Þjóðmál - 01.09.2011, Blaðsíða 8
6 Þjóðmál HAUST 2011
Breski rithöfundurinn og sagn fræð-ingurinn Paul Johnson, sem frá er sagt
í þessu hefti Þjóðmála (bls . 71–76), komst
eitt sinn svo að orði við Margréti Thatcher
við upphaf forsætisráðherraferils hennar:
„Það er fernt sem einkennir mikla leið-
toga . Í fyrsta lagi, einfaldleiki . Þú þarft
ein ungis að leggja áherslu á tvær eða þrjár
mikil vægar en einfaldar hugmyndir sem þú
trúir á og berst fyrir af öllum lífs og sálar
kröftum . Í öðru lagi, vilja styrkur . Hann
skiptir mestu máli . Þú verður að búa yfir
gífurlegum viljastyrk og fylgja grund-
vallar hugmyndum þínum fram af festu .
Ef hugmyndir þínar eru réttar — og það
verða þær að vera — þá mun þér takast
ætlunarverk þitt og þú verður mikill leið togi .
Í þriðja lagi verður þú að sýna þrautseigju .
Það er annað orð yfir hugrekki — hugrekki
til að halda þínu striki við að koma hinum
stóru hugmyndum þínum í fram kvæmd,
sérstaklega þegar á móti blæs og fáir styðja
við bakið á þér . Í fjórða lagi verður þú að
hafa hæfileika til að koma boðskap þínum
til skila til almennings .“
Frú Thatcher kvaðst sammála þessu öllu .
Hún viðurkenndi að hún ætti erfiðast með
að uppfylla fjórða liðinn — að ná til almenn-
ings . En hverjar voru stóru hug mynd irnar
hennar? spurði Johnson . Hún svaraði:
„Í fyrsta lagi að minnka eyðslu og skatt-
heimtu, sem þýðir að draga úr umsvifum
ríkisins . Í öðru lagi, sem sagt, takmarkað
ríkisvald, en þó þannig að ríkið sé sterkt og
ráði með ótvíræðum hætti þegar til kast anna
kemur . Það þýðir við núverandi aðstæður
að brjóta verkalýðs félögin á bak aftur . Þau
eyðilögðu þrjár síðustu ríkisstjórnir, Wilson-
stjórnina á árunum 1968–1970, Heath-
stjórnina 1974 og Callaghan-stjórnina 1979 .
Thatcher barónessa heilsar upp á Benedikt páfa XVI á Péturstorginu í Róm í maí 2009 . Kaþólikk inn
Paul Johnson leggur orð í belg . Sá sem heldur á regnhlífinni eða öllu heldur sólhlífinni (og sést ekki
á myndinni!) er Charles Moore, fyrrverandi ritstjóri Daily Telegraph, en hann gerðist kaþólskur undir
lok tíunda áratugarins .