Þjóðmál - 01.09.2010, Page 22

Þjóðmál - 01.09.2010, Page 22
20 Þjóðmál HAUST 2010 Er það ekki einmitt það sem er inntak kröfu sr . Bjarna? Sr . Bjarni Karlsson telur sig hafa höndlað einkarétt á sannleikanum og þeir sem hafa ekki sama skilning og hann verða að víkja . Þeirra skoðanir eru óhelgar og skulu rifnar upp með rótum og þeim á eld kastað . Sr . Bjarni vísar máli sínu síðan á biskup og Kirkjuráð sem hann snuprar fyrir linkind af þessu tilefni . Í framhaldi af þessum skrifum sr . Bjarna mátti sr . Geir Waage og raunar sá sem þetta ritar eftir að hann vakti athygli á þessum öfgafullu skoðunum sr . Bjarna, þola það að vera brugðið um að vera barnaníðingar eða jafngildi þeirra, jafn ógeðfellt og það nú er . Í nokkra daga geisaði sú umræða í framhaldi af þessari öfgaframsetningu sr . Bjarna . Þeir hlutir gerðust hins vegar í þjóðfélaginu næstu daga sem sýndu fram á það að sr . Geir Waage hafði á árum áður, þegar á reyndi, staðið sig sem samviska kirkjunnar . Hann var í fararbroddi þeirra presta sem vildu að mál yrðu ekki þögguð niður innan kirkjunnar . Hversu langt mega prestar ganga? Óneitanlega er það umhugsunarefni þegar prestur þjóðkirkjunnar krefst þess að starfsbróður hans verði vikið úr starfi vegna skoðana sinna . Þó eru þær skoðanir innan þess sviðs sem varðar kirkjulega umræðu og skyldur presta . Sr . Bjarni hefur hins vegar leyft sér að taka til máls og lýsa skoð unum sínum til ýmissa annarra mála, m .a . almennra þjóðfélagsmála, með þeim hætti sem eru honum ekki sæmandi . Sr . Bjarni Karlsson stóð að því að gera hróp að dómstólum landsins þegar réttað var yfir fólki sem sakað er um að hafa gert árás á Alþingi . Sr . Bjarni reyndi með þeim hætti að meina dómsvaldinu að inna þá þjóðfélagsskyldu af hendi sem dómstólum er ætlað að sinna . Vissulega má sr . Bjarni hafa sínar skoðanir á dómstólum og ríkisvaldi, en eðlilegt væri að inna hann eftir því hvort hann sé þeirrar skoðunar að dómstólum á Íslandi sé ekki treystandi til að fjalla um mál og kveða upp dóma með eðlilegum og málefnalegum hætti . Framkoma sr . Bjarna og hróp hans að dómstólum landsins benda til þess að hann telji að réttlætið eigi betur heima í annarra höndum en þeirra sem lögskipaðir eru til að fara með það . Þá vakti það nokkra furðu þegar Bjarni Karls son lýsti yfir þeirri sérstæðu girnd sinni að vilja berja formann Lög manna- félags Íslands, Brynjar Níelsson hæsta- réttar lögmann, vegna skoðana hans . Vert er að vekja athygli á því að með því veittist sr . Bjarni í annað skiptið að skoðanafrelsi einstaklings, í þetta skipti lögmanns sem setti fram almennar skoðanir í þjóð félags- umræð unni . Sr . Bjarni Karlsson hefur þannig tvívegis lýst þeirri skoðun sinni opinberlega að hann sé á móti því að tjáningarfrelsið sé algilt sem mannréttindi . Hann gerir þá kröfu að hann geti sest í dómarasætið yfir mönnum, jafnt kollegum sínum sem öðrum, og dæmt um hvaða skoðanir eru viðurkvæmilegar eða óviðurkvæmilegar . Hvaða skoðanir skuli valda embættismissi eða hýðingu . Óneitanlega hvarflar sú hugsun að manni að brýna nauðsyn beri til fyrir sr . Bjarna Karlsson, og aðra sem telja sig handhafa sannleikans, að fara í sjálfsskoðun um gildi og inntak lýðræðis og helstu mannréttinda .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.