Þjóðmál - 01.09.2010, Síða 88
86 Þjóðmál HAUST 2010
Ég get fullyrt án fyrirvara að höfundar hafa
orðið við seinni fyrirmælunum . Ég treysti
mér hins vegar hvorki til að fullyrða af né
á um hvort allir hafi hlýtt hinum fyrri enda
er það margflókið álitamál hvað geti talist
raunsönn lýsing á nýfrjálshyggju . Til að
meta það þarf meðal annars að vita hvað
orðið „nýfrjálshyggja“ merkir .
Lýsing ritstjóra á
einkennum nýfrjálshyggju
Ritstjóri bókarinnar, Kolbeinn Stefánsson,
fullyrðir að í aðdraganda bankakreppunnar
hafi „nýfrjálshyggjan verið ríkjandi hug-
mynda fræði, bæði á Íslandi og í stórum
hluta heimsins“ (bls . 9) og að hún eigi það
sammerkt með „kommúnisma Sovét ríkj-
anna“ að vera „tilraun til að skipu leggja
samfélög á grundvelli algilds hug mynda-
kerfis“ þ .e . kerfis „sem reynir að finna eina
grundvallarskýringu á öllum sam félags legum
fyrirbærum, sem leiðir til einnar lausnar á
öllum samfélags vanda málum“ (bls . 11–12) .
Í fyrsta kafla bókarinnar reynir Kolbeinn
að skýra hvað átt er við með hugtakinu ný
frjálshyggja og nefnir nokkur atriði sem mér
sýnist að megi skipa niður í fimm flokka:
1 . Viðleitni til að draga úr opinber u m um -
svif um, m .a . með einkavæðingu ríkis fyrir -
tækja .
2 . Viðleitni til að afnema höft, regluverk
og pólitísk afskipti af efna hags lífinu .
3 . Áhersla á markaðshagkerfi, atvinnu-
frelsi, samkeppni og frjáls viðskipti .
4 . Tilhneiging til að nota „markaðs lausn ir“
á æ fleiri sviðum m .a . með ný skipun í opin -
berum rekstri þar sem „er leitað leiða til að
skapa markaðsaðstæður innan opinbera geir-
ans“ (bls . 17) .
5 . Trú á hagfræðileg líkön eða kenn ing ar
sem fela í sér að frjáls markaður leiti sjálf-
krafa jafnvægis; almannahag sé best borgið
ef fyrirtæki á frjálsum markaði reyna að há-
marka hagnað sinn; hægt sé að nota hag-
fræði lega mælikvarða á flest eða jafnvel öll
verð mæti og skilja allt mannlífið í ljósi hag-
fræði legra sértekninga .
Um þetta síðast nefnda segir Kolbeinn:
Nýfrjálshyggjan grundvallast á tiltekinni sýn
á manneskjuna . Einstaklingurinn 1) lifir í
félags legu tómarúmi, 2) er sjálfselskur, 3) er
ásæl inn, 4) er efnishyggin neysluvél, 5) er
skyn sam ur og hagsýnn, 6) er óbrigðull um
eigin hag . Þessi sýn á manneskjuna er útgangs-
punkt ur nýfrjálshyggjunnar, forsendur sem
ný frjáls hyggju fólk gefur sér án þess að kanna
hvort þær eigi sér einhverja stoð í raun veru-
leik an um (bls . 19) .
Þessi mannskilningur er ef til vill hluti af
einhverjum líkönum sem getur verið vit í að
beita á afmarkaða þætti veruleikans en eins
og Kolbeinn bendir á gefa þessar forsendur
„mjög sérkennilega mynd af mannlífinu“
ef litið er á þær sem bókstaflegan sannleika
(bls . 22) .
Í lýsingu á einkennum nýfrjálshyggju
er ekki getið um aukna áherslu á réttindi
ein staklinga og tilraunir löggjafa til að skil-
greina þau, með meira afgerandi hætti en
fyrr var gert, sem eru að ýmsu leyti í anda
frjálshyggju . Nærtæk dæmi úr íslenskri
löggjöf eru Stjórnsýslulög (nr . 30 frá 1993),
Lög um mannréttindasáttmála Evrópu
(nr . 62 frá 1994), Upplýsingalög (nr . 50
frá 1996) og Lög um persónuvernd og
meðferð persónuupplýsinga (nr . 77 frá
2000) . Ef til vill er þetta til marks um
að einu frjálshyggjuáherslurnar sem til
umfjöllunar eru séu þær sem tengjast beint
markaðshyggju, markaðsvæðingu og hag-
fræðil egum þankagangi .
Þokukennd umfjöllun
Það er hægt að tengja öll þessi fimm atriði
við gamla frjálshyggjuhefð og það má líka