Þjóðmál - 01.09.2010, Síða 24
22 Þjóðmál HAUST 2010
lífeyrissjóðakerfið og þaðan til ríkisins eða í
steindauðan kjaft Seðlabankans .1
Ráðuneytið ræður
ávöxtunarkröfu lífeyrissjóða
Reglugerð fjármálaráðuneytisins nr . 391/1998, 20 . gr ., kveður á um að
líf eyrissjóðirnir eigi að gera ráð fyrir 3,5%
lágmarksraunávöxtunarkröfu á ís lensk
skulda bréf . Þá eru fjárfestingar í er lendri
mynt takmörkunum háðar og því þarf
lífeyrissjóðakerfið að þröngva fjár magn-
inu upp á íslenska fjárfesta (og heimili í
gegnum íbúðalán) með að lágmarki hinum
himinháu vöxtum sem ríkið ákveður . Þar
sem lífeyrissjóðirnir eru langstærstir kaup-
endur skuldabréfa þá slá þeir tóninn fyrir
vexti, m .a . á skuldabréfum Íbúðalána-
sjóðs . Stjórnmálamaðurinn ákvað að vextir
á verðtryggðum skuldabréfum yrðu að
lágmarki 3,5% . Ávöxtunarkrafa á skulda-
bréf um Íbúðalánasjóðs hefur nær aldrei
farið undir 3,5% (sjá grafið að ofan) en
ávöxt unarkrafa á sambærileg bréf í Banda-
ríkj unum hefur ekki farið yfir 3,5% . Að
meðal tali síðustu fimm ár hefur munurinn
milli þessara tveggja landa verið 2% .
1 Ellilífeyrisþegar ættu að fá greiðslur sínar frá
lífeyrissjóðunum í gegnum afborganir af núverandi
fjárfestingum, ekki nýjum lífeyrissjóðsgreiðslum .
Embættismenn ráða
skammtímavöxtum
Fimm embættismenn taka ákvörðun um vexti Seðlabanka Íslands . Með
reglu legu millibili koma þeir saman og kjósa
um niðurstöðuna . Þarna er tekin ákvörð-
un um vexti á skammtímalánum sem hefur
bein áhrif á vaxtakjör íslenskra fyrir tækja
(REIBOR vextir) og yfirdráttar lán heim-
ila . Þessum embættismönnum kem ur ekki
alltaf saman . Samþykki meiri hluta nefnd-
ar manna er fullnægjandi . Þann ig geta þrír
embætt is menn ákvarðað skamm tíma vexti
á Íslandi . Þrír Íslendingar, eða 0,001% af
heildarfjölda landsmanna, taka ákvörð un um
skammtímavexti fyrir 320 .000 Ís lend inga .
Pólitík hefur jafnframt áhrif á skamm-
tímavexti . Sá sem efast getur lesið eftirfar-
andi texta úr fundargerð peningastefnu-
nefnd ar frá 10 . febrúar 2010 . Einn nefnd-
ar mannanna vildi ekki lækka vexti vegna
þess að forseti Íslands hafði neitað að
skrifa undir Icesave-lögin svokölluðu . Þessi
nefndarmaður virðist hafa ætlað að sjá til
þess að þær hrikalegu afleiðingar sem ríkis-
stjórnin boðaði vegna synjunar forsetans
yrðu áþreifanlegar:
„Hinn nefndarmaðurinn sem var and-
vígur tillögunni kallaði eftir óbreyttum
vöxt um . Þessi nefndarmaður hélt því fram
Ávöxtunarkrafa verðtryggðra
vaxta er 2% hærri á Íslandi en
í Banda ríkj unum að kröfu
íslenska stjórn mála mannsins .
Munurinn er meiri ef horft er
til pundsins eða evrunnar .