Þjóðmál - 01.03.2010, Qupperneq 18
16 Þjóðmál VOR 2010
Fréttaskýringu EUReferendum lýkur hins
vegar á þessum orðum:
Til þess er að líta að með 500 .000 dollara í
bankanum og peningaflæði frá ESB þá hefur
[IPCC] skýrslan þjónað tilgangi sínum og
hann [Pachauri] hefur efni á að ganga á brott
frá henni .
Hinn 22. janúar 2010 játaði dr . Pachauri, að sögn indversku frétta-
stof unnar DNA, að gerð hefðu verið
„mann leg mistök“ við mat á jöklabráðnun
í Hima lajafjöllunum í skýrslu IPCC 2007,
þar sem stóð, að þeir yrðu horfnir 2035
vegna hlýnunar jarðar . Sagði hann mistökin
„óheppileg“ en hann ætlaði ekki að segja af
sér formennsku í IPCC . Hann mundi ljúka
við fimmtu matsskýrslu IPCC .
Hinn 5. febrúar 2010 birti breska blaðið
The Daily Telegraph frétt um, að ríkisstjórn
Indlands hefði skipað eigið ráð til að fylgjast
með áhrifum af hlýnun jarðar, þar sem
ekki væri unnt að treysta á loftslagsnefnd
Sameinuðu þjóðanna (IPCC) undir stjórn
dr . Pachauris . Segir blaðið, að með þessu sé
veist að IPCC og dr . Pachauri, þegar hann
hafi orðið að snúast til varnar mannorði
sínu vegna rangfærslna í IPCC-skýrslu um,
að Himalajajöklarnir verði horfnir árið
2035 . Vísindamenn telji að meira en 300 ár
líði þar til jöklarnir hverfi .
The Daily Telegraph segir, að vegna hinna
röngu fullyrðinga um bráðnun jökl anna
hafi spenna magnast milli dr . Pachauris og
ind versku ríkisstjórnarinnar . Umhverfis-
ráð herra Indlands, Jairam Ramesh, hafi
sagt sl . haust að vissulega væri bráðnun í
Himalaja áhyggjuefni, en hins vegar væru
vísbendingar um að jöklar væru að stækka
þrátt fyrir hlýnun jarðar . Dr . Pachauri hafi
sagt slíkt tal til marks um „voodoo vísindi“
en nú hefði ráðherrann ýtt formanni IPCC
til hliðar með því að setja á fót stofnunina
National Institute of Himalayan Glaciology
til að fylgjast með áhrifum loftslagsbreyt-
inga á „þriðju íshellu“ jarðar og „indverskt
IPCC“ til að nýta „loftslagsvísindi“ við mat
á áhrifum hlýnunar jarðar í landinu öllu .
Undir hatti hinnar nýju indversku stofnunar
verði 125 rannsóknastofnanir alls staðar á
Indlandi .
Á vefsíðu vikuritsins The Economist má lesa 5. febrúar 2010:
Síðasti mánuður hefur verið slæmur fyrir
Rajendra Pachauri, hinn seiðmagnaða for-
mann loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna
(IPCC) og forstjóra TERI, indverskrar
rann sóknarstofnunar . Seta hans í fjölda af
stjórn um og ráðgjafanefndum á Indlandi
og annars staðar hefur kallað fram ásakanir
um hags muna árekstur . Eftir vanstillta vörn
hans á mistökum vegna Himalaja-jöklanna
í nýjustu skýrslu IPCC varð hann að biðjast
afsökunar opinberlega þegar við blasti að
IPCC hafði haft rangt fyrir sér – og heimild
skýrslunnar var tímaritsgrein en ekki grein í
vísindariti . Við þetta bætist síðan að með því
að gera grín að dálítið klámfengnum köflum
í nýlegri skáldsögu hans (hann yrkir einnig
ljóð) hafa menn kryddað enn frekar sögur
um hann .
Dr . Pachauri heldur því fram, að hin ranga
fullyrðing um jöklana – að þeir myndu hverfa
2035 – „hafi aldrei í raun vakið athygli mína“
fyrir síðustu áramót, þótt tilefni til þess
hafi verið fjölmörg . Syed Hasnain, vísinda-
maðurinn sem er í blöðum borinn fyrir
ártalinu (þótt hann neiti að hafa nefnt það),
er nú ráðgjafi hjá TERI, þótt dr . Pachauri
segist „varla“ hitta hann . Fullyrðingin var
áberandi í ræðu sem Anastasios Kentarchos
frá Evrópusambandinu flutti á fundi á vegum
TERI, þar sem dr . Pachauri var kynntur sem
aðalræðumaður . Dr . Pachauri segist hins
vegar hafa farið strax eftir ræðu sína án þess
að taka þátt í fundinum . Pallava Bagla, sem
vakti almenna athygli á málinu í Science í
nóvember sl ., segist hafa rætt málið við dr .
Pachauri og sent honum tölvupóst um það .