Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2010, Page 62
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 86. árg. 201058
að byggja mætti kvarða til að meta hvern þátt. Þáttagreining
var framkvæmd fyrir hverja spurningu fyrir sig (principal
component, hornréttur snúningur) og miðað við þáttahleðslur
0,40 og hærri. Eigingildi hærri en 1,00 og skriðupróf gáfu til
kynna þrjá undirliggjandi þætti. Þættirnir, sem voru kallaðir
fjölmiðlar, sérfræðingar og internet, útskýrðu 67,7% af dreifingu
spurningarinnar hversu oft rekist væri á upplýsingar, 67,3%
spurningar um gagnsemi og 70,3% spurningar um áreiðanleika
upplýsinga. Innri áreiðanleiki (Chronbacksalpha) var á bilinu
0,82 til 0,92 fyrir kvarðana Rekist á upplýsingar, 0,83 til 0,91
fyrir Mat á gagnsemi upplýsinga og 0,85 til 0,92 fyrir Mat á
áreiðanleika upplýsinga.
(5) Heilsuhegðun. Spurt var fimm spurninga um neyslu ávaxta
og grænmetis. Notaður var átta punkta kvarði (aldrei – 1 dag í
viku – 2–4 daga í viku – 5–6 daga í viku – á hverjum degi, einu
sinni á dag – á hverjum degi, tvisvar á dag – á hverjum degi,
oftar en tvisvar á dag). Einnig var spurt hversu oft viðkomandi
hreyfði sig þannig að hann mæddist, hjartsláttur ykist verulega
eða hann svitnaði og beðið um að miðað væri við síðastliðna
3 mánuði. Fimm punkta kvarði var notaður (fimm sinnum í viku
eða oftar – aldrei).
Úrvinnsla
Klasagreining (kmeðalgildisaðferð) var notuð til að draga
þátttakendur í fjóra klasa út frá því hversu oft þeir leituðu
upplýsinga af ásetningi. Einungis þátttakendur, sem svöruðu
spurningum um allar heimildirnar sem spurt var um, voru teknir
með (39%). Klasagreining var valin vegna þess að hún gaf tækifæri
til að draga upp mynd sem er frábrugðin því sem fengist hefði við
hefðbundnari aðferðir við greiningu þar sem bakgrunnsbreytur eru
notaðar (Everitt, o.fl., 2000). Þegar kmeðalgildisaðferðin er notuð
þarf að ákveða fjölda klasa fyrir fram. Byggt var á fræðilegum
forsendum sem urðu til við fyrri rannsókn (Ágústa Pálsdóttir, 2005)
þar sem klasagreining var framkvæmd í tveimur skrefum. Með
Wardsaðferð var dregið upp klasatré til að fá hugmynd um fjölda
klasa (Aldenderfer og Blashfield, 1984) og gáfu niðurstöðurnar
til kynna að klasarnir væru á bilinu þrír til fjórir. Mælt er með að
miða við hæsta mögulegan fjölda kasa (Everitt o.fl., 2000) og var
þátttakendum skipt í fjóra klasa með kmeðalgildisaðferð (Ágústa
Pálsdóttir, 2009, 2010).
Athugað var hvort marktækur munur væri á því hversu oft
meðlimir klasanna fjögurra leituðu upplýsinga af ásetningi með
einþátta ANOVA og framkvæmd marktektarpróf (Tukey) fyrir
hverja heimild og einnig fyrir upplýsingamiðlana fjóra. Reiknuð
voru 95% öryggisbil í kringum meðaltöl upplýsingamiðlanna
fyrir hvern klasa fyrir sig til að athuga hvort marktækur munur
væri á meðaltölum milli ólíkra upplýsingamiðla innan hvers
klasa. Ef öryggisbil upplýsingamiðlanna skarast ekki má
segja með 95% öryggi að tölfræðilega marktækur munur sé
á meðaltölunum innan hvers klasa. Skarist öryggisbilin er
munurinn á meðaltölunum ekki tölfræðilega marktækur.
Sambandið milli klasanna og breytanna að rekast á upplýsingar,
gagnsemi upplýsinga og áreiðanleiki upplýsinga var greint
með einþátta ANOVU eða veldisvísagreiningu, marktektarpróf
(Tukey) framkvæmt og reiknuð 95% öryggisbil í kringum
meðaltöl upplýsingamiðlanna hjá hverjum klasa fyrir sig.
Loks var einþátta ANOVA notuð til að greina sambandið milli
klasanna og breytanna sem mæla mataræði og breytunnar
sem mælir hreyfingu og marktektarpróf (Tukey) framkvæmt.
Tafla 2. Lýðfræðileg einkenni klasanna.
Óvirkir
% (fjöldi)
Miðlungsóvirkir
% (fjöldi)
Miðlungsvirkir
% (fjöldi)
Virkir
% (fjöldi)
Kyn χ2(3)=23,78, p=0,001
Karlar 64,9 (96) 21,2 (11) 41,0 (43) 35,7 (30)
Konur 35,1 (52) 78,8 (41) 59,0 (62) 64,3 (54)
Alls 100 (148) 100 (52) 100 (105) 100 (84)
Aldur χ2(12)=40,29, p=0,001
1829 15,6 (23) 30,8 (16) 9,6 (10) 26,2 (22)
3039 19,7 (29) 17,3 (9) 20,2 (21) 29,7 (25)
4049 18,4 (27) 32,7 (17) 23,1 (24) 22,6 (19)
5059 20,7 (31) 9,6 (5) 19,2 (20) 16,7 (14)
6080 25,9 (38) 9,6 (5) 27,9 (30) 4,8 (4)
Alls 100 (148) 100 (52) 100 (105) 100 (84)
Menntun χ2(6)=18,40, p=0,010)
Grunnskóli 28,4 (42) 17,4 (9) 29,8 (32) 19,1 (16)
Framhaldsskóli 47,3 (70) 28,8 (15) 39,4 (41) 47,6 (40)
Háskóli 24,3 (36) 53,8 (28) 30,8 (32) 33,3 (28)
Alls 100 (148) 100 (52) 100 (105) 100 (84)