Þjóðmál - 01.09.2010, Blaðsíða 12
10 Þjóðmál HAUST 2010
prófess orar við Háskóla Íslands tala um,
að með stærri einingum aukist færni til að
sinna sérgreindum verkefum, eru það frasar,
sem byggjast ekki á neinni þekkingu á því,
hvernig unnið er að verkefnum á vettvangi
stjórnar ráðsins . Með því að lengja boðleiðir
til ráðherra og fækka hæst launuðu og
reynslu mestu embættismönnunum eru
ráðu neyti ekki styrkt .
Nýlega hitti ég ungan mann, sem hafði
stundað nám í Bandaríkjunum og náð þar
svo góðum árangri, að honum stóðu allar
dyr opnar á sínu sviði . Hugur hans beindist
þó til að starfa hér á landi og sneri hann því
heim með þau áform í huga, að hann fengi
hér vinnu við sitt hæfi . Atvinnuleitin bar
ekki þann árangur, sem hann hafði vonað . Í
samtali okkar sagði hann, að ef til vill myndi
hann bara snúa aftur til Bandaríkjanna . Þó
ekki vegna þess að hann gæti ekki fengið
eitthvað að gera hér, heldur hins, hve illa
hann sætti sig við þá þögulu skoðanakúg un,
sem hér ríkti, þar sem ekkert umburðar-
lyndi væri gagnvart öðru en einhverju, sem
menn teldu viðtekin viðhorf til manna og
málefna .
Hér var þörf fyrir markvisst andóf gegn
dýrkuninni á „nýju athafnaskáldunum“,
eins og Ólafur Ragnar kallaði vini sína
í fjár málaheiminum á sínum tíma . Þeir,
sem tóku undir með Ólafi Ragnari, gerðu
lítið úr Baugsmálinu og töldu það sóun á
tíma og fjármunum . Þeir börðust gegn öllu
opinberu eftirliti með þeim, sem sóttu fram
með ódýrt lánsfé að vopni . Nú kenna þessir
vinir Baugs öllum öðrum um bankahrunið .
Verði þetta viðtekin skoðun er það mesta
blekkingin um ástæður hrunsins .
Nú er þörf fyrir markvisst andóf gegn
nýrri stétt fjármálafursta, sem starfa í skjóli
ríkisvaldsins, slitastjórna og skilanefnda . Með
athafna- og aðgerðaleysi sínu vinnur ríkis-
stjór nin með þessum nýju valda mönnum í
fjár mála heiminum . Ekkert er gert til að leysa
úr læðingi athafnaþrá þeirra, sem reka eða
vilja reka lítil og meðalstór fyrirtæki . Í stað
þess að landið rísi dregst efnahagurinn hratt
saman .
Hafi ríkisstjórnin lengt eigið líf 2 . sept-
ember, 2010, er það ekki í þágu þjóðar hags-
muna . Hún hefur enga burði til að takast á
við þau verkefni, sem þjóðinni eru helst til
heilla . Undrun vekur, hve lítið fer fyrir stjórn-
ar andstöðunni við þessar aðstæður . Skyldi hin
þögula skoðanakúgun hafa lagst á hana?
III .
Borgarstjórnarskosningarnar í Reykja-vík 29 . maí leiddu til þess, að til varð
meiri hluti borgarfulltrúa Besta flokks ins og
Samfylkingar með Jón Gnarr sem borgar-
stjóra . Var litið á mikið fylgi Reyk víkinga
við Jón Gnarr og Besta flokk hans sem van-
traust á hina hefðbundnu stjórn málafl okka .
Trú margra var sú, að ekki gæti vont versnað
eftir síðasta kjörtímabil borg ar stjórnar, þar
sem meira að segja Ólaf ur F . Magn ús son var
dubbaður upp í að verða borgarstjóri .
Fyrstu þrír mánuðir meirihluta borg ar-
stjórnar undir forystu þeirra Jóns Gnarrs
og Dags B . Eggertssonar lofa ekki góðu um
framhaldið .
Dagur B . leit þannig á, að með samstarfi
sínu við Jón Gnarr tryggði hann sér áfram
áhrif innan Samfylkingarinnar, þrátt fyrir
lélega niðurstöðu í kosningunum . Dagur
B . er með augað á formannsstólnum í Sam-
fylkingunni, þegar Jóhanna kveður hann,
sem verður fyrr en seinna . Ekkert hefur
kveð ið að Degi B . við stjórn borgarmála, frá
því að hinn nýi meirihluti var myndaður .
Jón Gnarr skortir alla röggsemi, einkenni
góðra borgarstjóra . Framlag hans til um-
ræðna um málefni borgarinnar og hags-
muni borgarbúa er honum ekki til neins
sóma . Hafi hann með framboði sínu ætlað
að sýna, að stjórnmálamenn væru ekki starfi