Þjóðmál - 01.09.2010, Side 87

Þjóðmál - 01.09.2010, Side 87
 Þjóðmál HAUST 2010 85 Hvað er nýfrjálshyggja? Kolbeinn Stefánsson (ritstj .): Eilífðarvélin – Uppgjör við nýfrjálshyggjuna, Háskólaútgáfan, Reykjavík 2010, 268 bls . Eftir Atla Harðarson Þegar ég rakst á Eilífðarvélina á Bókasafni Akraness vakti undirtitillinn Uppgjör við nýfrjálshyggjuna athygli mína . Það hafði ekki farið fram hjá mér að í goðafræði þeirra sem hæst predika pólitískan rétttrúnað um þessar mundir gegnir nýfrjálshyggja nokk- urn veginn sama hlutverki og Loki Lauf- eyjarson í fornum átrúnaði . Hins vegar var mér hvorki ljóst hvað nýfrjálshyggja er né hvernig hún tengist eldri gerðum frjáls- hyggju . Nýfrjálshyggju er alloft lýst sem ríkjandi hugmyndafræði . Samt eru engir stjórnmálaflokkar eða fjöldahreyfingar sem kenna sig við hana . Sé hún einhvers konar fjölda hreyfing er hún mjög óvenjuleg að því leyti að það kannast varla nokkur maður við að tilheyra henni . Þeir sem kalla sjálfa sig frjáls hyggjumenn eru fremur fámennur hópur og ég held að þeir telji sig almennt ekki aðhyllast neina nýfrjálshyggju heldur bara gamal dags frjálshyggju . Ég greip bókina með mér í þeirri von að lestur hennar hjálpaði mér að skilja hvað átt er við með öllu þessu tali um nýfrjáls- hyggju . Höfundar menntaðir í félagsfræði og heimspeki Í bókinni eru níu kaflar eftir átta höfunda . Sá sem á tvær greinar er ritstjórinn Kolbeinn Stefánsson félagsfræðingur og sérfræðingur við Þjóðmálastofnun Háskóla Íslands . Hann ritar bæði fyrsta kaflann og lokakaflann sem er eins konar samantekt eða stutt yfirlit yfir niðurstöður allra hinna . Aðrir höfundar eru Sveinbjörn Þórðarson heimspekingur og vísindasagnfræðingur, Pär Gustafsson félagsfræðingur við Linnaeusháskóla í Svíþjóð, Salvör Nordal heimspekingur og forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands, Mia Vabø félagsfræðingur við Norsk institutt for forskning om oppvekst, velferd og aldring, Stefán Ólafsson prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, Þorgerður Einarsdóttir prófessor í kynjafræði við Háskóla Íslands og Giorgio Baruchello heimspekingur og prófessor við Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri . Kolbeinn segir í fyrsta kafla bókarinnar að höfundar hafi fengið tvenn fyrirmæli: Þau fyrri voru að fræðilegs hlutleysis væri gætt í hvívetna, það er að umfjöllun þeirra lýsti nýfrjálshyggjunni á raunsannan hátt . […] Seinni fyrirmælin voru að textinn skyldi vera eins laus við tæknimál og kostur er, enda ætlaður hinum almenna lesanda sem eðlilega hefur lítinn áhuga á að lesa texta þar sem sérfræðingar slá um sig með óskiljanlegum orðum þegar hægt er að segja hlutina á mannamáli (bls . 15) . Bókadómar _____________

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.