Þjóðmál - 01.09.2010, Side 55
Þjóðmál HAUST 2010 53
að stað festar heimildir
sínar hefðu verið af
skorn um skammti .
„Staðreyndir og
tölfræði,“ kvartaði
Pierce, „rekst maður
almennt á fyrir
tilviljun og það verður
að draga þær út úr
haug af gagnslausu
efni .“ En með yfir ferð
sinni gat Peirce dreg ið
undarlega heild stæða
mynd af Græn landi
og Íslandi, til stuðn-
ings því sjónarmiði, að ástæða væri að
skoða löndin með verðuga bandaríska
fjár festingu í huga .
Peirce sagði, að við fyrstu sýn virtist Ís-
land „algerlega virðis laust frá efnislegum
sjónar hóli“ . Korn yrði að flytja inn frá
öðrum lönd um . Ísland væri stundum
umlukið hafís um vetur . Hin fáu tré á
eyjunni væru kyrkings leg . Í einni heimild
væri Íslandi lýst á þann veg að þar væri
„ekkert nema mýrarfen, klettar, þver-
hnípi; þverhnípi, klettar, mýrarfen; ís,
snjór, hraun; hraun, snjór, ís; ár og fljót;
fljót og ár .“
Í skýrslunni færði Peirce hins vegar
rök fyrir því, að þessi fátæklega sýn gæfi
ekki rétta mynd þegar betur væri að gáð .
Ýmis legt í náttúru landsins – eldvirkni og
jöklar, til dæmis – gætu reynst töluverðar
nátt úruauðlindir þegar fram liðu stundir .
Peirce taldi, að hverir landsins gætu
hugsanlega orðið uppspretta heilsusalta
og verðmæts brennisteins og hafði orð á
hve mikil auðæfi fælust í óbeislaðri vatns-
orku . Nú á tímum kemur öll raforka á
Íslandi frá þeim orkugjöfum (jarðorku og
vatnsorku), sem Peirce hafði lýst á nítj-
ándu öld .
Þegar litið væri til landbúnaðar og sjáv-
ar útvegs auk hrossaræktar taldi Peirce að
gífurleg tækifæri væru til þróunar . Íslend-
ingum var sjálfum lýst sem fátækum en
vel menntuðum (vegna heimanáms) og
vegna ástar sinnar á „stjórnskipulegu
frelsi“ sem næstum fyrirmyndar borgurum
Ameríku (stef, sem síðar birtist að nýju í
skrifum Vilhjálms Stefánssonar) . Peirce
taldi að það væri alfarið á ábyrgð danskra
William H . Seward,
utanríkis ráðherra Banda-
r íkj anna í for setatíð
Abrahams Lincolns, lét
vinna skýrslu árið 1868
um auðlindir á Íslandi til
að meta gildi þess fyrir
Bandaríkin að eignast
landið .