Þjóðmál - 01.09.2010, Qupperneq 60
58 Þjóðmál HAUST 2010
Staða Íslands
Þegar um er að ræða stefnumótun til langs tíma, eins og t .d . gagnvart ESB,
má auðvitað ekki láta skammtímasjónar mið
ráða för . Þar verður langtímahags muna mat
að ráða för . Ljóst er að hagsmunir Íslands og
ESB fara ekki saman í sjávarútvegsmálum,
landbúnaðarmálum né orkumálum, og
hagsveiflan á Íslandi er úr takti við hag-
sveifluna, sem Evrópubankinn, ECB, leggur
til grundvallar peningamálastefnu sinni .
Ekki er því að undra að stuðningur við
aðild Íslands hefur fjarað út meðal almenn-
ings . Þetta kom einkar vel í ljós í skoðana-
könnun MMR á vegum Andríkis í júní
2010, en í grafinu hér til hliðar má sjá
hvernig svarendur skiptust eftir afstöðu
sinni til þess, hvort draga ætti umsókn
Íslands um aðild að ESB til baka . Unnur
Brá Konráðsdóttir, alþingis mað ur, lagði um
svipað leyti fram þings álykt un ar tillögu þessa
efnis, en af alkunnri lýðræð is ást hindruðu
vinstri flokkarnir eðlilega umfjöllun þessarar
tillögu á vor þinginu 2010 .
Það er meira að segja vandséð, að aðild
þjóni hagsmunum annarra en embættis-
mannastéttarinnar, sem vissulega mun fá
fleiri tækifæri innan ESB en utan . Sjávar-
útvegur á Íslandi yrði ekki nema svipur
hjá sjón innan ESB, hann yrði væntanlega
lagður í rúst með ríkisráni veiðiheimilda með
einum eða öðrum hætti . Landbúnaður yrði
fyrir svo þungum búsifjum af innflutningi
niðurgreidds ruslfóðurs, að hann bæri ekki
sitt barr, þegar framleiðsla þrautpínds lands
risabúa ESB flæddi yfir íslenzka markaðinn .
Iðnaðurinn stæði samkeppnislega í sömu
sporum, því að frelsin fjögur með fullu
markaðsaðgengi íslenzkra vara eru fyrir hendi
á Íslandi frá innleiðingu EES 1994 . Mál gefnir
og spekingslegir „Evrópufræðingar“ mála
skrattann á vegginn og segja að réttur Íslands
að innri markaði EES verði í uppnámi, verði
umsóknin dregin til baka . Öll er sú málafylgja
vanburðug og hefur verið hrakin með vísun
til regluverks og laga bókstafs .
Áætlaður kostnaður við umsókn er allt að
7 milljarðar króna, og eru flestir jafnframt
þeirrar skoðunar, að hér sé um mjög slæma
ráðstöfum opinbers fjár að ræða .
Nú sjá menn, að sameiginleg mynt án
samhæfðra ríkisfjármála stenzt ekki ólgusjó
hagsveiflnanna . Hvort sem ESB fer leið æ
nánari sameiningar, t .d . með samræmdum
fjárlögum, eða evran líður undir lok, verður
um að ræða gjörbreytt ESB frá því að sótt
var um aðild að því fyrir hönd Íslands
árið 2009 . Hvorug útgáfa ESB þjónar
hagsmunum Íslands, og þess vegna ber að
einbeita kröftum utanríkisþjónustunnar
að því að halda aðgangi Íslands að beztu
mörkuðum heimsins við lýði, þ .m .t . innri
markaður EES (Evrópska efnahagssvæðið) .
Hagsmunir Noregs og Sviss eru af
sama meiði . Frjáls og hindrunarlaus
heimsviðskipti eru undirstaða velmegunar
á Íslandi .
Viljayfirlýsingar stjórnvalda um að veita
Kínverjum forgang að verkefnum á Íslandi,
gegn fjármögnun sömu verkefna, torvelda
eðlileg samskipti við stjórnendur ESB og
geta sett aðgang Íslands að innri markaðinum
í uppnám . Sama má segja um tilburði
Niðurstöður í skoðanakönnun Andríkis í júní
2010 . Spurt var hvort draga ætti umsókn Íslands
um aðild að Evrópusambandinu til baka .