysla á fiski, ávöxtum og
hnetum.
Spurning 11og 11a) var um LDL (vonda
kólesterólið) og heildarkólesterólgildi í
blóði. Ekki var gefinn kostur á að merkja
um félags störf hjúkrunar fræðinga. Auk
þess bregður hún upp áhuga verðum og
persónulegum myndum af lífi hjúkrunar-
fræðinga og hjúkrunarfræðinema fyrr á
tímum.
Nær 1600 manns hafa þegar skráð sig
fyrir kaupum á bókinni og greiðsluseðlar
hafa verið sendir þeim sem ekki hafa
greitt bókina á annan hátt. Skráðir
kaupendur eru hvattir til að ganga frá
greiðslu og sækja bókina á skrifstofu
félagsins eða óska eftir að fá hana.
Fastus ehf. | Síðumúla 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is
Yogabuxur, leggins,
stuðningsbrjósta
haldarar og ýmiss
aðhaldsfatnaður
Mikið að
hald,
góð önd
un,
stærðir X
S4XL