Þjóðmál - 01.03.2010, Síða 43
Þjóðmál VOR 2010 41
Ég hóf störf í banka árið 2006 . Fékk starfs titilinn „analyst“ á ensku sem var
iðulega þýtt sem sérfræðingur á íslensku . Ég
var samt vitlaus, hafði enga þekkingu né
reynslu á bankaviðskiptum (eins og kannski
fjölmargir aðrir) . Frá því ég hóf störf hef
ég átt í ýmsum samskiptum við sér fræð-
inga, starfsmenn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,
stórra þekktra banka og matsfyrirtækja .
Eins og gefur að skilja eru menn mismiklir
„sérfræðingar“, en menntun og starfs titl-
ar hafa ekkert með það að gera . Skýrslur
sérfræðinga er iðulega tengdar nöfnum
þekktra fyrirtækja og stofnana eins og
Standard & Poor‘s, Seðlabanka Íslands, Al-
þjóða gjaldeyrissjóðsins . Niðurstöðum þeirra
er iðulega hampað sem hinum eina sanna
sannleika . Sérfræðiguðinn hefur tal að . En
niðurstöður í skýrslum þessara aðila eru oft
án nokkurs rökstuðnings eða full nægjandi
upplýsinga . Þær geta verið margar síður,
fullt af vel skrifuðum texta en inni haldið er
rýrt . Þessari grein minni er ætlað að opna
augu þín, lesandi góður, fyrir hætt unni sem
getur stafað af því að trúa sérfræði álitum
eins og nýju neti .
Spágeta Seðlabankans
Seðlabanki Íslands býr yfir risavöxnu módeli til að greina framtíð efnahags-
mála . Auðvitað er alltaf óvissa um fram-
tíðina enda er um spár að ræða . Stundum
reyna menn þó hið ómögulega og meta
óvissuna með líkindaútreikningum . Árið
1997 fengu tveir stærðfræðisnillingar nób-
els verðlaun í hagfræði fyrir að hafa búið til
stærðfræðijöfnu sem reiknaði út verðmæti
valréttarsamninga . Hvað ætti banki að
rukka Jóa úti í bæ fyrir samning sem
kveður á um að Jói megi kaupa 1 hlut í
Google eftir 3 mánuði á genginu 600? Jói
hefur augljóslega kost á því að hætta við
kaupin ef gengið verður lægra en 600 . Stóra
spurningin er hins vegar hvað bankinn ætti
að rukka Jóa fyrir þennan samning . Við
skulum horfa fram hjá því af hverju banki
ætti yfir höfuð að taka áhættu með inni-
stæð ur almennings til að taka þátt í svona
veðmáli . Stærðfræðisnillingarnir hönnuðu
formúlu til þess að finna verðmiða á
veðmálið . Ári eftir nóbelinn fór nýstofnaður
vogunarsjóður þeirra á haugana og tók
Örvar Arnarson
Sérfræðidýrkun
og Icesave