Þjóðmál - 01.09.2010, Síða 98
96 Þjóðmál HAUST 2010
miklu að danskir fjölmiðlar brugðust við
sam keppn inni með hörku og er í raun ekki
annað hægt en að undrast þann barna skap
sem íslensku stjórnendurnir sýndu, bæði í
yfirlýs ingum og meðferð fjármuna .
Að hluta til er bókin uppgjör fjór menn -
inganna við samferðamenn og áhersl-
ur í danskri blaðamennsku og það gætir
nokkurrar ónákvæmni þegar íslensk mál-
efni ber á góma . Höfundar eru eðlilega
uppteknir af danska blaðaheiminum og það
skín í gegn að þeim finnst að Nyhedsavisen
hafi verið merkileg tilraun til að brjóta upp
danska blaðamarkaðinn enda ungir og
kappsfullir menn . Sjónarmið þeirra litast af
því að hafa starfað á Nyhedsavisen og háð
grimma samkeppni við aðra fjölmiðla . Með
öðrum orðum, þeir eru miklir Nyhedsavisen
menn og bókin endurspeglar ágætlega þá
stemmningu sem ríkti meðal starfsmanna
blaðsins . Um leið fáum við ágætan leiðarvísi
um á hvaða börum danskir viðskipta karlar
vilja hittast .
Það má vera að okkur Íslendingum hætti
til að ofmeta íslenska sjónarhornið . Þegar
yfir lauk beindust spjótin að Morten Lund,
dönskum auðmanni, sem kom að rekstri
blaðsins í janúar 2008 með kaupum á
51% hlutafjár . Við þá eign bættist síðar
og á endanum réð hann 85% hlut . Við
gjaldþrot Nyhedsavisen í ágústlok 2008 var
íslenski eignarhluturinn því aðeins 15% .
Þá var málið fyrir löngu orðið að dönsku
uppgjöri, þar sem Sveinn Dam, ritstjórinn
David Trads og framkvæmdastjórinn
Morten Nissen Nielsen tókust á, ýmist
innbyrðis eða við Morten Lund sem
greinilega var ekki vandur að meðulum,
en hann varð persónu lega gjaldþrota
þegar upp var staðið . Hugsanleg aðkoma
kínverska fjárfestisins Richard Li gerir síðan
málið en farsakenndara . Þess má geta að
Jónas Har aldsson, fyrrverandi ritstjóri DV
og Viðs kiptablaðsins, vann ágæta úttekt á
Nyhedsmálinu fyrir netritið T24 í október
2008 . Þeim sem vilja kynna sér málið betur
er bent á þá samantekt .
En var einhver glóra í útgáfu Nyheds
avisen? 501 tölublað kom út og blaðið
náði að vekja mikla skelfingu hjá keppi-
nautum sínum enda harkaleg árás á
danska blaðamarkaðinn . Þeir náðu að
snúa vörn í sókn og þreyta klárinn svo að
hann sprakk að lokum . Nyhedsavisen náði
aldrei markmiðum sínum í dreifingu og
peningarnir kláruðust áður en tilrauninni
lauk . Jón Ásgeir sagðist hafa fjármuni til
nokkurra ára en brennslu hraðinn var of
mikill og önnur vand ræði steðjuðu að
fyrirtækjaveldi hans áður en yfir lauk . Hvað
raunverulega vakti fyrir Morten Lund er
erfitt að segja en svo virðist sem margir
þeirra Dana sem komu að út gáfunni hafi
talið að hún hefði möguleika þó íslensku
fjárfestarnir væru farnir frá borði . Á það
reyndi ekki vegna þess að allir peningar
voru búnir og hafði þó verið leitað allt
austur til Kína .