Þjóðmál - 01.09.2010, Side 31

Þjóðmál - 01.09.2010, Side 31
 Þjóðmál HAUST 2010 29 hugsun þeirra í kjarna sínum um hatur á á eigin umhverfi og þjóðfélagi . Þeir kenna því Vesturlöndum og Vesturlandabúum, ekki síst Bandaríkjamönnum, um allar vammir og skammir veraldarinnar . Upp á síðkastið eru þeir meira að segja farnir að gera vonsku Vesturlandabúa ábyrga fyrir sveiflum í náttúrunni, sbr . öll steypan um „gróðurhúsaáhrifin“, sem ég fjallaði raunar nýlega um hér í blaðinu . Í því máli, eins og svo mörgum öðrum, hafa þeir fengið allmarga kjána til liðs við sig, en vinstra fólk, fólkið, sem undir formerkjum manngæskunnar gekk, ýmist leynt eða alveg ljóst, erinda alræðiskúgaranna, böðlanna og þjóðarmorðingjanna í kalda stríðinu stendur hvarvetna fremst í flokki í þeirri „baráttu“ eins og öðrum „baráttumálum“ sem í tísku eru á hverjum tíma . Nú veit ég vel, að menn munu segja að það sem hvetji vinstra fólk til dáða sé draumurinn um betri heim, en ég er ekki alls kostar sammála því . Hugmyndafræðin er einungis notuð til réttlætingar hatrinu, sem inni fyrir býr . Hatrið er sterkara en ástin og ég fæ ekki betur séð en að það sé óánægjan með eigið líf og umhverfi, sem þeir kenna þjóðfélaginu um, hatrið og vandlætingin, ekki framtíðarsýnin um betri heim sem sé aðalhvatinn að brölti þeirra . Draumsýnin, útópían er aðeins fyrirsláttur, en þó ómeðvitaður . Þeir eru einfaldlega það, sem einu sinni var kallað „niðurrifsöflin“ . Sumir vinstri menn sýnast nánast Don Quixote leggur til atlögu við vindmyllu .

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.