Þjóðmál - 01.09.2011, Qupperneq 14
12 Þjóðmál HAUST 2011
Hver þeirra hefur tekist á við málefni sem
valdið hafa deilum meðal fylgismanna
þeirra . Almennt séð er líklegt að þeir séu þó
öruggari með leiðtogastöðu sína sem sitja
jafnframt í ríkisstjórn . Ákvörðun um að
velta þeim úr sessi kynni að jafngilda aðför
að sitjandi ríkisstjórn .
Til hins er þó að líta að frá því að skoð-
anakannanir komu til sögunnar hafa fáar
ríkisstjórnir mælst jafn óvinsælar og stjórn
þeirra Jóhönnu Sigurðardóttur og Stein-
gríms J . Sigfússonar . Fylgi hennar er nú í
svipaðri lægð og fylgi ríkisstjórnar Geirs H .
Haarde eftir hrunið . Traust í garð þeirra Jó-
hönnu Sigurðardóttur og Steingríms J . Sig-
fússonar hefur einnig hríðfallið .
Í könnun á vegum MMR sem birt var í
mars 2011 kom fram að aðeins 16,9% treystu
Jóhönnu en 23,9% báru traust til hennar í
könnun sem gerð var í maí 2010 . Fallið er þó
mun hærra ef farið er lengra aftur, en 63,6%
treystu Jóhönnu í sambærilegri könnun
sem gerð var í desember 2008 . Í mars 2011
sögðust 22,3% bera traust til Steingríms J .
en þessi tala var 37,6% í maí 2010 .
Könnunin sýndi að vantraust á Steingrím
J . Sigfússon hefði aukist verulega en 55,9%
þeirra sem tóku afstöðu sögðust bera lítið
traust til hans, en þeir voru rúm 40% í
síðustu könnun . Sömu sögu var að segja
um Jóhönnu Sigurðardóttur en 60,5%
þeirra sem tóku afstöðu sögðust bera lítið
traust til hennar borið saman við 52,9% í
síðustu könnun .
Formaður Samfylkingarinnar er best
var inn af kjörreglum . Hann skal kjörinn
í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal allra
skráðra flokksmanna enda komi fram krafa
þar um frá a .m .k . 150 flokksmönnum eigi
síðar en 45 dögum fyrir boðaðan landsfund .
Þegar þetta er skráð er ekki vitað um neinn
sem ætlar að safna liði gegn Jóhönnu þrátt
fyrir vaxandi undiröldu gegn henni innan
Sam fylkingarinnar . Meginástæðan fyrir því
að hún situr á friðarstóli er að þingmenn
Sam fylk ingarinnar þora ekki að hrófla við
henni af ótta við að það leiði til kosninga og
þar með atvinnumissis fyrir þá vegna lítilla
vin sælda flokksins .
Í lögum VG segir: „Flokksstjórn skal kosin
á landsfundi . Formaður, varaformaður,
ritari og gjaldkeri skulu kosnir sérstaklega
og að auki skulu kosnir sjö meðstjórnendur .
Þessir ellefu mynda flokksstjórn VG .“ Þarna
er ekki mælt fyrir um neinn framboðsfrest
og ræðst það því á landsfundinum hvort
einhver býður sig fram gegn Steingrími J .
Í Sjálfstæðisflokknum er formannskjör
óbundið og gildir sú regla að landsfundar-
fulltrúar skrifa nafn þess sem þeir vilja sem
formann á kjörseðil og setja hann í kjörkassa .
Þar er því enginn framboðsfrestur og má segja
að formaðurinn standi berskjaldaður fram
að kjöri og geti hver sá sem er kjörgengur
lagt til hans . Það kann því í raun að ráðast
á fundinum sjálfum hvort einhver býður
sig fram gegn Bjarna Benediktssyni eins og
gerðist á 39 . landsfundinum í júní 2010,
þegar Pétur H . Blöndal alþingismaður gerði
það á síðustu stundu .
Allt bendir til þess að formennirnir þrír
nái endurkjöri á landsfundi flokka sinna . Á
hinn bóginn er augljóst að ekki er allt sem
sýnist í stjórnmálunum og undirstraumar
þyngri en við blasir á yfirborðinu .
IV .
Til marks um undirstrauma stjórn mál-anna má nefna leiðara sem birtist í
Morgunblaðinu þriðjudaginn 16 . ágúst, eftir
að Bjarni Benediktsson sagðist í útvarps við-
tali sunnudaginn 14 . ágúst vilja draga ESB-
aðildarumsókn Íslands til baka . Leiðara-
höf undurinn sagði að það ætti ekki að
vera frétt að formaður Sjálfstæðisflokksins
staðfesti að hann væri andvígur því að Ísland
gengi í ESB . Flokkur hans hefði ályktað