Þjóðmál - 01.03.2010, Page 48
46 Þjóðmál VOR 2010
bankans . 10% lækkun fasteignaverðs mun
gera áðurnefnt tryggingabréf verðlaust
ef það er á seinni veðrétti . Er eignasafn
Landsbankans sama marki brennt? Þetta
er langmikilvægasta spurningin við mat
á ábyrgð ríkisins varðandi Icesave, en
hún er nær aldrei rædd í fjölmiðlum og
„sérfræðingarnir“ láta sig hana engu varða!
Sérfræðiviska óháða ráðherra
Samfylkingarinnar
Gylfi Magnússon er hámenntaður hag-fræðingur, dósent í hagfræði við Há-
skóla Íslands og núna viðskiptaráðherra .
Marg ir myndu telja hann sérfræðing á sínu
sviði . Hann var líka kynntur sem óháður og
faglegur ráðherra . Gylfi skrifaði grein í Morg
unblaðið í júlí . Þar segir hann að á næstu
15 árum muni útflutningstekjur Íslendinga
nema 100 milljörðum evra, og einungis
þurfi að auka þennan útflutning um 2%
til að standa við Icesave-samninginn . Það
var einmitt það, málunum reddað! En frá
því greinin birtist hefur Gylfi ekki haft hátt
um þessa útreikninga sína . Hvers vegna?
Líklegasta ástæðan er sú að hann veit vel að
þessi útreikningur heldur ekki vatni .
Ástæðurnar eru m .a . eftirfarandi . Númer
1: Útflutningstekjur þjóðarinnar voru um 5
milljarðar evra árið 2008 . Að teknu tilliti til
lækkandi álvers, fiskverðs og hrávöruverðs
má búast við að útflutningurinn nemi um 4
milljörðum evra 2009 . Gylfi gerir ráð fyrir
100 milljörðum evra í útflutningstekjur
yfir 15 ára tímabil, en til þess þarf nafn-
vöxtur útflutnings að nema um 6% í
erlendri mynt . Það er ansi bratt . Til þess
þarf miklar fjárfestingar og það kallar á
mikinn innflutning . Númer 2: Hluti af
útflutningstekjum þjóðarinnar eru meðal
annars sala úr landi á innfluttum bílum,
skipum og flugvélum, sala á olíu, ál og
flutningur á vörum til landsins . Þessir liðir
eru um 2 milljarðar evra af þeim 5 sem
aflað var vegna útflutningstekna árið 2008 .
Alla þessa liði er ekki hægt að auka með
einföldum hætti, til þess þarf að flytja inn
hráefni og fjárfestingavörur, nú eða bíla, skip
og flugvélar til að senda til baka . Hvernig
Gylfi ætlar sér að auka útflutningstekjur
þjóðarinnar á notuðum bílum og flugvél-
um næstu 15 árin er óútskýrt í grein hans .
Númer 3: Það er nauðsynlegt að flytja inn
ákveðnar vörur til að framleiða aukið magn,
olíu fyrir flotann, súrál fyrir álið og hrávörur
fyrir ýmsan iðnað . 2% útflutningur getur því
krafist 1% innflutnings . Númer 4: Aukinn
útflutningur skilar sér ekki allur til ríkisins til
að niðurgreiða Icesave . Hann verður einnig
eftir hjá fjárfestum og starfsmönnum sem
geta notað launin/hagnaðinn til fjárfestinga
erlendis .
Annar kunnur „sérfræðingur“ Íslendinga
er háskólakennarinn Friðrik Már Bald urs-
son . Hann skrifaði grein í Morgun blað ið 2 .
febrúar 2010 . Þar telur hann að einungis
þurfi að greiða til Breta og Hollend inga
1,5% af landsframleiðslu á hverju ári frá
2016 til 2025, samtals tíu ár . Það er lítil og
sæt tala . Kárahnjúkavirkjun kostaði um 130
milljarða á sínum tíma og tók einhver sex ár
í framkvæmd . Meðan Kárahnjúkavirkjun
var í byggingu kostaði hún einnig 1,5% af
landsframleiðslu á hverju ári . Það er ekki
tilviljun, virkjunin er álíka mikið skrímsli
og prósentan hans Friðriks . Friðrik túlkar
niðurstöðu sína eins og þetta sé lítil prósenta
en áttar sig ekki á því að hún er risavaxin .
Það hefði verið æskilegt ef Friðrik Már hefði
birt útreikninga sína og rökstutt þannig sína
(líklegast röngu) niðurstöðu . Í nóvember
2007 gaf Friðrik ásamt Richard Portes út
skýrslu um bankakerfið sem má finna á vef
Viðskiptaráðs Íslands . Veljum eitthvað af
handahófi úr skýrslunni, til dæmis: „The
growth of the banks has been spectacular:
total assets of the banking sector have grown