Þjóðmál - 01.03.2010, Page 87

Þjóðmál - 01.03.2010, Page 87
 Þjóðmál VOR 2010 85 ekki hægt að hætta . Hann er svo ótrúlega margslunginn, athugull og skarpur að hann hreif mig með sér . Menn sem hafa lesið bókina vandlega hafa sagt mér að annar og þriðji lestur sumra kaflanna hafi fært þeim nýjan skilning og dýpri á því sem fram fer í sál Lewis á þessum árum . Lewis er nefnilega mjög tilfinninganæmur og ég get viðurkennt að stundum fékk ég kökk í hálsinn og tár í auga við verkið, þar sem maður lá í hverri setningu og hafði tíma til að skynja hvað á gekk . Til dæmis þegar Lewis lýsir því þegar hann kveður móður sína, 17 ára gamall, á leið í stríðið . Honum tekst að koma manni svo inn í tilfinningar beggja að maður skynjar á sjálfum sér hversu hrikalegar aðstæður þeirra eru undir yfirskyni kæruleysisins . Fullþroska manneskju getur fundist hún standa þarna á brautarpallinum sjálf og kveðja líf sitt og yndi . Hvorugt fær við neitt ráðið . Lewis er hörmulega illa undirbúinn og allar líkur eru á því að hann eigi aðeins þrjár vikur eftir ólifaðar . Móðir getur auðveldlega sett sig inn í þessa stund á brautarpallinum og einnig sá sem man sína góðu móður . Þannig eru stríðin . Bókina gaf ég svo út og reyndi að selja . Viðtökur voru dræmar og virtist bókin ekki höfða til markaðarins, Íslendinga . Eftir á að hyggja sé ég að svona verk á ekkert erindi við hinn venjulega Íslending sem vill helst lesa lygisögur um kynlíf og morð á vegum Rambós í endalausum útgáfum . Og flugáhugamenn eru væntanlega svo gott sem útdauðir með kreppunni . Cecil Arthur Lewis hættir í skóla árið 1915 . Heimstyrjöldin fyrri var þá í fullum gangi, en hún kostaði áður en yfir lauk 9 .721 .937 hermenn og 6 .821 .248 óbreytta borgara lífið . Æskudraumar Lewis höfðu flestir snúist um flug . Hefði hann ekki logið til um aldur og sótt um inn- göngu í Royal Flying Corps hefði hann verið sendur í skotgrafirnar og hann viðurkennir í bókinni að það hefði líklega svipt hann vit- inu . Hann var tekinn inn og fór einflug eftir einnar og hálfrar klukkustundar kennslu og var sendur yfir til Frakklands með 13 klukkustunda flugreynslu árið 1916 . Meðallífslíkur nýs bresks flugmanns voru 3 vikur . Lewis tekst að lifa af hætturnar, sem voru ekki minni af fluginu sjálfu en byssukúlunum . Því Lewis elskar flug ið sjálft og það er honum þrotlaus upp spretta fegurðar og lífsfyllingar . Hann sér í bólstraskýinu glitrandi hallir og ókunn lönd með dölum og giljum, hann sér fegurð himinsins og friðsælla landanna fyrir neðan úr margra mílna hæð, þaðan sem stríðið er ekki lengur sýnilegt . Hann gleðst yfir valmúablómunum sem vaxa upp úr sprengigígunum á vígvellinum og læ- virkj a num sem þarna flýgur upp og hefur sig yfir stöðugar fallbyssudrunurnar með söng sínum . Hann lýsir tryggðaböndum í hildarleiknum sem dauðinn sker stöðugt á – og auð sæti sessunautanna frá í gær falla til nýliðanna á morgun .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.