Þjóðmál - 01.09.2010, Side 46
44 Þjóðmál HAUST 2010
Blygðast má eg meira’ en lítið
mín að hafa elskað tál .
Tennyson
1 .
Þegar ég lét af ritstjórn Morgunblaðsins uppúr aldamótum hélt ég að sjálfsögðu
áfram að fylgjast með fréttum, þó ekki af
sama áhuga og áður . Ég hafði um nokkurt
skeið gert mér grein fyrir því að sterkir
aðilar voru byrjaðir að misnota markaðinn
og hugsaði með mér að ég hefði sem
ritstjóri ekki barizt gegn ofurvaldi og að
sumu leyti einokun Sambandsins til þess að
nokkrar fjársterkar fjölskyldur gætu ginið
yfir markaðnum eins og þeim sýndist .
Áður en ég hætti ritstjórn var ég byrjaður
að impra á þessum áhyggjum mínum og
vara við þróuninni . En flestir sögðu að
mark aður væri markaður, hann væri frjáls
og enginn gæti sett hann í spennitreyju,
enda kannski ástæðulaust á þeim tíma .
Erlendur Einars son, forstjóri SÍS, fór
þess á leit við rit stjóra Morgunblaðsins
á sínum tíma, að þeir styddu 30%
aðild Sambandsins að smá vöru markaði
höfuðborgarsvæðisins, en við höfnuðum
því . Þegar kom svo að 60% aðild Baugs
að sama markaði sagði enginn neitt!
Gírugir kaupmenn héldu áfram að
leggja markaðinn undir sig og augljóst að
engum mundi takast að hefta þá þróun .
Þeir fóru um alla sjóði landsins eins og
engisprettur og fluttu milljarða úr landi,
eins og komið er í ljós . Höfðu landið
raunar í herkví . Stjórnmálamönnum var
ógnað eða þeir settir til hliðar eins og
hver önnur peð, sumir urðu lakæjar, aðrir
leigupennar . Sá sem hefði reynt að sporna
við þessari plágu hefði verið púaður niður
eins og ástandið var . Þetta smitaði út
frá sér, jafnvel inní dómstólana að mínu
mati . Þegar mikilvæg atriði voru dæmd í
Baugsmálum stöðvuðust dómstólar, ekki
sízt hæstiréttur, við það að þau væru fyrnd,
en einn af dómurunum, Páll Hreinsson,
einn helzti höfundur hrunskýrslunnar
síðar, efaðist um að svo væri . En á það var
ekki hlustað .
Matthías Johannessen
Samsæri gegn upplognu
samsæri!