Þjóðmál - 01.09.2010, Page 8
6 Þjóðmál HAUST 2010
fara tillögur ráðuneyta og ríkis stofnana um
niðurskurð . Þessi nefnd gerði síðan tillögur
til ráðherranefndar sem lagði endan legar
tillögur fyrir for sætis ráð herrann . Að meðal-
tali þurftu ráðu neyti og stofnanir ríkis ins
að skera niður um 20% . Heilbrigðis- og
mennta kerfin voru ekki undanskilin .
Á skömm um tíma fækkaði störfum í
ríkis geir anum um 40 þúsund . Fækkun
kenn ara leiddi m .a . til þess að meðalfjöldi
nemenda í bekkjum hækkaði úr 25 í 35 .
Dregið var stórlega úr niðurgreiðslum til
bænda og ýmissa atvinnugreina og marg -
vís legum styrkveitingum hreinlega hætt .
Ekkert var „heilagt“ . Deildum á sjúkra hús-
um var jafnvel lokað . Það fundu því allir
fyrir niðurskurðinum nema helst aldraðir,
öryrkjar og langveikir . Innan fimm ára var
orðinn afgangur á fjárlögum . Efnahagslífið
tók mikinn kipp . Kreppan var afstaðin og
blússandi hagvöxtur tók við .
Vitaskuld voru ekki allir sáttir . En þegar
harðnar á dalnum verður að skera niður .
Það á jafnt við opinbera geirann eins og
atvinnulífið og heimilin . Kanadamenn
þakka árangurinn því hversu skörulega var
gengið til verks . Lítill árangur af aðgerð-
um fyrri ríkisstjórna sýndi að það dugði
ekkert hálfkák . Ríkis stjórn Camerons í
Bretlandi hefur haft hlið sjón af árangri
Kanadamanna við óhjá kvæmi legan niður-
skurð á útgjöldum breska ríkisins . Það
ættum við líka að gera .
Í stjórnarandstöðu hæddust vinstrimenn oft að Sjálfstæðisflokknum og gagn rýndu
hann fyrir að velja menn í ráðherraembætti og
stöður án tillits til menntunar . Það þótti t .d .
mjög fyndið að fjármálaráðherra skyldi vera
dýralæknir að mennt . Mennta snobb hefur
löngum verið einkenni á vinstri vængnum .
Eftir að vinstri flokkarnir mynduðu
ríkis stjórn hafa þeir sýnt hve mikið var að
marka gagnrýni þeirra . Þeir skipuðu fyrst
norskan stjórnmálamann seðlabankastjóra
í trássi við sjálfa stjórnarskrána, flæmdu
burt hagfræðing úr ráðuneytisstjórastarfi í
forsætis ráðuneytinu (sem stundum er nefnt
„efnahag sráðuneyti“), gerðu jarðfræðing að
fjármálaráðherra og völdu fyrrverandi flug-
freyju með verslunarskólapróf í embætti
for sætis ráðherra .
Forsætisráðherrann mun reyndar vera
sá eini í Íslandssögunni sem þarf á túlki
að halda þegar hann ræðir við útlendinga
á ensku . Þó kemur öllum saman um að
sjaldan eða aldrei hafi íslenska þjóðin þurft
meira á því að halda en einmitt nú að hafa
góð tengsl við alþjóða samfélagið .
Í Icesave-málinu setti jarð fræð ingurinn í
fjár málaráðuneytinu gamlan flokksbróður
sinn, Svavar Gestsson stúdent, yfir samn-
inganefnd Íslands . Þótt Svavar hafi sér
til ágætis nokkuð hefur enga reynslu eða
þekk ingu á sviði alþjóða samninga . Hann
sér hæfði sig á sínum tíma í landráða- og
land sölubrigslum og fjand skap við þátt töku