Þjóðmál - 01.03.2010, Page 92

Þjóðmál - 01.03.2010, Page 92
90 Þjóðmál VOR 2010 er rétt þá virðumst við eiga að segja að á hverjum tíma teljum við okkur vita p og höfum til þess góðar ástæður ef vísindin hafa sýnt fram á p með sínum bestu aðferðum . En til að við vitum p þá þarf p að vera satt og við erum að halda því fram að þótt við teljum p satt núna þá verði okkur ljóst eftir tuttugu ár eða hundrað að p var í reynd ósatt . Það þýðir að við vissum ekki p . Sumir vilja draga þá ályktun af þessari þversögn framfara vísindanna að vísindin afli ekki þekkingar heldur séu þau valda- tæki í stéttabaráttunni og þau séu karllæg og vestræn eða eitthvað enn verra . Mér virðist þessi ályktun aldeilis fráleit . Ég held að það sé eitthvað að hjá þeim sem ekki sjá að vísindin gera stöðugt nýjar uppgötvanir og eru í reynd þekkingarfræðilega einstök . Við getum ekki sótt til neinnar annarrar þjóð félagsstofnunar jafn vel rökstuddar niður stöður og þangað og er þá sama hvort við tölum um himingeiminn, efnisheiminn allan, samfélagið eða sálarlíf . Rétt eins og það var mikilvægt fyrir Platon að greina skipu lega á milli þekkingar og skoðunar þá er það grundvallaratriði í nútímanum að greina á milli þeirra skoðana sem styðjast við niður stöður vísindanna, og við getum með réttu nefnt þekkingu, og annarra skoðana . Við þurfum einungis að gæta okkar á því að halda að þekking sé eilíf því það er hún ekki . Atla Harðarsyni hefur tekist að skrifa stutta en efnismikla bók um þekkingar- fræði . Honum er einkar lagið að setja hlutina fram með einföldum og skýrum hætti á ljósu og látlausu máli . Ég hef sjálfur þurft að setja mig inn í fjöldamargt af því sem hann tekur fyrir hér og ég get vottað að það er sérlega vel gert, aðalatriði dregin fram, rökfærslur gerðar einfaldar og skýrar . Þessi bók gæti sómt sér sem inngangsbók að þekkingarfræði á hvaða tungumáli sem er . Ragnar í Smára með samferðamönnum Jón Karl Helgason: Mynd af Ragnari í Smára . Bjartur, Reykjavík 2009, 383 bls . Eftir Björn Bjarnason Í nýlegu samtali við listamann nefndi hann útlending til sögunnar og sagði til að lýsa honum: „Já, hann er svona Ragnar í Smára .“ Ég skildi strax við hvað var átt . Hann væri athafnamaður, sem vildi styðja listir og auðga menningarlífið með fjármunum sínum af atvinnurekstri . Nafn fárra Íslendinga nægir eitt til að lýsa alkunnu og viðurkenndu framlagi þeirra til samtíðar sinnar og síðari tíma . Í bókinni Mynd af Ragnari í Smára bregður Jón Karl Helgason ljósi á ævi Ragnars, segir frá mörg um samtímanna hans . Hann fléttar frá sögn ina í kringum merkisatburð, eins og segir á bókarkápu: Lesandi þessarar bókar slæst í för með for leggj ar anum [Ragnari] sem er á leið á Nóbels hátíð í Stokkhólmi í desembermánuði árið 1955 . Meðal þeirra sem á vegi hans verða eru Jón Stef ánsson listmálari, Jón Helgason prófessor, Sigurður Nordal sendiherra og Halldór Laxness rithöfundur en við sögu kemur einnig fjöldi annarra einstaklinga þekktra og óþekktra sem eiga líf sitt og auðnu með einhverjum hætti undir hinum listelska athafnamanni . Eftir lestur bókarinnar vekur undrun, að í þessum kynningartexta skuli hvergi getið eiginkvenna þeirra karla sem nefndir eru til sögunnar . Þær setja mjög sterkan svip á bók Jóns Karls . Án kvennanna væri frásögn hans mun bragðminni .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.