Þjóðmál - 01.09.2010, Side 56
54 Þjóðmál HAUST 2010
stjórnvalda að Ísland væri vanþróað land .
Bandaríkin gætu gert betur:
Framtíð Íslands er nátengd framtíð
móður-ríkisstjórnar landsins . . . Yrðu
frjáls legri stjórn arhættir innleiddir og
ýtt undir eðlis læg an þrótt þjóðarinnar,
mundi um heim ur inn undrast hve hröð-
um framför um þessi fá menna norð læga
þjóð tæki .
Með rökum, sem voru síðar ítrekuð á
tíma internetsins á 21 . öld, benti Peirce
á gildi Íslands, vegna hnattstöðu sinnar,
til að verða strategísk fjarskiptamiðstöð .
Hann sá fyrir sér að símastrengur yrði
lagður frá Bret landi til Íslands, frá Íslandi
til Grænlands, og frá Grænlandi til
Ameríku . „Kostir þess arar leiðar eru svo
augljósir, að ekki þarf að tíunda þá,“ sagði
hann .
Grænland – þótt jafnvel enn minna væri
vit að um það – var einnig talið vænlegur
kostur . Auk þess að nefna seli, hvali og
sjáv ar afurðir benti Peirce á jarðfræði
Græn lands og sagði að í henni fælust
„mikil fyrir heit“ . Árið 1868 var kríólít
– efni til að fram leiða sápu og það sem
meiru skipti ál – hið eina sem var unnið
úr grænlenskri jörðu til útflutnings . Peirce
var afdráttarlaus þegar hann sagði: „Við
höfum í næsta nágrenni okkar málm,
sem er okkur mjög verðmætur vegna
eiginleika sinna .“ Hann sagði hálendi
Grænlands „algjörlega óþekkt“, en þar
kynnu að finnast frekari jarð efni sem
gætu nýst bandarískum iðnaði .
Robert John Walker lagði út af niður-
stöð um Peirce í inngangi sínum að skýrsl-
unni . Hann taldi rök fyrir því að kaup
á Grænlandi og eink um Íslandi mundu
hvetja til þess að menn sæktu sjó og ýta
undir vöxt reynslu mikils kaupskipaflota
Banda ríkjanna . Þetta mundi síðan hafa
í för með sér, að flotinn fengi sjómenn í
sínar raðir til að stuðla að því að tryggja
öryggi viðskipta Bandaríkjamanna með
kaupskip um . Kaupin á Grænlandi mundu
á hinn bóginn falla að hugmyndum
Sewards um yfirráð í norðri:
Menn fundu upp á því í Englandi af
illum huga í garð Bandaríkjanna að
koma á fót sam veld isl andinu Kanada . . .
markmiðið er að það nái til allrar Bresku
Ameríku frá Atlants hafi til Kyrrahafs . . .
Með hinum miklu kaupum [á Alaska]
höfum við skjaldað Bresku Amer íku
gagnvart Norðurskautinu og Kyrra hafi,
skorið hana alfarið frá síðarnefnda hafinu
frá norðlægri breiddargráðu 54˚40´ til
72˚, þannig að nýja samveldislandið fái
aðeins 5˚40´ við Kyrrahaf, þröngvað
milli Alaska í norðri og Kaliforníu,
Oregon og Washington-ríki í suðri, og
nú er Breska Kólumbia að verða sífellt
ameríkaníseraðri . Með því að eign ast
Græn land mun landið skjalda Bresku
Amer íku á mörg þúsund mílna svæði í
norðri og vestri, og stórlega ýta undir
hvatningu til hennar til að verða hluti
af Ameríkusambandinu, frið samlega og
glaðlega .
Með öðrum orðum mundu kaupin á
Græn landi neyða Kanada til að ganga í
Banda ríkin .
Skýrsla Peirce var of seint á ferðinni .
Seward hvarf úr embætti utanríkisráð-
herra innan árs frá því að skýrslan birtist .
Líkur á því að Bandaríkin mundu kaupa
Grænland og Ísland voru litlar . Samskipti
Banda ríkjastjórnar við Dani höfðu beðið
hnekki vegna misheppnaðrar tilraunar
Sewards til að kaupa Dönsku jómfrúreyjar .
Eftir hörð átök á Bandaríkjaþingi um
kaup in á Alaska var það einfaldlega of
stórt skref fyrir þjóð sem enn var að ná sér