Þjóðmál - 01.03.2010, Side 6

Þjóðmál - 01.03.2010, Side 6
4 Þjóðmál VOR 2010 eftir skulda kóngana . Það er til dæmis lífsins ómögulegt fyrir al menn ing að bera virðingu fyrir banka starfsemi þar sem menn með siðferðisþrótt Finns Svein björns sonar eru mikils ráð andi . Hvern ig í ósköp unum gat það gerst að mað ur inn sem stýrði hinni vitfirr- ingslegu Icebank-útrás spari sjóðanna var ráðinn til að byggja upp banka kerfið á nýjum og heil brigðum grunni? Ef marka má heimasíðu Viðskiptaráðs hefur ný stjórn þess ekki enn komið því í verk að skipta um fram kvæmda stjóra . Það hafa gagnrýnendur óspart nýtt sér til að gera markaðs áherslur Við skiptaráðs tor- tryggi legar . Þjónkun fram kvæmda stjór ans (Finns Oddssonar) við yfir boð ara sína þeg- ar skuldakóng arn ir réðu lögum og lof um í stjórn Við skipta ráðs gekk út yfir allt vel- sæmi, sbr . margvísleg spreng hlægi leg um- mæli hans um „útrásina“ . Þetta er meginvandi okkar um þessar mund ir – tregðan við að skipta út fólkinu sem var í brúnni í strandsiglingu skulda- kóng anna . Það verður að víkja ef við viljum byggja upp heilbrigðara fjármálalíf . Það þarf sem sagt að hreinsa almennilega til . Það er vissulega sársaukafullt en ef við viljum búa í samfélagi sem ekki er gegnsýrt af hatri, rógi og Chomsky/Michael Moore- rausi verða þeir sem veljast til forystu í stjórnmálum og viðskiptalífi að hafa dug í sér til þess að taka ærlega til hendi . Það mun ekki skapast sæmileg sátt í landinu nema það verði merkj an leg skil við „útrásar“-tímann . Á takanlegt er að fylgjast með getuleysi ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur til að takast á við þau vandamál sem blasa við þjóðinni . Ekki er fjarri lagi að þessi ríkis- stjórn hafi unnið landinu meiri skaða með úrræðaleysi sínu en hlaust af hruni bank anna . Heimilunum blæðir út og fyrirtækin berjast í bökkum . Eina ráð ríkis stjórnarinnar er að stórhækka skatta – með þeim afleiðing um að útgjöld heimilanna hækka og starfsemi fyrirtækja dregst enn frekar saman . Um þetta er meðal annars fjallað í grein Ragnars Árnasonar í þessu hefti, bls . 27–30, og nýrri bók Hann esar Hólmsteins Gissurar sonar, Áhrif skattahækkana á hagvöxt og lífskjör, sem fylgir þessu vorhefti sem gjöf til áskrifenda . Landsmenn, jafnt sem út- lend ingar, fylgjast furðu lostn ir með framgöngu ráð herra rík is- stjórnar innar í Icesave-mál inu . Aldrei í sögu þjóð ar innar hafa ráðamenn þess gengið jafn augljóslega gegn hags mun um fólksins í land inu . Hingað til hafa Íslend ingar mátt treysta því að ráðamenn þeirra, úr hvaða stjórn málaflokki sem er, stæðu keikir gagn vart er- lend um valds mönnum og berðust fram í rauð an dauð- ann fyrir mál stað Íslands . Með þeim hætti höfðum við okkar fram í sjálf stæðis bar átt unni, land helgisdeilunum og sam-

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.