Þjóðmál - 01.09.2010, Síða 52

Þjóðmál - 01.09.2010, Síða 52
50 Þjóðmál HAUST 2010 sinni til tals í samtölum ungra sjálf stæð is- manna og Bjarna Benediktssonar varaði hann þá við, sagði að fullveldið yrði að vernda og vitnaði svo í Steingrím: og aldrei, aldrei bindi þig bönd nema bláfjötur Ægis við klettótta strönd . Landsfundi Sjálfstæðisflokksins 2010 lauk samkvæmt þessari áminningu, þótt ýmsir ágætir sjálfstæðismenn séu óánægðir og vilji láta reyna á niðurstöður samninga . Það er að mörgu leyti skiljanleg afstaða útaf fyrir sig, en tímasetningin er óheppileg vegna hruns og niðurlægingar . Stafkarlar viljum við ekki vera . Það er auðvitað fjarri lagi að unnt sé að líkja baráttunni við kommúnista í kalda stríðinu við andstöðuna gegn ESB, svo mikið sem við eigum Evrópu að þakka . Þaðan komum við, þangað sóttum við menningararfinn og þangað liggja sögulegir þræðir okkar um aldaraðir . (Auk þess mun EES-samningurinn jafngilda um 80% af aðild að ESB, en 20% þó fjalla um erfiðustu málin, landbúnað og sjávarútveg, sem ESB hefur ekki náð tökum á .) Eins og nú háttar erum við einhvers konar beiningamenn við hið gullna hlið Evrópu- sambandsins og höfum ekki aðgöngumið- ann í hendi okkar, Icesave-samninga, eins og Cameron gerði að umtalsefni í brezka þinginu, og breytir engu um það hjáróma rödd Össurar Skarphéðinssonar sem ein- hvers konar andsvar við Bretanum . Það verður semsagt ekki ókeypis inn- gangur í það fyrirheitna land . Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins urðu einn ig þau stórtíðindi að samþykkt var tillaga þess efnis að þeir framámenn í flokkn- um sem þágu styrki frá útrásarvíkingunum segðu af sér og gildir þá ekki lengur sú afstaða formannsins að honum komi málið ekki við, styrkþegar hafi ekki sótt umboð til hans heldur kjósenda, nú er það augljós krafa flokksins að hann fylgi þessu eftir . Með þessum hætti tóku flokksmenn af skarið og mörkuðu þá stefnu sem þeir leggja einna helzt áherzlu á við endurreisn flokksins eftir hrun . Fyrir bragðið má ætla að flokkurinn nái vopnum sínum og geti fylgt sinni gömlu góðu sjálfstæðisstefnu eins og efni standa til . En þegar þessi þáttur hrunsins og að- draganda þess er til umræðu er ekki hægt að ganga framhjá afstöðu Samfylkingarinnar uppúr aldamótum, en þá gældi hún svo við útrásarauðvaldið að e .t .v . skipti sköpum . Um þetta fjallar minn gamli kollega Styrmir Gunnarsson í grein í Morgunblaðinu, „Yfir- lýsing Össurar“, 27 . júní 2010, og bendir á að Össur hafi í raun viðurkennt aðild Sam- fylkingar að útrásinni með stuðningi við Baug . Hann segir m .a .: „Það gæti líka verið fróðlegt að vita, hvenær þessum stuðningi við Baugsmenn lauk – eða hvort honum er lokið?” Og ennfremur: „Með yfirlýsingu sinni hefur Össur Skarp- héðinsson sett Samfylkinguna á sama bekk og forseti Íslands hefur setið á frá hruni og hef ur ekki átt auðvelt með að komast þaðan .“ Framhjá þessu verður ekki gengið þegar allt þetta mál verður gert upp og þess þá einnig minnzt þegar Jón Ásgeir í Baugi lýsti yfir stuðningi við aðild Íslands að ESB . Á þeim tíma skipti það máli, nú er það einungis hjáróma vísbending um sam- eiginlega hagsmuni . 7 . Hrunið kom ekki utanfrá, það kom innanfrá, úr gjörspilltu bankakerfi sem slagsmálahundar Mammons höfðu notað í eigin þágu . Það var ekki stjórnsýslan sem leiddi yfir okkur hrunið, þótt hún hafi ekki staðið vaktina enda vanmáttug til
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.