Þjóðmál - 01.09.2010, Blaðsíða 75
Þjóðmál HAUST 2010 73
sviði sjónvarpsþátta-, auglýsinga- og kvik-
myndagerðar er einnig í eigu fjölmiðla-
félagsins . D3 er vaxandi fyrirtæki á sviði
nýmiðlunar og rekur meðal annars Tónlist.
is og Vísir.is . Stærsta einingin innan
fyrirtækisins verður Wyndeham Press
Group sem er fjölþætt prent- og sam-
skipta fyrirtæki í Bretlandi .
Áætluð ársvelta 365 hf . á árinu 2007 er
29,5–31,5 milljarðar króna og EBITDA
3,5–3,9 milljarð ar . Vaxtaberandi skuldir
félagsins eru áætlaðar um 22 milljarðar
eða um 19 milljarðar þegar tek ið er tillit
til handbærs fjár og sölu fasteigna .17
Prentútgáfa 365 hf . var endurskipulögð
í desember 2006 til að skerpa áherslur og
auka arðsemi rekstrar félagsins . Þá var
ákveðið að leggja höfuðáherslu á útgáfu
Fréttablaðsins og fylgirita þess, en útgáfa
annarra sjálfstæðra prentmiðla sem höfðu
verið í eigu 365 miðla fluttist annað, eftir
atvikum með aðild 365 . Útgáfuréttur var
þá seldur til Dagblaðsins-Vísis útgáfufélags
ehf . 365 átti þó áfram 40% eignaraðild í
því félagi, sem tók við útgáfunni 1 . janúar
2007 . Tímaritin Hér & Nú og Veggfóður, sem
höfðu verið í eigu 365 miðla, voru þá seld
til Útgáfufélagsins Fögrudyra ehf . Samhliða
þessum breytingum var ákveðið að hætta
útgáfu tímaritsins Birtu í þáverandi mynd
og fella það inn í Fréttablaðið á árinu 2007 .
Tap 365 hf . nam tæpum sjö milljörðum
króna árið 2007 . Við blasti, að grípa þyrfti
til ráð stafana á árinu 2008 ætti starf-
semi félagsins að halda áfram . Eftir hrun
bankanna í byrjun október 2008 breyttist
hins vegar viðhorf bankanna .
Þann 3 . nóvember 2008 gerðu 365 hf .
og Rauðsól ehf . með sér samning um, að
Rauðsól keypti alla hluti 365 hf . í 365
miðlum ehf ., það er fjölmiðlahlutann
af 365 hf ., fyrir 5,9 milljarða króna .
Skyldu1,5 milljarðar greiddir með reiðufé
og tekin skyldi yfir 4,4 milljarða skuld 365
hf . við nýja Landsbankann (NIB) . Undir
samninginn rituðu Ari Edwald fyrir hönd
365 hf . og Einar Þór Sverrisson, hrl ., fyrir
hönd Rauðsólar ehf .
Einar Þór stofnaði fjárfestingafélagið
Rauðsól ehf . í lok október 2008 og var
hann skráður framkvæmdastjóri og
skipaði einn stjórn félags ins . Hlutafé var
1 .345 .019 .989 krónur, að öllu leyti í eigu
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sem jafnframt
var stjórnarformaður 365 hf . Hinn 1 .
nóvember er haldinn stjórnarfundur í 365
hf . og þar bókað: „Jón Ásgeir bendir á að
vegna neikvæðrar eiginfjárstöðu félagsins
[365 hf .] . . . og yfirvofandi gjalddaga
skuldabréfaflokks í næstu viku eigi stjórn
félagsins ekki annarra kosta völ en selja
dótturfélagið 365 miðla ehf . Fyrir liggi
að félag á hans vegum [Rauðsól ehf .] sé
reiðubúið að leggja fram tilboð í félag ið .“
Var kauptilboð Rauðsólar ehf . sam þykkt af
meirihluta stjórnar 365 hf . á stjórnar fund-
inum .
Hinn 20 . nóvember 2008 samþykkti
hlut hafafundur 365 hf . að breyta heiti 365
hf . í Íslenska afþreyingu hf . Hinn 25 . maí
2009 gerðu Íslensk afþreying hf ., áður 365
hf ., og Rauðsól ehf . samning um að Rauðsól
ehf . skyldi fá 154 .980 .011 kr . afslátt af
kaupverði umræddra hluta í 365 miðlum
ehf . þar sem efnahagur 365 miðla ehf .
hefði ekki sýnt „rétta stöðu á sínum tíma“ .
Með úrskurði Héraðs dóms Reykjavíkur 2 .
júlí 2009 var bú Íslenskr ar afþreyingar hf .
tekið til gjaldþrotaskipta að kröfu stjórnar
félagsins . Skiptastjóri Íslenskrar afþreyingar
hf . rifti þessari ráðstöfun um af sláttinn til
Rauðsólar ehf . og sagði að um væri að ræða
eftirgjöf skuldar án efnislegra raka .
Er skemmst frá því að segja, að hinn 8 .
júní 2010 féllst Héraðsdómur Reykjavíkur
á þá kröfu skiptastjórans, að þessum
gjafagerningi um tæpar 155 milljónir, yrði