Þjóðmál - 01.09.2010, Síða 50
48 Þjóðmál HAUST 2010
umræðu sem fylgdi . Ástæðan e .t .v . sú að
dreifð eignaraðild fór í pólitísku hítina við
einkavæðingu bankanna .
5 .
Í grein, nú frægri að endemum, Bláu hendinni, sem birtist í Morgunblaðinu föstu-
daginn 13 . sept 2002, talar Hallgrímur
Helga son um „ofsóknir lögreglunnar“ og
að lög regluvaldi hafi verið „misbeitt gegn
framsæknum viðskiptamanni“ (leturbr . hér) .
Og Jóhanna Sigurðardóttir hafði, að því
er virðist, lítinn áhuga á Baugsmálinu sem
slíku, rétt eins og ýmsir aðrir þingmenn og
ráð herrar, og spurði helzt um útgjöldin við
rann sókn málsins og þá auðvitað til að reka
hornin í þá embættismenn sem voru að
reyna að upplýsa braskið og lögbrotin .
Reyna semsagt að standa vörð um
réttarríkið .
Nokkur ummæli Halldórs Ásgrímsson ar
og Lúðvíks Bergvinssonar, þingflokksfor-
manns Samfylkingar, sem síðar reyndist
sjálf ur vera í einhverju fasteignabraski,
hljóma nú heldur hjáróma, svo að minnis-
stæð dæmi séu nefnd án tilvitnana . En það
mætti fylla heila bók með upplýsandi til-
vitn un um, án þess það sé neitt hnýsilegt
lengur .
Samsærið gegn Birni Bjarnasyni í þing-
kosningunum 2006 hefur nú verið upplýst
og kemur Baugsspeninn þar við sögu,
en ýmsir þingmenn hafa nærzt á honum
og reynt sífelldlega að reka hornin í
ríkislögreglustjóraembættið og starfsmenn
þess eins og kunnugt er . Þannig var eins og
ég drap á fljótlega lögð fram fyrirspurn á
Alþingi um kostnað við rannsókn á Baugs-
málinu og auðvitað í þeim tilgangi einum
að ýta undir neikvætt almenningsálit gegn
rannsókninni .
En síðan hafa menn reynt að gleyma þess-
ari afstöðu og ganga nú með geislabaug um
efnahagsrústir nær gjaldþrota ríkis á flótta
undan aðdáun sinni á hinum „framsæknu“
kapítalistum sem voru í útrás gegn eigin
þjóð .
Og litlu munaði að það strandhögg
tækist .
Meðal þessara aðdáenda er ónefndur
þing maður uppúr búsáhaldabyltingunni
sem áður var ein helzta skrautfjöður Frétta
blaðsins og sjálfskipaður sérfræðingur um
lögreglumál!
Hræsni DV að þessu leyti tekur þó öllu
öðru fram án þess ég nenni að tíunda það
frekar .
En allt væri þetta álitlegt rannsóknarefni
fyrir stjórnmálafræðinga og aðra áhuga-
menn um þjóðfélagsmál .
Og þá ekki sízt hvernig reynt hefur verið
að vega að embætti ríkislögreglustjóra . Þeir
sem stóðu með Baugsveldinu á sínum tíma
leynast víða þrátt fyrir „hina sviðnu jörð“
sem Egill Helgason nefnir nú . Margir þeirra
stjórna ferðinni enn í dag og svífast einskis .
En þeir hafa glatað almenningsálitinu, að
vísu .
Svo er alltaf verið að tönnlast á að allt eigi
að vera uppi á borðinu og fólk axli ábyrgð,
en það er marklaust hjal .
Ef þessir samfylgdarmenn útrásarvíkinga
hefðu þekkt sinn vitjunartíma í upphafi
Baugsmálsins hefði það líklega getað ýtt
undir og styrkt rannsóknina með framlögum
til hennar eins og gert hefur verið eftir að
sérstakur saksóknari tók við hrunsmálum .
En þeir þekktu ekki þennan vitjunartíma
og dönsuðu með almenningsáliti sem var
kúgað af Baugspressunni þar til kirkjan
sökk, enda oftar en ekki að stjórnmálamenn
fengju styrki úr sjóðum útrásarvíkinga, eins
og nú er vitað .
Og mörgum var mútað, beint og óbeint .
Já, ef menn hefðu þekkt sinn vitjunartíma
hefði líklega aldrei orðið neitt hrun!
Nú eru notuð orð eins og samsæri,