Þjóðmál - 01.03.2010, Side 40
38 Þjóðmál VOR 2010
kallað afnotagjald . Sé miðað við síðasta
reikningsár fyrirtækisins má reikna með að
auglýsingatekjur og kostun gefi fyrirtækinu
um eða yfir 1 .200 milljónir til viðbótar .
Alls hefur Ríkisútvarpið því úr að spila um
eða yfir 4 .400 milljónum króna á ári og eru
þá ótaldar aðrar tekjur sem námu yfir 200
milljónum .
Hér er um gríðarlegar fjárhæðir að ræða,
en í þessu sambandi má benda á að ríkis-
stjórnin hefur nýlega samþykkt að leggja
Byggðastofnun til 3 .600 milljónir í aukið
eigið fé og er það hluti af stefnu í upp-
byggingu atvinnulífsins . Ráðstöfunarfé
Ríkis út varpsins á þessu ári verður að líkind-
um um eitt þúsund milljónum króna hærra,
en það sem ákveðið hefur verið að leggja í
Byggða stofnun .
Í liðnum mánuði var 29 starfsmönnum
Ríkis útvarpsins sagt upp störfum og var það
hluti af aðhaldsaðgerðum sem nauðsynlegt
er að grípa til . Samhliða þessu tilkynnti
Páll Magnússon útvarpsstjóri að stórlega
yrði dregið úr innkaupum á innlendu sjón-
varpsefni, s .s . heimildarmyndum og minna
fé varið í kaup á sýningarrétti á innlendum
kvikmyndum .
Margt reynslumikið og hæfileikaríkt
fólk sem sinnt hefur sínum störfum af trú-
mennsku var látið taka pokann sinn og var
kaldranalega staðið að verki í einhverjum
tilvikum, eins og komið hefur fram í fréttum .
Reiði íslenskra kvikmyndagerðarmanna í
garð stjórnenda Ríkisútvarpsins er einnig
skiljanleg enda kaup fyrirtækisins á innlendu
sjónvarps- og kvikmyndaefni forsenda fyrir
rekstri margra í greininni .
Vandræðabarn
Sá sem þetta ritar óttast að enn og aftur verði reynt að lappa upp á Ríkisútvarpið
til að tryggja að stofnunin starfi áfram í
óbreyttri mynd . Fyrirtækið verður því vand-
ræða barn sem sinna þarf á nokkurra ára
fresti svo ekki verði siglt í strand . Því miður
virðist sem meirihluti stjórnmálamanna sé
tilbúinn til að standa vörð um fyrirtæki sem
er líkt og steinrunninn þurs í nútíma sam-
félagi . Tæknin, breyttar aðstæður og breytt
viðhorf kalla á nýja hugsun og nálgun . Hér
er því eftirfarandi lagt til:
1. Ríkisútvarpið lagt niður í núverandi
mynd . Fasteignir fyrirtækisins (þá fyrst og
fremst Efstaleiti) seldar og skuldir greiddar
niður og starfsemin flutt í lítið og hentugt
húsnæði . Að teknu tilliti til veltufjármuna
má gera ráð fyrir að hægt sé að lækka
skuldir um allt að 4 .000 milljónir króna
á nokkrum mánuðum . Raunar má gera
ráð fyrir að innan tveggja ára frá því að
ákvörðun er tekin, verði Ríkisútvarpið
skuldlaust og gott betur . Þá er gengið út
frá að eignir fyrirtækisins séu metnar með
réttum hætti í ársreikningi .
2. Ríkisútvarpið rekur eina útvarpsrás og
eina sjónvarpsrás .
3. Ríkisútvarpið hættir allri dagskrárgerð,
fyrir utan að reka fréttastofu fyrir útvarp
en sjónvarpsfréttir verða lagðar niður .
(Eftir að fréttastofur Sjónvarps og Útvarps
voru sameinaðar, hafa sjónvarpsfréttir
ekki orðið mikið meira en útvarpsfréttir í
mynd, og að stærstum hluta endurtekning
á útvarpsfréttum .) Einkareknum útvarps-
stöðvum verði heimilt að útvarpa frétta-
tímum RÚV óski þær þess . (Hér verður
ekki farið í að deila um hvort rétt sé að
ríkið reki sérstaka fréttastofu) .
4. Ríkisútvarpið hættir kaupum á öllu
af þreyingarefni frá erlendum aðilum en
heldur samningum við norrænar ríkis-
sjónvarpsstöðvar . RÚV getur eftir sem
áður keypt erlent fræðslu- og menn-
ingarefni enda fari sá kostnaður ekki yfir
10% af heildardagskrárkostnaði . Sett
verði regla um að erlent dagskrárefni