Þjóðmál - 01.09.2010, Blaðsíða 43
Þjóðmál HAUST 2010 41
Sat á kaffihúsi um daginn og heyrði mann segja: ,,Þvílík hörmung er Ríkisútvarp ið
nú orðið . Ef þetta væri bíll væri ég búinn að
losa mig við hann á partasölu .“ Þetta er rödd
al mennings . Og nú hefur RÚV losað sig við
HM í knattspyrnu að hluta, alfarið við HM
í hand bolta og Spaugstofan er hætt . Þvílíkt
rekstr ar grín, tragikómedía en dauðans alvara .
Þetta sýnir að nauðsynlegt er að taka á
mál efn um Ríkisútvarpsins ohf . eða RÚV
eins og stofnunin er jafnan kölluð . Þar
situr einangraður útvarps stjóri sem gagn-
rýndur hefur verið harðlega fyrir alræðis-
vald . Staðreyndin er sú að ógegnsæi og ólýð-
ræðisleg vinnubrögð þrífast nú hjá RÚV .
Það voru mistök að ohf-a Ríkisútvarpið
með þeim hætti sem fyrrverandi mennta-
mála ráð herra gerði þegar hún afhenti nú-
ver andi útvarpsstjóra stofnunina á silfur fati;
hann þurfti ekki einu sinni að sækja um starf-
ið . Manninum sem í tuttugu ár hafði verið
undir í samkeppninni í útvarps- og sjón-
varps rekstri sem yfirmaður hjá Stöð2, Sýn
og NFS utan þess tíma sem hann var kynn-
ing ar- og áróðursmeistari fyrir Íslenska erfða-
grein ingu þegar útrásarvíkingarnir tóku þar
sinn fyrsta snúning á fjármagns eigendum .
Út varps stjórinn gegndi mikil vægu hlutverki
hjá Stöð2 og NFS þegar hann var gerður
út af útrásarvíkingunum og Baugs veld inu í
áróðurs- og ófrægingarstríði þess vegna m .a .
„fjölmiðlafrumvarpsins“ .
Ráðning útvarpsstjórans árið 2005 var
í raun valdarán lítillar klíku í framhaldi af
synj un fjölmiðlalaganna og tryggði klíkunni
algjör yfirráð yfir vitundarmiðlum á Íslandi .
Út kom an varð fjölmiðlaumhverfi sem var
og er van hæft til þess að greina þjóðfélagið
og segja fréttir nema með gleraugum litlu
klíkunnar .
Hvað vakti fyrir menntamálaráðherra að
ráða núverandi útvarpsstjóra? Hvernig mátti
það vera að ráðinn var maður sem stjórnað
hafði Baugsmiðlunum?
Jú, sennilega eru margar ástæður fyrir
því að hann var ráðinn . Ein ástæða er sú
að byggja þurfti undir útrásarvíkingana svo
hægt væri að halda fjölmiðla- og útrásarleik-
rit inu áfram . Þegar svo Samfylkingin var
kom in í ríkisstjórn á árinu 2007 var núver-
andi útvarpsstjóri endurráðinn sem útvarps-
og fram kvæmdastjóri Ríkisútvarpsins ohf .
Pjetur Stefánsson
Nýja yfirstjórn hjá
RÚV, takk!
Opið bréf til eigenda Ríkisútvarpsins ohf .