Þjóðmál - 01.03.2010, Qupperneq 41
Þjóðmál VOR 2010 39
fari aldrei yfir 20% af útsendingartíma í
hverjum mánuði .
5. Allt dagskrárefni útvarps og sjónvarps,
annað en fréttir, verður keypt af inn lend-
um aðilum samkvæmt ákveðinni dag-
skrár stefnu .
6. Ríkisútvarpinu verður bannað að selja
auglýsingar eða kostun á einstökum dag-
skrár liðum
Með þessum breytingum verður til lítið
ríkis fyrirtæki með nokkrum tugum starfs-
manna, sem sinna fréttaflutningi, útsend-
ingar stjórn og yfirumsjón með efniskaup-
um . Á síðasta reikningsári Ríkisútvarpsins
nam heildarlaunakostnaður 2 .039 milljón-
um króna en meðalfjöldi fastráðinna starfs-
manna var 307 . Meðalkostnaður á hvert
stöðugildi var því liðlega 550 þúsund
krónur á mánuði . Heildarlaun og þóknanir
til tíu helstu stjórnenda stofnunarinnar
námu 100 milljónum króna .
Fjármagnskostnaður hærri
en framlög til kvikmynda
Hér eru ekki tök á því að leggja fram heild stæða rekstraráætlun fyrir hið
nýja Ríkisút varp . Hins vegar má ljóst vera
að samkvæmt þessum tillögum verður
rekstrarkostnaður varla yfir 800 milljónum
króna með út send ingar- og dreifi ngar-
kostn aði . Mestur verð ur sparnað urinn í
launa-, húsnæðis- og fjár magns kostn aði . Í
þessu sambandi má til dæmis benda á að
Ríkisútvarpið greiddi lið lega 2 .230 milljón-
ir króna í fjár magns kostn að 2006 til lok
ágúst 2009 miðað við verð lag hvers árs .
Þetta er hærri fjárhæð en ríkis sjóður lagði
til kvik mynda gerðar frá 2006 til 2009 eða
rúm lega 2 .100 milljónir .
Sé miðað við fjárlög yfirstandandi árs verð -
ur framlag til Ríkisútvarpsins í gegnum út -
varps g jaldið um 3 .218 milljónir króna, eins
og áður sagði . Sé mat á væntanlegum rekstr-
ar kostnaði Ríkisútvarpsins með breyt ingum
rétt standa því eftir um 2 .418 milljónir
króna . Þessum fjármunum verður ráðstafað
óskiptum til innlendrar dagskrárgerðar að
frádregnum 10% í kaup á erlendu efni .
Með öðrum orðum: Ríkisútvarpið kaupir af
innlendum kvikmynda-, dagskrárgerðar- og
listamönnum efni fyrir nær 2 .200 milljónir
króna á hverju ári . Hér er um að ræða þætti
í útvarpi og sjónvarpi á öllum sviðum;
kvikmyndir, framhaldsþættir, skemmti-
þætt ir, umræðuþættir, fréttaskýr i nga þættir,
tón list, leikrit, heimilda- og fræðslu þættir,
svo eitthvað sé nefnt .
Allt mun krauma
Hér er það fullyrt að ef þessi leið verður farin mun allt þjóðfélagið krauma .
Við munum leysa úr læðingi krafta og hug-
myndas köpun sem auðgar íslenskt menn-
ingar- og viðskiptalíf langt umfram drauma .
Íslendingar verða í sérflokki þegar kemur að
listum og menningu . Engin þjóð í heiminum
mun verja jafnmiklum fjár munum með
beinum hætti til lista og menningar og
varðveislu eigin sögu og tungu . Við munum
sjá sprengingu sem á sér vart líka og skapa
áður óþekkt skilyrði fyrir fullhuga á öllum
sviðum sköpunar . Og best af öllu er að
þjóðfélagið allt verður skemmtilegra .
Íslendingar njóta þeirrar gæfu að eiga
ótrúlega hæfileikaríkt fólk á öllum sviðum
lista og menningar . Vandinn er sá að við
erum að sóa fjármunum á þessu sviði .
Besta dæmið er Ríkisútvarpið . Því miður
virðist sem lítill pólitískur vilji sé til þess
að bæta þar úr . Alveg með sama hætti og
þingmenn virðast ekki skilja að við erum
á miklum villigötum þegar kemur að því
að ákveða með hvaða hætti sameiginlegum
fjármunum er varið til að styðja við listir og
menningu, óháð því hvort það er hlutverk