Þjóðmál - 01.09.2010, Page 20
18 Þjóðmál HAUST 2010
fyrst á gildi lýðréttinda . Að við berum
virðingu fyrir einstaklingnum og skoð-
unum hans jafnvel þó við séum ósammála .
Franski heimspekingurinn Voltaire orðaði
það á þá leið að hann væri algerlega ósam-
mála viðkomandi skoðun en hann væri
reiðubúinn að fórna lífi sínu til að sá
sem setti hana fram gæti gert það . Þessi
sjónarmið Voltaire hafa verið og eru
herhvöt frjálsra manna til að koma í veg
fyrir að öfgarnar kæfi tjáningarfrelsið .
Sú hugmyndafræði sem skóp umgjörð
þess frelsis og mannréttinda sem við búum
við gefur líka prestum þjóðkirkjunnar
frelsi til að hafa eigin skoðanir . Prestar
hafa iðulega talið sér rétt bæði nú sem fyrr
að gæta ákveðinna réttinda einstaklinga,
eink um þegar að þeim er sótt í skjóli
hugmynda stjórnmálalegs rétttrúnaðar .
Þannig þurftu ýmsir prestar mótmælenda
bæði í Danmörku og Þýskalandi á tímum
nasism ans að gjalda fyrir það með lífi sínu
að hafa skoðanir í samræmi við hugmyndir
lýð frels is ins í andstöðu við na sistaríkið .
Menn dást í dag að hugrekki þessara presta
og frægastur hér á landi hefur sennilega
orðið danski prest urinn Kaj Munk sem
þurfti að láta lífið vegna skoðana sinna og
andstöðu við al ræði sríki nasista .
Gildir tjáningarfrelsið
ekki lengur?
Fyrir nokkru setti sr . Geir Waage fram ákveðin sjónarmið varðandi trún að ar-
skyldu presta . Hans viðhorf er það að trún-
aðarskylda presta við skjólstæðinga sína sé
algjör . Sú trúnaðarskylda og inntak hennar
hefur lengi verið til umhugsunar og um-
ræðu . Margir sem gegna trúnaðarstörf um
eins og prestar, læknar og lögmenn standa
á stundum frammi fyrir spurningunni um
inntak trúnaðarskyldunnar . Þar stendur
fólk frammi fyrir þeirri spurningu hvort það
sjálft skuli og þurfi að taka á sig harð ræði og
refs ingu til að rjúfa ekki þá trúnaðar skyldu
sem viðkomandi einstaklingur telur sig
bund inn . Sr . Geir Waage setti sín sjónar mið
fram í góðum greinum í Morgun blað inu .
Þau sjónarmið voru gott og nauðsynlegt
inn legg í umræðuna um trúnaðarskylduna
og inn tak hennar . Skrif sr . Geirs urðu til
þess að ýmsir veltu þeim sjónarmiðum fyrir
sér bæði af siðferðilegum, trúarlegum og
lögfræðilegum ástæðum . Heimir Örn Her-
berts son hæstaréttarlögmaður skrifaði m .a .
góða grein í Morgunblaðið þ . 24 . ágúst s .l .
þar sem hann kemst að þeirri niðurstöðu að
meginreglan sé að prestur sé bundinn þagn-
arskyldu um einkahagi manns sem trúir
presti sínum fyrir þeim .
Sumir muna enn eftir kvikmyndinni
I confess eða Ég játa þar sem presturinn
Michael Logan fékk til sín sóknarbarn í
skrift a stól sem sagði honum að hann hefði
gerst sekur um morð á ákveðnum manni .
Kynntu þér lán og aðra
þjónustu Íbúðalánasjóðs
Lán til íbúðakaupa
Lán til endurbóta og viðbygginga
Aukalán vegna sérþarfa (skert starfsorka)
Úrræði í greiðsluvanda
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969
www.ils.is